Hosea (1/14) → |
1. | Orð Drottins, sem kom til Hósea Beerísonar á dögum Ússía, Jótams, Akasar og Hiskía, Júdakonunga, og á dögum Jeróbóams Jóassonar, Ísraelskonungs. |
2. | Þá er Drottinn hóf að tala við Hósea, sagði hann við Hósea: ,,Far og tak þér hórkonu og eignast hórbörn, því að landið drýgir hór og hefir snúist frá Drottni.`` |
3. | Þá fór hann og gekk að eiga Gómer Diblaímsdóttur. Hún varð þunguð og fæddi honum son. |
4. | Og Drottinn sagði við hann: ,,Lát hann heita Jesreel, því að innan skamms vitja ég blóðskuldar Jesreels á ætt Jehú og gjöri enda á konungdómi Ísraels húss. |
5. | Á þeim degi sundurbrýt ég boga Ísraels á Jesreel-völlum.`` |
6. | Og hún varð aftur þunguð og ól dóttur. Þá sagði Drottinn við Hósea: ,,Lát þú hana heita Náðvana, því að ég mun eigi framar auðsýna náð Ísraels húsi, svo að ég fyrirgefi þeim. |
7. | En ég mun auðsýna náð Júda húsi og hjálpa þeim fyrir Drottin, Guð þeirra, en ég mun eigi hjálpa þeim með boga, sverði, bardögum, stríðshestum né riddurum.`` |
8. | Og er hún hafði vanið Náðvana af brjósti, varð hún enn þunguð og ól son. |
9. | Þá sagði Drottinn: ,,Lát hann heita Ekki-minn-lýður, því að þér eruð ekki minn lýður, og ég er ekki yðar Guð.`` |
10. | Tala Ísraelsmanna skal verða sem sandur á sjávarströnd, sem ekki verður mældur og ekki talinn. Og í stað þess, að sagt var við þá: ,,Þér eruð ekki minn lýður!`` skal við þá sagt verða: ,,Synir hins lifanda Guðs!``Júdamenn og Ísraelsmenn skulu safnast saman og velja sér einn yfirmann og hefja ferð sína heim úr landinu, því að mikill mun Jesreeldagur verða. |
11. | Júdamenn og Ísraelsmenn skulu safnast saman og velja sér einn yfirmann og hefja ferð sína heim úr landinu, því að mikill mun Jesreeldagur verða. |
Hosea (1/14) → |