← Job (16/42) → |
1. | Þá svaraði Job og sagði: |
2. | Ég hefi heyrt nóg af slíku, hvimleiðir huggarar eruð þér allir saman. |
3. | Er orðavindurinn nú á enda? eða hvað knýr þig til andsvara? |
4. | Ég gæti líka talað eins og þér, ef þér væruð í mínum sporum, gæti spunnið saman ræður gegn yður og hrist yfir yður höfuðið, |
5. | ég gæti styrkt yður með munni mínum, og meðaumkun vara minna mundi lina þjáning yðar. |
6. | Þótt ég tali, þá linar ekki kvöl mína, og gjöri ég það ekki, hvaða létti fæ ég þá? |
7. | Miklu fremur hefir Guð nú örþreytt mig, _ þú hefir eytt öllu ættliði mínu, |
8. | hefir hremmt mig, og það er vitni í móti mér. Sjúkdómur minn rís í gegn mér, ákærir mig upp í opið geðið. |
9. | Reiði hans slítur mig sundur og ofsækir mig, hann nístir tönnum í móti mér, andstæðingur minn hvessir á mig augun. |
10. | Þeir glenna upp ginið í móti mér, löðrunga mig til háðungar, allir saman gjöra þeir samtök í móti mér. |
11. | Guð gefur mig á vald ranglátra og varpar mér í hendur óguðlegra. |
12. | Ég lifði áhyggjulaus, þá braut hann mig sundur, hann þreif í hnakkann á mér og molaði mig sundur og reisti mig upp sér að skotspæni. |
13. | Skeyti hans fljúga kringum mig, vægðarlaust sker hann sundur nýru mín, hellir galli mínu á jörðu. |
14. | Hann brýtur í mig skarð á skarð ofan og gjörir áhlaup á mig eins og hetja. |
15. | Ég hefi saumað sekk um hörund mitt og stungið horni mínu ofan í moldina. |
16. | Andlit mitt er þrútið af gráti, og svartamyrkur hvílir yfir hvörmum mínum, |
17. | þótt ekkert ranglæti sé í hendi minni og bæn mín sé hrein. |
18. | Jörð, hyl þú eigi blóð mitt, og kvein mitt finni engan hvíldarstað! |
19. | En sjá, á himnum er vottur minn og vitni mitt á hæðum. |
20. | Vinir mínir gjöra gys að mér _ til Guðs lítur auga mitt grátandi, |
21. | að hann láti manninn ná rétti sínum gagnvart Guði og skeri úr milli mannsins og vinar hans.Því að senn eru þessi fáu ár á enda, og ég fer burt þá leiðina, sem ég aldrei sný aftur. |
22. | Því að senn eru þessi fáu ár á enda, og ég fer burt þá leiðina, sem ég aldrei sný aftur. |
← Job (16/42) → |