← Hebrews (4/13) → |
1. | Fyrirheitið um það að ganga inn til hvíldar hans stendur enn, vörumst því að nokkur yðar verði til þess að dragast aftur úr. |
2. | Fagnaðarerindið var oss boðað eigi síður en þeim. En orðið, sem þeir heyrðu, kom þeim eigi að haldi vegna þess, að þeir tóku ekki við því í trú. |
3. | En vér, sem trú höfum tekið, göngum inn til hvíldarinnar eins og hann hefur sagt: ,,Og ég sór í bræði minni: Eigi skulu þeir inn ganga til hvíldar minnar.`` Þó voru verk Guðs fullgjör frá grundvöllun heims. |
4. | Því að einhvers staðar er svo að orði kveðið um hinn sjöunda dag: ,,Og Guð hvíldist hinn sjöunda dag eftir öll verk sín.`` |
5. | Og aftur á þessum stað: ,,Eigi skulu þeir inn ganga til hvíldar minnar.`` |
6. | Enn stendur því til boða, að nokkrir gangi inn til hvíldar Guðs. Þeir, sem fagnaðarerindið var fyrr boðað, gengu ekki inn sakir óhlýðni. |
7. | Því ákveður Guð aftur dag einn, er hann segir löngu síðar fyrir munn Davíðs: ,,Í dag.`` Eins og fyrr hefur sagt verið: ,,Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar.`` |
8. | Hefði Jósúa leitt þá til hvíldar, þá hefði Guð ekki síðar meir talað um annan dag. |
9. | Enn stendur þá til boða sabbatshvíld fyrir lýð Guðs. |
10. | Því að sá, sem gengur inn til hvíldar hans, fær hvíld frá verkum sínum, eins og Guð hvíldist eftir sín verk. |
11. | Kostum því kapps um að ganga inn til þessarar hvíldar, til þess að enginn óhlýðnist eins og þeir og falli. |
12. | Því að orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni sálar og anda, liðamóta og mergjar, það dæmir hugsanir og hugrenningar hjartans. |
13. | Enginn skapaður hlutur er honum hulinn, allt er bert og öndvert augum hans. Honum eigum vér reikningsskil að gjöra. |
14. | Er vér þá höfum mikinn æðsta prest, sem farið hefur í gegnum himnana, Jesú Guðs son, skulum vér halda fast við játninguna. |
15. | Ekki höfum vér þann æðsta prest, er eigi geti séð aumur á veikleika vorum, heldur þann, sem freistað var á allan hátt eins og vor, en án syndar.Göngum því með djörfung að hásæti náðarinnar, til þess að vér öðlumst miskunn og hljótum náð til hjálpar á hagkvæmum tíma. |
16. | Göngum því með djörfung að hásæti náðarinnar, til þess að vér öðlumst miskunn og hljótum náð til hjálpar á hagkvæmum tíma. |
← Hebrews (4/13) → |