← Isaiah (3/66) → |
1. | Sjá, hinn alvaldi, Drottinn allsherjar sviptir Jerúsalem og Júda hverri stoð og styttu, allri stoð brauðs og allri stoð vatns, |
2. | hetjum og hermönnum, dómendum og spámönnum, spásagnamönnum og öldungum, |
3. | höfuðsmönnum, virðingamönnum, ráðgjöfum, hugvitsmönnum og kunnáttumönnum. |
4. | Ég vil fá þeim ungmenni fyrir höfðingja, og smásveinar skulu drottna yfir þeim. |
5. | Á meðal fólksins skal maður manni þrengja. Ungmennið mun hrokast upp í móti öldungnum og skrílmennið upp í móti tignarmanninum. |
6. | Þegar einhver þrífur í bróður sinn í húsi föður síns og segir: ,,Þú átt yfirhöfn, ver þú stjórnari vor, og þetta fallandi ríki skal vera undir þinni hendi,`` |
7. | þá mun hann á þeim degi hefja upp raust sína og segja: ,,Ég vil ekki vera sáralæknir, og í húsi mínu er hvorki til brauð né klæði. Gjörið mig ekki að þjóðstjóra.`` |
8. | Jerúsalem er að hruni komin og Júda er að falla, af því að tunga þeirra og athæfi var gegn Drottni til þess að storka dýrðaraugum hans. |
9. | Andlitssvipur þeirra vitnar í gegn þeim, og þeir gjöra syndir sínar heyrinkunnar, eins og Sódóma, og leyna þeim ekki. Vei þeim, því að þeir hafa bakað sjálfum sér ógæfu. |
10. | Heill hinum réttlátu, því að þeim mun vel vegna, því að þeir munu njóta ávaxtar verka sinna. |
11. | Vei hinum óguðlega, honum mun illa vegna, því að honum mun goldið verða eftir tilgjörðum hans. |
12. | Harðstjóri þjóðar minnar er drengur, og konur drottna yfir henni. Þjóð mín, leiðtogar þínir leiða þig afleiðis og villa fyrir þér veginn. |
13. | Drottinn gengur fram til að sækja sökina, hann stendur frammi til að dæma þjóðirnar. |
14. | Drottinn gengur fram til dóms í gegn öldungum lýðs síns og höfðingjum hans: ,,Það eruð þér, sem hafið etið upp víngarðinn. Rændir fjármunir fátæklinganna eru í húsum yðar. |
15. | Hvernig getið þér fengið af yður að fótum troða lýð minn og merja sundur andlit hinna snauðu,`` _ segir hinn alvaldi, Drottinn allsherjar. |
16. | Drottinn sagði: Sökum þess að dætur Síonar eru drembilátar og ganga hnakkakerrtar, gjóta út undan sér augunum og tifa í göngunni og láta glamra í ökklaspennunum, |
17. | þá mun Drottinn gjöra kláðugan hvirfil Síonar dætra og gjöra bera blygðan þeirra. |
18. | Á þeim degi mun Drottinn burt nema skart þeirra: ökklaspennurnar, ennisböndin, hálstinglin, |
19. | eyrnaperlurnar, armhringana, andlitsskýlurnar, |
20. | motrana, ökklafestarnar, beltin, ilmbaukana, töfraþingin, |
21. | fingurgullin, nefhringana, |
22. | glitklæðin, nærklæðin, möttlana og pyngjurnar, |
23. | speglana, líndúkana, vefjarhettina og slæðurnar. |
24. | Koma mun ódaunn fyrir ilm, reiptagl fyrir belti, skalli fyrir hárfléttur, aðstrengdur hærusekkur í stað skrautskikkju, brennimerki í stað fegurðar. |
25. | Menn þínir munu fyrir sverði falla og kappar þínir í orustu.Hlið borgarinnar munu kveina og harma, og hún sjálf mun sitja einmana á jörðinni. |
26. | Hlið borgarinnar munu kveina og harma, og hún sjálf mun sitja einmana á jörðinni. |
← Isaiah (3/66) → |