James (1/5) → |
1. | Jakob, þjónn Guðs og Drottins Jesú Krists, heilsar þeim tólf kynkvíslum í dreifingunni. |
2. | Álítið það, bræður mínir, eintómt gleðiefni, er þér ratið í ýmiss konar raunir. |
3. | Þér vitið, að trúarstaðfesta yðar vekur þolgæði, |
4. | en þolgæðið á að birtast í fullkomnu verki, til þess að þér séuð fullkomnir og algjörir og yður sé í engu ábótavant. |
5. | Ef einhvern yðar brestur visku, þá biðji hann Guð, sem gefur öllum örlátlega og átölulaust, og honum mun gefast. |
6. | En hann biðji í trú, án þess að efast. Sá sem efast er líkur sjávaröldu, er rís og hrekst fyrir vindi. |
7. | Sá maður, tvílyndur og reikull á öllum vegum sínum, má eigi ætla, |
8. | að hann fái nokkuð hjá Drottni. |
9. | Lágt settur bróðir hrósi sér af upphefð sinni, |
10. | en auðugur af lægingu sinni, því hann mun líða undir lok eins og blóm á engi. |
11. | Sólin kemur upp með steikjandi hita og brennir grasið, og blóm þess dettur af og fegurð þess verður að engu. Þannig mun og hinn auðugi maður visna upp á vegum sínum. |
12. | Sæll er sá maður, sem stenst freistingu, því að þegar hann hefur reynst hæfur mun hann öðlast kórónu lífsins, sem Guð hefur heitið þeim er elska hann. |
13. | Enginn má segja, er hann verður fyrir freistingu: ,,Guð freistar mín.`` Guð getur eigi orðið fyrir freistingu af hinu illa, enda freistar hann sjálfur einskis manns. |
14. | Það er eigin girnd, sem freistar sérhvers manns og dregur hann og tælir. |
15. | Þegar girndin síðan er orðin þunguð, elur hún synd, og þegar syndin er orðin fullþroskuð, fæðir hún dauða. |
16. | Villist ekki, bræður mínir elskaðir! |
17. | Sérhver góð gjöf og sérhver fullkomin gáfa er ofan að og kemur niður frá föður ljósanna. Hjá honum er engin umbreyting né skuggar, sem koma og fara. |
18. | Eftir ráðsályktun sinni fæddi hann oss með orði sannleikans, til þess að vér skyldum vera frumgróði sköpunar hans. |
19. | Vitið, bræður mínir elskaðir: Hver maður skal vera fljótur til að heyra, seinn til að tala, seinn til reiði. |
20. | Því að reiði manns ávinnur ekki það, sem rétt er fyrir Guði. |
21. | Leggið því af hvers konar saurugleik og alla vonsku og takið með hógværð á móti hinu gróðursetta orði, er frelsað getur sálir yðar. |
22. | Verðið gjörendur orðsins og eigi aðeins heyrendur þess, ella svíkið þér sjálfa yður. |
23. | Því að ef einhver er heyrandi orðsins og ekki gjörandi, þá er hann líkur manni, er skoðar andlit sitt í spegli. |
24. | Hann skoðar sjálfan sig, fer burt og gleymir jafnskjótt, hvernig hann var. |
25. | En sá sem skyggnist inn í hið fullkomna lögmál frelsisins og heldur sér við það og gleymir ekki því, sem hann heyrir, heldur framkvæmir það, hann mun sæll verða í verkum sínum. |
26. | Sá sem þykist vera guðrækinn, en hefur ekki taumhald á tungu sinni, blekkir sjálfan sig og guðrækni hans er fánýt.Hrein og flekklaus guðrækni fyrir Guði og föður er þetta, að vitja munaðarlausra og ekkna í þrengingu þeirra og varðveita sjálfan sig óflekkaðan af heiminum. |
27. | Hrein og flekklaus guðrækni fyrir Guði og föður er þetta, að vitja munaðarlausra og ekkna í þrengingu þeirra og varðveita sjálfan sig óflekkaðan af heiminum. |
James (1/5) → |