← Genesis (46/50) → |
1. | Ísrael lagði af stað með allt sitt, og hann kom til Beerseba og færði þar Guði Ísaks föður síns sláturfórn. |
2. | Og Guð talaði við Ísrael í sýn um nóttina og sagði: ,,Jakob, Jakob!`` Og hann svaraði: ,,Hér er ég.`` |
3. | Og hann sagði: ,,Ég er Guð, Guð föður þíns. Óttast þú ekki að fara til Egyptalands, því að þar mun ég gjöra þig að mikilli þjóð. |
4. | Ég mun fara með þér til Egyptalands, og ég mun líka flytja þig þaðan aftur, og Jósef skal veita þér nábjargirnar.`` |
5. | Þá tók Jakob sig upp frá Beerseba, og Ísraels synir fluttu Jakob föður sinn og börn sín og konur sínar á vögnunum, sem Faraó hafði sent til að flytja hann á. |
6. | Og þeir tóku fénað sinn og fjárhluti, sem þeir höfðu aflað sér í Kanaanlandi, og komu til Egyptalands, Jakob og allir niðjar hans með honum. |
7. | Sonu sína og sonasonu, dætur sínar og sonadætur og alla niðja sína flutti hann með sér til Egyptalands. |
8. | Þessi eru nöfn Ísraels sona, sem komu til Egyptalands: Jakob og synir hans: Rúben, frumgetinn son Jakobs. |
9. | Synir Rúbens: Hanok, Pallú, Hesron og Karmí. |
10. | Synir Símeons: Jemúel, Jamín, Óhad, Jakín, Sóar og Sál, sonur kanversku konunnar. |
11. | Synir Leví: Gerson, Kahat og Merarí. |
12. | Synir Júda: Ger, Ónan, Sela, Peres og Sera. En Ger og Ónan dóu í Kanaanlandi. Synir Peres voru: Hesron og Hamúl. |
13. | Synir Íssakars: Tóla, Púva, Job og Símron. |
14. | Synir Sebúlons: Sered, Elon og Jahleel. |
15. | Þessir voru synir Leu, sem hún fæddi Jakob í Mesópótamíu, ásamt Dínu dóttur hans. Allir synir hans og dætur voru að tölu þrjátíu og þrjú. |
16. | Synir Gaðs: Sífjón, Haggí, Súní, Esbon, Erí, Aródí og Arelí. |
17. | Synir Assers: Jimna, Jísva, Jísví, Bría og Sera, systir þeirra. Synir Bría voru: Heber og Malkíel. |
18. | Þessir voru synir Silpu, sem Laban gaf Leu dóttur sinni. Hún ól Jakob þessa, sextán sálir. |
19. | Synir Rakelar, konu Jakobs: Jósef og Benjamín. |
20. | En Jósef fæddust synir í Egyptalandi: Manasse og Efraím, sem Asenat, dóttir Pótífera prests í Ón, ól honum. |
21. | Synir Benjamíns: Bela, Beker, Asbel, Gera, Naaman, Ehí, Rós, Múppím, Húppím og Ard. |
22. | Þetta voru synir Rakelar, sem hún ól Jakob, alls fjórtán sálir. |
23. | Sonur Dans: Húsín. |
24. | Synir Naftalí: Jahseel, Gúní, Jeser og Sillem. |
25. | Þessir voru synir Bílu, sem Laban gaf Rakel dóttur sinni, og þessa ól hún Jakob, sjö sálir alls. |
26. | Allar þær sálir, sem komu með Jakob til Egyptalands og af honum voru komnar, voru sextíu og sex að tölu, auk sonakvenna Jakobs. |
27. | Og synir Jósefs, sem honum höfðu fæðst í Egyptalandi, voru tveir að tölu. Allar þær sálir af ætt Jakobs, sem komu til Egyptalands, voru sjötíu að tölu. |
28. | Jakob sendi Júda á undan sér til Jósefs, að hann vísaði sér veginn til Gósen. Og þeir komu til Gósenlands. |
29. | Þá lét Jósef beita fyrir vagn sinn og fór á móti Ísrael föður sínum til Gósen, og er fundum þeirra bar saman, féll hann um háls honum og grét lengi um háls honum. |
30. | Og Ísrael sagði við Jósef: ,,Nú vil ég glaður deyja, fyrst ég hefi séð auglit þitt, að þú ert enn á lífi.`` |
31. | Og Jósef sagði við bræður sína og við frændlið föður síns: ,,Nú vil ég fara og láta Faraó vita og segja við hann: ,Bræður mínir og frændlið föður míns, sem var í Kanaanlandi, er til mín komið. |
32. | Og mennirnir eru hjarðmenn, því að þeir hafa stundað kvikfjárrækt, og sauði sína og nautpening sinn og allt, sem þeir eiga, hafa þeir haft hingað með sér.` |
33. | Þegar nú Faraó lætur kalla yður og spyr: ,Hver er atvinna yðar?`þá skuluð þér svara: ,Kvikfjárrækt hafa þjónar þínir stundað frá barnæsku allt til þessa dags, bæði vér og feður vorir,` _ til þess að þér fáið að búa í Gósenlandi, því að Egyptar hafa andstyggð á öllum hjarðmönnum.`` |
34. | þá skuluð þér svara: ,Kvikfjárrækt hafa þjónar þínir stundað frá barnæsku allt til þessa dags, bæði vér og feður vorir,` _ til þess að þér fáið að búa í Gósenlandi, því að Egyptar hafa andstyggð á öllum hjarðmönnum.`` |
← Genesis (46/50) → |