| ← Genesis (32/50) → |
| 1. | Jakob fór leiðar sinnar. Mættu honum þá englar Guðs. |
| 2. | Og er Jakob sá þá, mælti hann: ,,Þetta eru herbúðir Guðs.`` Og hann nefndi þennan stað Mahanaím. |
| 3. | Jakob gjörði sendimenn á undan sér til Esaú bróður síns til Seír-lands, Edómhéraðs. |
| 4. | Og hann bauð þeim og sagði: ,,Segið svo herra mínum Esaú: ,Svo segir þjónn þinn Jakob: Ég hefi dvalið hjá Laban og verið þar allt til þessa. |
| 5. | Og ég hefi eignast uxa, asna og sauði, þræla og ambáttir, og sendi ég nú til herra míns að láta hann vita það, svo að ég megi finna náð í augum þínum.``` |
| 6. | Sendimennirnir komu aftur til Jakobs og sögðu: ,,Vér komum til Esaú bróður þíns. Hann er sjálfur á leiðinni á móti þér og fjögur hundruð manns með honum.`` |
| 7. | Þá varð Jakob mjög hræddur og kvíðafullur. Og hann skipti mönnunum, sem með honum voru, og sauðunum, nautunum og úlföldunum í tvo flokka. |
| 8. | Og hann hugsaði: ,,Þó að Esaú ráðist á annan flokkinn og strádrepi hann, þá getur samt hinn flokkurinn komist undan.`` |
| 9. | Og Jakob sagði: ,,Guð Abrahams föður míns og Guð Ísaks föður míns, Drottinn, þú sem sagðir við mig: ,Hverf heim aftur til lands þíns og til ættfólks þíns, og ég mun gjöra vel við þig,` _ |
| 10. | ómaklegur er ég allrar þeirrar miskunnar og allrar þeirrar trúfesti, sem þú hefir auðsýnt þjóni þínum. Því að með stafinn minn einn fór ég þá yfir Jórdan, en nú á ég yfir tveim flokkum að ráða. |
| 11. | Æ, frelsa mig undan valdi bróður míns, undan valdi Esaú, því að ég óttast hann, að hann komi og höggvi oss niður sem hráviði. |
| 12. | Og þú hefir sjálfur sagt: ,Ég mun vissulega gjöra vel við þig og gjöra niðja þína sem sand á sjávarströndu, er eigi verður talinn fyrir fjölda sakir.``` |
| 13. | Og hann var þar þá nótt. Og hann tók gjöf handa Esaú bróður sínum af því, sem hann hafði eignast: |
| 14. | tvö hundruð geitur og tuttugu geithafra, tvö hundruð ásauðar og tuttugu hrúta, |
| 15. | þrjátíu úlfaldahryssur með folöldum, fjörutíu kýr og tíu griðunga, tuttugu ösnur og tíu ösnufola. |
| 16. | Og hann fékk þetta í hendur þjónum sínum, hverja hjörð út af fyrir sig, og mælti við þjóna sína: ,,Farið á undan mér og látið vera bil á milli hjarðanna.`` |
| 17. | Og þeim, sem fyrstur fór, bauð hann á þessa leið: ,,Þegar Esaú bróðir minn mætir þér og spyr þig og segir: ,Hvers maður ert þú og hvert ætlar þú að fara og hver á þetta, sem þú rekur á undan þér?` |
| 18. | þá skaltu segja: ,Þjónn þinn Jakob á það. Það er gjöf, sem hann sendir herra mínum Esaú. Og sjá, hann er sjálfur hér á eftir oss.``` |
| 19. | Á sömu leið bauð hann hinum öðrum og þriðja og öllum þeim, sem hjarðirnar ráku, og mælti: ,,Þannig skuluð þér tala við Esaú, þegar þér hittið hann. |
| 20. | Og þér skuluð einnig segja: ,Sjá, þjónn þinn Jakob kemur sjálfur á eftir oss.``` Því að hann hugsaði: ,,Ég ætla að blíðka hann með gjöfinni, sem fer á undan mér. Því næst vil ég sjá hann. Vera má, að hann taki mér þá blíðlega.`` |
| 21. | Þannig fór gjöfin á undan honum, en sjálfur var hann þessa nótt í herbúðunum. |
| 22. | Og Jakob lagði af stað um nóttina og tók báðar konur sínar og báðar ambáttir sínar og ellefu sonu sína og fór yfir Jabbok á vaðinu. |
| 23. | Og hann tók þau og fór með þau yfir ána. Og hann fór yfir um með allt, sem hann átti. |
| 24. | Jakob varð einn eftir, og maður nokkur glímdi við hann, uns dagsbrún rann upp. |
| 25. | Og er hann sá, að hann gat ekki fellt hann, laust hann hann á mjöðmina, svo að Jakob gekk úr augnakörlunum, er hann glímdi við hann. |
| 26. | Þá mælti hinn: ,,Slepptu mér, því að nú rennur upp dagsbrún.`` En hann svaraði: ,,Ég sleppi þér ekki, nema þú blessir mig.`` |
| 27. | Þá sagði hann við hann: ,,Hvað heitir þú?`` Hann svaraði: ,,Jakob.`` |
| 28. | Þá mælti hann: ,,Eigi skalt þú lengur Jakob heita, heldur Ísrael, því að þú hefir glímt við Guð og menn og fengið sigur.`` |
| 29. | Og Jakob spurði hann og mælti: ,,Seg mér heiti þitt.`` En hann svaraði: ,,Hvers vegna spyr þú mig að heiti?`` Og hann blessaði hann þar. |
| 30. | Og Jakob nefndi þennan stað Peníel, ,,því að ég hefi,`` kvað hann, ,,séð Guð augliti til auglitis og þó haldið lífi.`` |
| 31. | Og er hann fór frá Penúel, rann sólin upp. Var hann þá haltur í mjöðminni.Fyrir því eta Ísraelsmenn allt til þessa dags ekki sinina, sem er ofan á augnakarlinum, því að hann hitti mjöðm Jakobs þar sem sinin er undir. |
| 32. | Fyrir því eta Ísraelsmenn allt til þessa dags ekki sinina, sem er ofan á augnakarlinum, því að hann hitti mjöðm Jakobs þar sem sinin er undir. |
| ← Genesis (32/50) → |