← Job (10/42) → |
1. | Mér býður við lífi mínu, ég ætla því að gefa kveinstöfum mínum lausan tauminn, ætla að tala í sálarkvöl minni. |
2. | Ég segi við Guð: Sakfell mig ekki! lát mig vita, hvers vegna þú deilir við mig. |
3. | Er það ávinningur fyrir þig, að þú undirokar, að þú hafnar verki handa þinna, en lætur ljós skína yfir ráðagerð hinna óguðlegu? |
4. | Hefir þú holdleg augu, eða sér þú eins og menn sjá? |
5. | Eru dagar þínir eins og dagar mannanna, eru ár þín eins og mannsævi, |
6. | er þú leitar að misgjörð minni og grennslast eftir synd minni, |
7. | þótt þú vitir, að ég er ekki sekur, og að enginn frelsar af þinni hendi? |
8. | Hendur þínar hafa skapað mig og myndað mig, allan í krók og kring, og samt ætlar þú að tortíma mér? |
9. | Minnstu þó þess, að þú myndaðir mig sem leir, og nú vilt þú aftur gjöra mig að dufti. |
10. | Hefir þú ekki hellt mér sem mjólk og hleypt mig sem ost? |
11. | Hörundi og holdi klæddir þú mig og ófst mig saman úr beinum og sinum. |
12. | Líf og náð veittir þú mér, og umsjá þín varðveitti andardrátt minn. |
13. | En þetta falst þú í hjarta þínu, ég veit þú hafðir slíkt í hyggju. |
14. | Ef ég syndgaði, þá ætlaðir þú að hafa gætur á mér og eigi sýkna mig af misgjörð minni. |
15. | Væri ég sekur, þá vei mér! Og þótt ég væri réttlátur, þá mundi ég samt ekki bera höfuð mitt hátt, mettur af smán og þjakaður af eymd. |
16. | Og ef ég reisti mig upp, þá mundir þú elta mig sem ljón, og ávallt að nýju sýna á mér undramátt þinn. |
17. | Þú mundir leiða fram ný vitni á móti mér og herða á gremju þinni gegn mér, senda nýjan og nýjan kvalaher á hendur mér. |
18. | Hvers vegna útleiddir þú mig þá af móðurlífi? Ég hefði átt að deyja, áður en nokkurt auga leit mig! |
19. | Ég hefði átt að verða eins og ég hefði aldrei verið til, verið borinn frá móðurkviði til grafar! |
20. | Eru ekki dagar mínir fáir? Slepptu mér, svo að ég megi gleðjast lítið eitt, |
21. | áður en ég fer burt og kem aldrei aftur, fer í land myrkurs og niðdimmu,land svartamyrkurs sem um hánótt, land niðdimmu og skipuleysis, þar sem birtan sjálf er sem svartnætti. |
22. | land svartamyrkurs sem um hánótt, land niðdimmu og skipuleysis, þar sem birtan sjálf er sem svartnætti. |
← Job (10/42) → |