← Genesis (35/50) → |
1. | Guð sagði við Jakob: ,,Tak þig upp og far upp til Betel og dvel þú þar og gjör þar altari Guði, sem birtist þér, þegar þú flýðir undan Esaú bróður þínum.`` |
2. | Jakob sagði við heimafólk sitt og alla, sem með honum voru: ,,Kastið burt þeim útlendu goðum, sem þér hafið hjá yður, og hreinsið yður og hafið fataskipti, |
3. | og skulum vér taka oss upp og fara upp til Betel. Vil ég reisa þar altari þeim Guði, sem bænheyrði mig á tíma neyðar minnar og hefir verið með mér á þeim vegi, sem ég hefi farið.`` |
4. | Og þeir fengu Jakob öll þau útlendu goð, sem þeir höfðu hjá sér, og hringana, sem þeir höfðu í eyrum sér, og gróf Jakob það undir eikinni, sem er hjá Síkem. |
5. | Því næst fóru þeir af stað. En ótti frá Guði var yfir öllum borgunum, sem voru umhverfis þá, svo að sonum Jakobs var ekki veitt eftirför. |
6. | Og Jakob kom til Lúz, sem er í Kanaanlandi (það er Betel), hann og allt fólkið, sem með honum var. |
7. | Og hann reisti þar altari og kallaði staðinn El-Betel, því að Guð hafði birst honum þar, þegar hann flýði undan bróður sínum. |
8. | Þar andaðist Debóra, fóstra Rebekku, og var jörðuð fyrir neðan Betel, undir eikinni, og fyrir því heitir hún Gráteik. |
9. | Enn birtist Guð Jakob, er hann var á heimleið frá Mesópótamíu, og blessaði hann. |
10. | Og Guð sagði við hann: ,,Nafn þitt er Jakob. Eigi skalt þú héðan af Jakob heita, heldur skal nafn þitt vera Ísrael.`` Og hann nefndi hann Ísrael. |
11. | Og Guð sagði við hann: ,,Ég er Almáttugur Guð. Ver þú frjósamur og auk kyn þitt. Þjóð, já fjöldi þjóða skal frá þér koma, og konungar skulu út ganga af lendum þínum. |
12. | Og landið, sem ég gaf Abraham og Ísak, mun ég gefa þér, og niðjum þínum eftir þig mun ég gefa landið.`` |
13. | Því næst sté Guð upp frá honum, þaðan sem hann talaði við hann. |
14. | Jakob reisti upp merki á þeim stað, sem Guð talaði við hann, merkisstein, og dreypti yfir hann dreypifórn og hellti yfir hann olíu. |
15. | Og Jakob nefndi staðinn, þar sem Guð talaði við hann, Betel. |
16. | Þeir tóku sig upp frá Betel. En er þeir áttu skammt eftir ófarið til Efrata, tók Rakel léttasótt og kom hart niður. |
17. | Og er hún kom svo hart niður í barnburðinum, sagði ljósmóðirin við hana: ,,Óttast þú ekki, því að nú eignast þú annan son.`` |
18. | Og er hún var í andlátinu, _ því að hún dó _, þá nefndi hún hann Benóní, en faðir hans nefndi hann Benjamín. |
19. | Því næst andaðist Rakel og var jörðuð við veginn til Efrata, það er Betlehem. |
20. | Jakob reisti minnismerki á leiði hennar. Þar er legsteinn Rakelar allt til þessa dags. |
21. | Ísrael hélt áfram ferðinni og sló tjöldum sínum hinumegin við Mígdal Eder. |
22. | Meðan Ísrael hafðist við í því byggðarlagi, bar svo við, að Rúben fór og lagðist með Bílu, hjákonu föður síns. Og Ísrael varð þess áskynja. Jakob átti tólf sonu. |
23. | Synir Leu: Rúben, frumgetinn son Jakobs, Símeon, Leví, Júda, Íssakar og Sebúlon. |
24. | Synir Rakelar: Jósef og Benjamín. |
25. | Synir Bílu, þernu Rakelar: Dan og Naftalí. |
26. | Synir Silpu, þernu Leu: Gað og Asser. Þetta eru synir Jakobs, sem honum fæddust í Mesópótamíu. |
27. | Og Jakob kom til Ísaks föður síns í Mamre við Kirjat Arba, það er Hebron, þar sem Abraham og Ísak höfðu dvalist sem útlendingar. |
28. | En dagar Ísaks voru hundrað og áttatíu ár.Og Ísak andaðist og dó og safnaðist til síns fólks, gamall og saddur lífdaga, og Esaú og Jakob synir hans jörðuðu hann. |
29. | Og Ísak andaðist og dó og safnaðist til síns fólks, gamall og saddur lífdaga, og Esaú og Jakob synir hans jörðuðu hann. |
← Genesis (35/50) → |