← Genesis (36/50) → |
1. | Þetta er ættartala Esaú, það er Edóms. |
2. | Esaú hafði tekið sér konur af dætrum Kanaaníta: Ada, dóttur Hetítans Elons, og Oholíbama, dóttur Ana, sonar Hórítans Síbeons, |
3. | og Basmat, dóttur Ísmaels, systur Nebajóts. |
4. | Og Ada ól Esaú Elífas, Basmat ól Regúel |
5. | og Oholíbama ól Jehús, Jaelam og Kóra. Þessir eru synir Esaú, sem honum fæddust í Kanaanlandi. |
6. | Esaú tók konur sínar, sonu sína og dætur og allar sálir í húsi sínu og hjörð sína og kvikfénað og allan þann fjárhlut, sem hann hafði aflað sér í Kanaanlandi, og fór í burtu frá Jakob bróður sínum til Seírlands. |
7. | Því að eign þeirra var meiri en svo, að þeir gætu saman verið, og landið, er þeir bjuggu í sem útlendingar, bar þá ekki sökum hjarða þeirra. |
8. | Esaú settist að á Seírfjöllum; en Esaú er Edóm. |
9. | Þetta er saga Esaú, ættföður Edómíta, á Seírfjöllum. |
10. | Þetta eru nöfn Esaú sona: Elífas, sonur Ada, konu Esaú; Regúel, sonur Basmat, konu Esaú. |
11. | Synir Elífas voru: Teman, Ómar, Sefó, Gaetam og Kenas. |
12. | Timna var hjákona Elífas, sonar Esaú, og hún ól Elífas Amalek. Þetta eru synir Ada, konu Esaú. |
13. | Þessir eru synir Regúels: Nahat, Sera, Samma og Missa. Þessir voru synir Basmat, konu Esaú. |
14. | Og þessir voru synir Oholíbama, dóttur Ana, sonar Síbeons, konu Esaú, hún ól Esaú Jehús, Jaelam og Kóra. |
15. | Þessir eru ætthöfðingjar meðal Esaú sona: Synir Elífas, frumgetins sonar Esaú: Höfðinginn Teman, höfðinginn Ómar, höfðinginn Sefó, höfðinginn Kenas, |
16. | höfðinginn Kóra, höfðinginn Gaetam, höfðinginn Amalek. Þessir eru þeir höfðingjar, sem komnir eru frá Elífas í Edómlandi, þessir eru synir Ada. |
17. | Þessir voru synir Regúels, sonar Esaú: Höfðinginn Nahat, höfðinginn Sera, höfðinginn Samma, höfðinginn Missa. Þessir eru þeir höfðingjar, sem komnir eru frá Regúel í Edómlandi, þessir eru synir Basmat, konu Esaú. |
18. | Þessir eru synir Oholíbama, konu Esaú: Höfðinginn Jehús, höfðinginn Jaelam, höfðinginn Kóra. Þessir eru þeir höfðingjar, sem komnir eru frá Oholíbama, dóttur Ana, konu Esaú. |
19. | Þessir eru synir Esaú og þessir eru höfðingjar þeirra, það er Edóm. |
20. | Þessir eru synir Hórítans Seírs, frumbyggjar landsins: Lótan, Sóbal, Síbeon, Ana, |
21. | Díson, Eser og Dísan. Þessir eru höfðingjar Hórítanna, synir Seírs í Edómlandi. |
22. | Synir Lótans voru Hórí og Hemam, og systir Lótans var Timna. |
23. | Þessir eru synir Sóbals: Alvan, Manahat, Ebal, Sefó og Ónam. |
24. | Þessir eru synir Síbeons: Aja og Ana, það er sá Ana, sem fann laugarnar á öræfunum, er hann gætti asna Síbeons föður síns. |
25. | Þessi eru börn Ana: Díson og Oholíbama, dóttir Ana. |
26. | Þessir eru synir Dísons: Hemdan, Esban, Jítran og Keran. |
27. | Þessir eru synir Esers: Bílhan, Saavan og Akan. |
28. | Þessir eru synir Dísans: Ús og Aran. |
29. | Þessir eru höfðingjar Hórítanna: Höfðinginn Lótan, höfðinginn Sóbal, höfðinginn Síbeon, höfðinginn Ana, |
30. | höfðinginn Díson, höfðinginn Eser, höfðinginn Dísan. Þessir eru höfðingjar Hórítanna eftir höfðingjum þeirra í Seírlandi. |
31. | Þessir eru þeir konungar, sem ríktu í Edómlandi, áður en konungar ríktu yfir Ísraelsmönnum: |
32. | Bela, sonur Beórs, var konungur í Edóm, og hét borg hans Dínhaba. |
33. | Og er Bela dó, tók Jóbab, sonur Sera frá Bosra, ríki eftir hann. |
34. | Og er Jóbab dó, tók Húsam frá Temanítalandi ríki eftir hann. |
35. | Og er Húsam dó, tók Hadad, sonur Bedads, ríki eftir hann. Hann vann sigur á Midíanítum á Móabsvöllum, og borg hans hét Avít. |
36. | Og er Hadad dó, tók Samla frá Masreka ríki eftir hann. |
37. | Og er Samla dó, tók Sál frá Rehóbót hjá Efrat ríki eftir hann. |
38. | Og er Sál dó, tók Baal Hanan, sonur Akbórs, ríki eftir hann. |
39. | Og er Baal Hanan sonur Akbórs dó, tók Hadar ríki eftir hann, og hét borg hans Pagú, en kona hans Mehetabeel, dóttir Matredar, dóttur Me-Sahabs. |
40. | Þessi eru nöfn höfðingja þeirra, er frá Esaú eru komnir, eftir ættkvíslum þeirra, eftir bústöðum þeirra, eftir nöfnum þeirra: Höfðinginn Timna, höfðinginn Alva, höfðinginn Jetet, |
41. | höfðinginn Oholíbama, höfðinginn Ela, höfðinginn Pínon, |
42. | höfðinginn Kenas, höfðinginn Teman, höfðinginn Mibsar,höfðinginn Magdíel, höfðinginn Íram. Þessir eru höfðingjar Edómíta, eftir bústöðum þeirra í landi því, sem þeir höfðu numið. Þessi Esaú er ættfaðir Edómíta. |
43. | höfðinginn Magdíel, höfðinginn Íram. Þessir eru höfðingjar Edómíta, eftir bústöðum þeirra í landi því, sem þeir höfðu numið. Þessi Esaú er ættfaðir Edómíta. |
← Genesis (36/50) → |