← Job (11/42) → |
1. | Þá svaraði Sófar frá Naama og sagði: |
2. | Á ekki að svara orðagjálfrinu, og á málskrafsmaðurinn að hafa rétt fyrir sér? |
3. | Ættu stóryrði þín að koma mönnum til að þegja, og ættir þú að spotta og enginn sneypa þig, |
4. | þar sem þú segir: ,,Kenning mín er rétt, og ég er hreinn í augum Guðs``? |
5. | En _ ó að Guð vildi tala og ljúka upp vörum sínum í móti þér |
6. | og kunngjöra þér leyndardóma spekinnar, að í þeim felast margföld hyggindi, þá mundir þú kannast við, að Guð hegnir ekki til fulls misgjörð þinni. |
7. | Getur þú náð til botns í Guði eða komist til ystu takmarka hins Almáttka? |
8. | Himinhá er speki hans _ hvað fær þú gjört? dýpri en undirheimar _ hvað fær þú vitað? |
9. | Hún er lengri en jörðin að víðáttu og breiðari en hafið. |
10. | Ef hann ryðst fram og hneppir í varðhald og stefnir dómþing _ hver aftrar honum? |
11. | Því að hann þekkir varmennin og sér ranglætið, þótt hann sé ekki að veita því athygli. |
12. | Verður óvitur maður hygginn? og fæðist skógarösnu-folald sem maður? |
13. | Ef þú undirbýr hjarta þitt og breiðir út lófa þína til hans, |
14. | _ ef misgjörð er í hendi þinni, þá fjarlæg hana, og lát eigi órétt búa í tjöldum þínum _ |
15. | já, þá munt þú flekklaus hefja höfuð þitt, munt standa fastur og eigi þurfa að óttast. |
16. | Já, þá munt þú gleyma mæðu þinni, þú munt minnast hennar sem vatns, er runnið er fram hjá. |
17. | Og lífið mun renna upp bjartara en hádegið, þótt dimmi, þá mun það verða sem morgunn. |
18. | Og þú munt vera öruggur, því að enn er von, og skyggnist þú um, getur þú lagst óhultur til hvíldar. |
19. | Og þú hvílist, og enginn hræðir þig, og margir munu reyna að koma sér í mjúkinn hjá þér.En augu hinna óguðlegu daprast, fyrir þá er fokið í öll skjól, og þeirra eina von er að gefa upp andann. |
20. | En augu hinna óguðlegu daprast, fyrir þá er fokið í öll skjól, og þeirra eina von er að gefa upp andann. |
← Job (11/42) → |