← Genesis (33/50) → |
1. | Jakob hóf upp augu sín og sá Esaú koma og með honum fjögur hundruð manns. Skipti hann þá börnunum niður á Leu og Rakel og báðar ambáttirnar. |
2. | Og hann lét ambáttirnar og þeirra börn vera fremst, þá Leu og hennar börn, og Rakel og Jósef aftast. |
3. | En sjálfur gekk hann á undan þeim og laut sjö sinnum til jarðar, uns hann kom fast að bróður sínum. |
4. | Þá hljóp Esaú á móti honum og faðmaði hann, lagði hendur um háls honum og kyssti hann, og þeir grétu. |
5. | Og Esaú leit upp og sá konurnar og börnin og mælti: ,,Hvernig stendur á þessu fólki, sem með þér er?`` Og hann svaraði: ,,Það eru börnin, sem Guð hefir af náð sinni gefið þjóni þínum.`` |
6. | Þá gengu fram ambáttirnar og börn þeirra og hneigðu sig. |
7. | Þá gekk og Lea fram og börn hennar og hneigðu sig, og síðan gengu Jósef og Rakel fram og hneigðu sig. |
8. | Esaú mælti: ,,Hvað skal allur þessi hópur, sem ég mætti?`` Jakob svaraði: ,,Að ég megi finna náð í augum herra míns.`` |
9. | Þá mælti Esaú: ,,Ég á nóg. Eig þú þitt, bróðir minn!`` |
10. | En Jakob sagði: ,,Eigi svo. Hafi ég fundið náð í augum þínum, þá þigg þú gjöfina af mér, því að þegar ég sá auglit þitt, var sem ég sæi Guðs auglit, og þú tókst náðarsamlega á móti mér. |
11. | Ég bið þig, að þú þiggir gjöf mína, sem þér var færð, því að Guð hefir verið mér náðugur og ég hefi allsnægtir.`` Og hann lagði að honum, svo að hann þá gjöfina. |
12. | Þá mælti Esaú: ,,Tökum okkur nú upp og höldum áfram, og skal ég fara á undan þér.`` |
13. | En hann svaraði honum: ,,Þú sér, herra minn, að börnin eru þróttlítil og að í ferðinni eru lambær og kýr með kálfum, og ræki ég þær of hart einn dag, þá mundi öll hjörðin drepast. |
14. | Fari herra minn á undan þjóni sínum, en ég mun halda á eftir í hægðum mínum, eins og fénaðurinn getur farið, sem ég rek, og eins og börnin geta farið, uns ég kem til herra míns í Seír.`` |
15. | Þá mælti Esaú: ,,Þá vil ég þó láta eftir hjá þér nokkra af þeim mönnum, sem með mér eru.`` Hann svaraði: ,,Hver þörf er á því? Lát mig aðeins finna náð fyrir augum herra míns.`` |
16. | Síðan fór Esaú þann sama dag leiðar sinnar heim aftur til Seír. |
17. | Og Jakob hélt áfram til Súkkót og byggði sér hús, og handa fénaði sínum gjörði hann laufskála. Fyrir því heitir staðurinn Súkkót. |
18. | Jakob kom heill á hófi til Síkemborgar, sem er í Kanaanlandi, er hann kom frá Mesópótamíu, og hann sló tjöldum fyrir utan borgina. |
19. | Hann keypti landspilduna, sem hann hafði tjaldað á, af sonum Hemors, föður Síkems, fyrir hundrað silfurpeninga.Og hann reisti þar altari og kallaði það El-elóhe-Ísrael. |
20. | Og hann reisti þar altari og kallaði það El-elóhe-Ísrael. |
← Genesis (33/50) → |