← Isaiah (36/66) → |
1. | Svo bar til á fjórtánda ríkisári Hiskía konungs, að Sanheríb Assýríukonungur fór herför gegn öllum víggirtum borgum í Júda og vann þær. |
2. | Þá sendi Assýríukonungur marskálk sinn með miklu liði frá Lakís til Jerúsalem á fund Hiskía konungs. Hann nam staðar hjá vatnstokknum úr efri tjörninni, við veginn út á bleikivöllinn. |
3. | Þá gengu þeir út til hans Eljakím Hilkíason dróttseti, Sébna kanslari og Jóak Asafsson ríkisritari. |
4. | Og marskálkurinn mælti til þeirra: ,,Segið Hiskía: Svo segir hinn mikli konungur, Assýríukonungur: Hvert er það athvarf er þú treystir á? |
5. | Er þú ráðgjörir hernað og hyggur þig fullstyrkan til, þá er það munnfleipur eitt. Á hvern treystir þú þá svo, að þú skulir hafa gjört uppreisn í gegn mér? |
6. | Sjá, þú treystir á þennan brotna reyrstaf, á Egyptaland, en hann stingst upp í höndina á hverjum þeim, er við hann styðst, og fer í gegnum hana. Slíkur er Faraó Egyptalandskonungur öllum þeim, er á hann treysta. |
7. | Og segir þú við mig: ,Vér treystum á Drottin, Guð vorn,` eru það þá ekki fórnarhæðir hans og ölturu, sem Hiskía nam burt, er hann sagði við Júda og Jerúsalem: ,Fyrir þessu eina altari skuluð þér fram falla?` |
8. | Kom til og veðja við herra minn, Assýríukonunginn: Ég skal fá þér tvö þúsund hesta, ef þú getur sett riddara á þá. |
9. | Hvernig munt þú þá fá rekið af höndum þér einn höfuðsmann meðal hinna minnstu þjóna herra míns? Og þó treystir þú á Egyptaland vegna hervagnanna og riddaranna! |
10. | Og hvort mun ég nú hafa farið til þessa lands án vilja Drottins til þess að eyða það? Drottinn sagði við mig: ,Far þú inn í þetta land og eyð það.``` |
11. | Þá sögðu þeir Eljakím, Sébna og Jóak við marskálk konungs: ,,Tala þú við þjóna þína á arameísku, því að vér skiljum hana, en tala eigi við oss á Júda tungu í áheyrn fólksins, sem uppi er á borgarveggnum.`` |
12. | En marskálkurinn sagði: ,,Hefir herra minn sent mig til herra þíns eða til þín til þess að flytja þetta erindi? Hefir hann ekki sent mig til þeirra manna, sem þar sitja uppi á borgarveggnum og eiga þann kost fyrir höndum ásamt með yður að eta sinn eigin saur og drekka þvag sitt?`` |
13. | Þá gekk marskálkurinn fram og kallaði hárri röddu á Júda tungu og mælti: ,,Heyrið orð hins mikla konungs, Assýríukonungs! |
14. | Svo segir konungurinn: Látið eigi Hiskía tæla yður, því að hann fær ekki frelsað yður. |
15. | Og látið eigi Hiskía koma yður til að treysta á Drottin með því að segja: ,Drottinn mun vissulega frelsa oss; þessi borg skal ekki verða Assýríukonungi í hendur seld.` |
16. | Hlustið eigi á Hiskía! Því að svo segir Assýríukonungur: Gjörið frið við mig og gangið mér á hönd, þá skal hver yðar mega eta af sínum vínviði og sínu fíkjutré og hver yðar drekka vatn úr sínum brunni, |
17. | þar til er ég kem og flyt yður í annað eins land og yðar land, í kornland og aldinlagar, í brauðland og víngarða. |
18. | Látið eigi Hiskía ginna yður, er hann segir: ,Drottinn mun frelsa oss.` Hefir nokkur af guðum þjóðanna frelsað land sitt undan hendi Assýríukonungs? |
19. | Hvar eru guðir Hamatborgar og Arpadborgar? Hvar eru guðir Sefarvaím? Hafa þeir frelsað Samaríu undan minni hendi? |
20. | Hverjir eru þeir af öllum guðum þessara landa, er frelsað hafi lönd sín undan minni hendi, svo að Drottinn skyldi fá frelsað Jerúsalem undan minni hendi?`` |
21. | En menn þögðu og svöruðu honum engu orði, því að skipun konungs var þessi: ,,Svarið honum eigi.``En þeir Eljakím Hilkíason dróttseti, Sébna kanslari og Jóak Asafsson ríkisritari gengu á fund Hiskía með sundurrifnum klæðum og fluttu honum orð marskálksins. |
22. | En þeir Eljakím Hilkíason dróttseti, Sébna kanslari og Jóak Asafsson ríkisritari gengu á fund Hiskía með sundurrifnum klæðum og fluttu honum orð marskálksins. |
← Isaiah (36/66) → |