← Job (17/42) → |
1. | Andi minn er bugaður, dagar mínir þrotnir, gröfin bíður mín. |
2. | Vissulega eru þeir enn að gjöra gys að mér! Auga mitt verður að horfa upp á móðganir þeirra! |
3. | Set veð, gakk í ábyrgð fyrir mig hjá þér, Guð, hver mun annars taka í hönd mér? |
4. | Því að hjörtum þeirra hefir þú varnað vits, fyrir því munt þú ekki láta þá sigri hrósa. |
5. | Hver sem með svikum framselur vini sína að herfangi, _ augu barna hans munu daprast. |
6. | Hann hefir gjört mig að orðskviði meðal manna, og ég verð að láta hrækja í andlit mitt. |
7. | Fyrir því dapraðist auga mitt af harmi, og limir mínir eru allir orðnir sem skuggi. |
8. | Réttvísir menn skelfast yfir því, og hinn saklausi fárast yfir hinum óguðlega. |
9. | En hinn réttláti heldur fast við sína leið, og sá sem hefir hreinar hendur, verður enn styrkari. |
10. | En komið þér allir hingað aftur, og ég mun ekki finna neinn vitran mann meðal yðar. |
11. | Dagar mínir eru liðnir, fyrirætlanir mínar sundurtættar, _ hin dýrasta eign hjarta míns. |
12. | Nóttina gjöra þeir að degi, ljósið á að vera nær mér en myrkrið. |
13. | Þegar ég vonast eftir að dánarheimar verði híbýli mitt, bý mér hvílu í myrkrinu, |
14. | þegar ég kalla gröfina ,,föður minn``, ormana ,,móður mína og systur`` _ |
15. | hvar er þá von mín, já, von mín _ hver eygir hana?Að slagbröndum Heljar stígur hún niður, þá er ég um leið fæ hvíld í moldu. |
16. | Að slagbröndum Heljar stígur hún niður, þá er ég um leið fæ hvíld í moldu. |
← Job (17/42) → |