← Job (30/42) → |
1. | En nú hlæja þeir að mér, sem yngri eru en ég, mundi ég þó ekki hafa virt feður þeirra þess að setja þá hjá fjárhundum mínum. |
2. | Hvað hefði og kraftur handa þeirra stoðað mig, þar sem þeir aldrei verða fullþroska? |
3. | Þeir eru örmagna af skorti og hungri, naga þurrt landið, sem í gær var auðn og eyðimörk. |
4. | Þeir reyta hrímblöðku hjá runnunum, og gýfilrætur er fæða þeirra. |
5. | Þeir eru flæmdir úr félagi manna, menn æpa að þeim eins og að þjóf, |
6. | svo að þeir verða að hafast við í hræðilegum gjám, í jarðholum og berghellum. |
7. | Milli runnanna rymja þeir, og undir netlunum safnast þeir saman, |
8. | guðlaust og ærulaust kyn, útreknir úr landinu. |
9. | Og nú er ég orðinn þeim að háðkvæði og orðinn umtalsefni þeirra. |
10. | Þeir hafa andstyggð á mér, koma ekki nærri mér og hlífast jafnvel ekki við að hrækja framan í mig. |
11. | Þar sem Guð hefir leyst streng sinn og beygt mig, þá sleppa þeir og beislinu fram af sér gagnvart mér. |
12. | Mér til hægri handar vex hyski þeirra upp, fótum mínum hrinda þeir frá sér og leggja glötunarbrautir sínar gegn mér. |
13. | Þeir hafa rifið upp stig minn, að falli mínu styðja þeir, sem engan hjálparmann eiga. |
14. | Þeir koma sem inn um vítt múrskarð, velta sér áfram innan um rústir. |
15. | Skelfingar hafa snúist móti mér, tign mín er ofsótt eins og af stormi, og gæfa mín er horfin eins og ský. |
16. | Og nú rennur sála mín sundur í tárum, eymdardagar halda mér föstum. |
17. | Nóttin nístir bein mín, svo að þau losna frá mér, og hinar nagandi kvalir mínar hvílast ekki. |
18. | Fyrir mikilleik máttar hans er klæðnaður minn aflagaður, hann lykur fast um mig, eins og hálsmál kyrtils míns. |
19. | Guð hefir kastað mér ofan í saurinn, svo að ég er orðinn eins og mold og aska. |
20. | Ég hrópa til þín, en þú svarar ekki, ég stend þarna, en þú starir á mig. |
21. | Þú ert orðinn grimmur við mig, með krafti handar þinnar ofsækir þú mig. |
22. | Þú lyftir mér upp á vindinn, lætur mig þeytast áfram, og þú lætur mig farast í stormgný. |
23. | Því að ég veit, að þú vilt leiða mig til Heljar, í samkomustað allra þeirra er lifa. |
24. | En _ rétta menn ekki út höndina, þegar allt hrynur? eða hrópa menn ekki á hjálp, þegar þeir eru að farast? |
25. | Eða grét ég ekki yfir þeim, sem átti illa daga, og hryggðist ekki sál mín vegna fátæklingsins? |
26. | Já, ég bjóst við góðu, en þá kom illt, vænti ljóss, en þá kom myrkur. |
27. | Það sýður í innýflum mínum án afláts, eymdardagar eru yfir mig komnir. |
28. | Svartur geng ég um, þó ekki af sólarhita, ég stend upp, í söfnuðinum hrópa ég á hjálp. |
29. | Ég er orðinn bróðir sjakalanna og félagi strútsfuglanna. |
30. | Hörund mitt er orðið svart og flagnar af mér, og bein mín eru brunnin af hita.Og fyrir því varð gígja mín að gráti og hjarðpípa mín að harmakveini. |
31. | Og fyrir því varð gígja mín að gráti og hjarðpípa mín að harmakveini. |
← Job (30/42) → |