← Genesis (40/50) → |
1. | Eftir þetta varð sá atburður, að byrlari konungsins í Egyptalandi og bakarinn brutu á móti herra sínum, Egyptalandskonungi. |
2. | Og Faraó reiddist báðum hirðmönnum sínum, yfirbyrlaranum og yfirbakaranum, |
3. | og lét setja þá í varðhald í húsi lífvarðarforingjans, í myrkvastofuna, þar sem Jósef var í haldi. |
4. | Og lífvarðarforinginn setti Jósef til þess að þjóna þeim, og voru þeir nú um hríð í varðhaldi. |
5. | Þá dreymdi þá báða draum, byrlara og bakara konungsins í Egyptalandi, sem haldnir voru í myrkvastofunni, sinn drauminn hvorn sömu nóttina, og hafði hvor draumurinn sína þýðingu. |
6. | Og er Jósef kom inn til þeirra um morguninn, sá hann að þeir voru óglaðir. |
7. | Spurði hann þá hirðmenn Faraós, sem voru með honum í varðhaldi í húsi húsbónda hans, og mælti: ,,Hvers vegna eruð þið svo daprir í bragði í dag?`` |
8. | En þeir svöruðu honum: ,,Okkur hefir dreymt draum, og hér er enginn, sem geti ráðið hann.`` Þá sagði Jósef við þá: ,,Er það ekki Guðs að ráða drauma? Segið mér þó.`` |
9. | Þá sagði yfirbyrlarinn Jósef draum sinn og mælti við hann: ,,Mér þótti í svefninum sem vínviður stæði fyrir framan mig. |
10. | Á vínviðinum voru þrjár greinar, og jafnskjótt sem hann skaut frjóöngum, spruttu blóm hans út og klasar hans báru fullvaxin vínber. |
11. | En ég hélt á bikar Faraós í hendinni og tók vínberin og sprengdi þau í bikar Faraós og rétti svo bikarinn að Faraó.`` |
12. | Þá sagði Jósef við hann: ,,Ráðning draumsins er þessi: Þrjár vínviðargreinarnar merkja þrjá daga. |
13. | Að þrem dögum liðnum mun Faraó hefja höfuð þitt og setja þig aftur inn í embætti þitt. Munt þú þá rétta Faraó bikarinn, eins og áður var venja, er þú varst byrlari hans. |
14. | En minnstu mín, er þér gengur í vil, og gjör þá miskunn á mér að minnast á mig við Faraó, svo að þú megir frelsa mig úr þessu húsi. |
15. | Því að mér var með leynd stolið úr landi Hebrea, og eigi hefi ég heldur hér neitt það til saka unnið, að ég yrði settur í þessa dýflissu.`` |
16. | En er yfirbakarinn sá, að ráðning hans var góð, sagði hann við Jósef: ,,Mig dreymdi líka, að ég bæri á höfðinu þrjár karfir með hveitibrauði. |
17. | Og í efstu körfunni var alls konar sælgætisbrauð handa Faraó, og fuglarnir átu það úr körfunni á höfði mér.`` |
18. | Þá svaraði Jósef og mælti: ,,Ráðning draumsins er þessi: Þrjár karfirnar merkja þrjá daga. |
19. | Að þrem dögum liðnum mun Faraó hefja höfuð þitt af þér og festa þig á gálga, og fuglarnir munu eta af þér hold þitt.`` |
20. | Og það bar til á þriðja degi, á afmælisdegi Faraós, að hann hélt öllum þjónum sínum veislu. Hóf hann þá upp höfuð yfirbyrlarans og höfuð yfirbakarans í viðurvist þjóna sinna. |
21. | Setti hann yfirbyrlarann aftur í embætti hans, að hann mætti aftur bera Faraó bikarinn, |
22. | en yfirbakarann lét hann hengja, eins og Jósef hafði ráðið drauminn fyrir þá.En eigi minntist yfirbyrlarinn Jósefs, heldur gleymdi honum. |
23. | En eigi minntist yfirbyrlarinn Jósefs, heldur gleymdi honum. |
← Genesis (40/50) → |