← Job (22/42) → |
1. | Þá svaraði Elífas frá Teman og sagði: |
2. | Vinnur maðurinn Guði gagn? Nei, sjálfum sér vinnur vitur maður gagn. |
3. | Er það ábati fyrir hinn Almáttka, að þú ert réttlátur, eða ávinningur, að þú lifir grandvöru lífi? |
4. | Er það vegna guðsótta þíns, að hann refsar þér, að hann dregur þig fyrir dóm? |
5. | Er ekki vonska þín mikil og misgjörðir þínar óþrjótandi? |
6. | Því að þú tókst veð af bræðrum þínum að ástæðulausu og færðir fáklædda menn úr flíkum þeirra. |
7. | Þú gafst ekki hinum örmagna vatn að drekka, og hinum hungraða synjaðir þú brauðs. |
8. | En hinn voldugi átti landið, og virðingarmaðurinn bjó í því. |
9. | Ekkjur lést þú fara burt tómhentar, og armleggir munaðarleysingjanna voru brotnir sundur. |
10. | Fyrir því eru snörur allt í kringum þig, og fyrir því skelfir ótti þig skyndilega! |
11. | Eða sér þú ekki myrkrið og vatnaflauminn, sem hylur þig? |
12. | Er ekki Guð himinhár? og lít þú á hvirfil stjarnanna, hve hátt þær gnæfa! |
13. | Og þú segir: ,,Hvað veit Guð? Getur hann dæmt gegnum skýsortann? |
14. | Skýin skyggja á hann, svo að hann sér ekki, og hann gengur á himinhvelfingunni.`` |
15. | Ætlar þú að halda fortíðar leið, þá er ranglátir menn hafa farið? |
16. | Þeir er kippt var burt fyrir tímann og grundvöllur þeirra skolaðist burt sem straumur, |
17. | þeir er sögðu við Guð: ,,Vík frá oss! og hvað gæti hinn Almáttki gjört fyrir oss?`` |
18. | og það þó hann fyllti hús þeirra blessun. _ Hugarfar óguðlegra sé fjarri mér! |
19. | Hinir réttlátu sjá það og gleðjast, og hinn saklausi gjörir gys að þeim: |
20. | ,,Vissulega er andstæðingur vor að engu orðinn, og eldurinn hefir eytt leifum þeirra.`` |
21. | Vingast þú við Guð, þá muntu vera í friði, við það mun blessun yfir þig koma. |
22. | Tak á móti kenning af munni hans, og fest þér orð hans í hjarta. |
23. | Ef þú snýr þér til hins Almáttka, auðmýkir þig, ef þú rekur ranglætið langt burt frá tjaldi þínu _ |
24. | já, varpaðu gullinu í duftið og skíragullinu ofan í lækjamölina! _ |
25. | þá skal hinn Almáttki vera gull þitt, vera þér hið skærasta silfur. |
26. | Já, þá munt þú hafa yndi af hinum Almáttka og lyfta augliti þínu til Guðs. |
27. | Biðjir þú til hans, bænheyrir hann þig, og heit þín munt þú greiða. |
28. | Og áformir þú eitthvað, mun þér heppnast það, og birta skína yfir vegu þína. |
29. | Þegar þeir liggja niður á við, þá kallar þú ,,Upp á við!`` og hinum auðmjúka hjálpar hann.Hann bjargar jafnvel þeim, sem ekki er saklaus, já, hann bjargast fyrir hreinleik handa þinna. |
30. | Hann bjargar jafnvel þeim, sem ekki er saklaus, já, hann bjargast fyrir hreinleik handa þinna. |
← Job (22/42) → |