← Genesis (5/50) → |
1. | Þetta er ættarskrá Adams: Þegar Guð skapaði Adam, gjörði Guð hann sér líkan. |
2. | Hann skóp þau mann og konu og blessaði þau og nefndi þau menn, er þau voru sköpuð. |
3. | Adam lifði hundrað og þrjátíu ár. Þá gat hann son í líking sinni, eftir sinni mynd, og nefndi hann Set. |
4. | Og dagar Adams, eftir að hann gat Set, voru átta hundruð ár, og hann gat sonu og dætur. |
5. | Og allir dagar Adams, sem hann lifði, voru níu hundruð og þrjátíu ár. Þá dó hann. |
6. | Þegar Set var orðinn hundrað og fimm ára gamall gat hann Enos. |
7. | Eftir að Set gat Enos lifði hann átta hundruð og sjö ár og gat sonu og dætur. |
8. | Og allir dagar Sets voru níu hundruð og tólf ár, þá andaðist hann. |
9. | Enos var níutíu ára, er hann gat Kenan. |
10. | Og eftir að Enos gat Kenan lifði hann átta hundruð og fimmtán ár og gat sonu og dætur. |
11. | Og allir dagar Enoss voru níu hundruð og fimm ár, þá andaðist hann. |
12. | Þá er Kenan var sjötíu ára, gat hann Mahalalel. |
13. | Og Kenan lifði, eftir að hann gat Mahalalel, átta hundruð og fjörutíu ár og gat sonu og dætur. |
14. | Og allir dagar Kenans urðu níu hundruð og tíu ár, þá andaðist hann. |
15. | Er Mahalalel var sextíu og fimm ára, gat hann Jared. |
16. | Og Mahalalel lifði, eftir að hann gat Jared, átta hundruð og þrjátíu ár og gat sonu og dætur. |
17. | Og allir dagar Mahalalels voru átta hundruð níutíu og fimm ár, þá andaðist hann. |
18. | Er Jared var hundrað sextíu og tveggja ára, gat hann Enok. |
19. | Og Jared lifði, eftir að hann gat Enok, átta hundruð ár og gat sonu og dætur. |
20. | Og allir dagar Jareds voru níu hundruð sextíu og tvö ár, þá andaðist hann. |
21. | Er Enok var sextíu og fimm ára, gat hann Metúsala. |
22. | Og eftir að Enok gat Metúsala gekk hann með Guði þrjú hundruð ár og gat sonu og dætur. |
23. | Og allir dagar Enoks voru þrjú hundruð sextíu og fimm ár. |
24. | Og Enok gekk með Guði og hvarf, af því að Guð nam hann burt. |
25. | Er Metúsala var hundrað áttatíu og sjö ára, gat hann Lamek. |
26. | Og Metúsala lifði, eftir að hann gat Lamek, sjö hundruð áttatíu og tvö ár og gat sonu og dætur. |
27. | Og allir dagar Metúsala voru níu hundruð sextíu og níu ár, þá andaðist hann. |
28. | Er Lamek var hundrað áttatíu og tveggja ára, gat hann son. |
29. | Og hann nefndi hann Nóa og mælti: ,,Þessi mun hugga oss í erfiði voru og striti handa vorra, er jörðin, sem Drottinn bölvaði, bakar oss.`` |
30. | Og Lamek lifði, eftir að hann gat Nóa, fimm hundruð níutíu og fimm ár og gat sonu og dætur. |
31. | Og allir dagar Lameks voru sjö hundruð sjötíu og sjö ár, þá andaðist hann.Og er Nói var fimm hundruð ára, gat hann Sem, Kam og Jafet. |
32. | Og er Nói var fimm hundruð ára, gat hann Sem, Kam og Jafet. |
← Genesis (5/50) → |