← James (3/5) → |
1. | Verðið eigi margir kennarar, bræður mínir. Þér vitið, að vér munum fá þyngri dóm. |
2. | Allir hrösum vér margvíslega. Hrasi einhver ekki í orði, þá er hann maður fullkominn, fær um að hafa stjórn á öllum líkama sínum. |
3. | Ef vér leggjum hestunum beisli í munn, til þess að þeir hlýði oss, þá getum vér stýrt öllum líkama þeirra. |
4. | Sjá einnig skipin, svo stór sem þau eru og rekin af hörðum vindum. Þeim verður stýrt með mjög litlu stýri, hvert sem stýrimaðurinn vill. |
5. | Þannig er einnig tungan lítill limur, en lætur mikið yfir sér. Sjá hversu lítill neisti getur kveikt í miklum skógi. |
6. | Tungan er líka eldur. Tungan er ranglætisheimur meðal lima vorra. Hún flekkar allan líkamann og kveikir í hjóli tilverunnar, en er sjálf tendruð af helvíti. |
7. | Allar tegundir dýra og fugla, skriðkvikindi og sjávardýr má temja og hafa mennirnir tamið, |
8. | en tunguna getur enginn maður tamið, þessa óhemju, sem er full af banvænu eitri. |
9. | Með henni vegsömum vér Drottin vorn og föður og með henni formælum vér mönnum, sem skapaðir eru í líkingu Guðs. |
10. | Af sama munni gengur fram blessun og bölvun. Þetta má ekki svo vera, bræður mínir. |
11. | Gefur lindin úr sama uppsprettuauga bæði ferskt og beiskt vatn? |
12. | Mun fíkjutré, bræður mínir, geta af sér gefið olífur eða vínviður fíkjur? Eigi getur heldur saltur brunnur gefið ferskt vatn. |
13. | Hver er vitur og skynsamur yðar á meðal? Hann láti með góðri hegðun verk sín lýsa hóglátri speki. |
14. | En ef þér hafið beiskan ofsa og eigingirni í hjarta yðar, þá stærið yður ekki og ljúgið ekki gegn sannleikanum. |
15. | Sú speki kemur ekki að ofan, heldur er hún jarðnesk, andlaus, djöfulleg. |
16. | Því hvar sem ofsi og eigingirni er, þar er óstjórn og hvers kyns böl. |
17. | En sú speki, sem að ofan er, hún er í fyrsta lagi hrein, því næst friðsöm, ljúfleg, sáttgjörn, full miskunnar og góðra ávaxta, óhlutdræg, hræsnislaus.En ávexti réttlætisins verður sáð í friði þeim til handa, er frið semja. |
18. | En ávexti réttlætisins verður sáð í friði þeim til handa, er frið semja. |
← James (3/5) → |