← Genesis (29/50) → |
1. | Jakob hélt áfram ferð sinni og kom til lands austurbyggja. |
2. | Og er hann litaðist um, sjá, þá var þar brunnur á mörkinni, og sjá, þar lágu þrjár sauðahjarðir við hann, því að þeir voru vanir að vatna hjörðunum við þennan brunn. En steinn mikill lá yfir munna brunnsins. |
3. | Og er allar hjarðirnar voru þar saman reknar, veltu þeir steininum frá munna brunnsins og vötnuðu fénu, síðan létu þeir steininn aftur yfir munna brunnsins á sinn stað. |
4. | Þá sagði Jakob við þá: ,,Kæru bræður, hvaðan eruð þér?`` |
5. | Þeir svöruðu: ,,Vér erum frá Harran.`` Og hann mælti til þeirra: ,,Þekkið þér Laban Nahorsson?`` Þeir svöruðu: ,,Já, vér þekkjum hann.`` |
6. | Og hann mælti til þeirra: ,,Líður honum vel?`` Þeir svöruðu: ,,Honum líður vel. Og sjá, þarna kemur Rakel dóttir hans með féð.`` |
7. | Og hann mælti: ,,Sjá, enn er mikið dags eftir og ekki kominn tími til að reka saman fénaðinn. Brynnið fénu, farið síðan og haldið því á haga.`` |
8. | Þeir svöruðu: ,,Það getum vér ekki fyrr en allar hjarðirnar eru saman reknar, þá velta þeir steininum frá munna brunnsins, og þá brynnum vér fénu.`` |
9. | Áður en hann hafði lokið tali sínu við þá, kom Rakel með féð, sem faðir hennar átti, því að hún sat hjá. |
10. | En er Jakob sá Rakel, dóttur Labans móðurbróður síns, og fé Labans móðurbróður síns, þá fór hann til og velti steininum frá munna brunnsins og vatnaði fé Labans móðurbróður síns. |
11. | Og Jakob kyssti Rakel og tók að gráta hástöfum. |
12. | Og Jakob sagði Rakel, að hann væri frændi föður hennar og að hann væri sonur Rebekku. En hún hljóp og sagði þetta föður sínum. |
13. | En er Laban fékk fregnina um Jakob systurson sinn, gekk hann skjótlega á móti honum, faðmaði hann að sér og minntist við hann, og leiddi hann inn í hús sitt. En hann sagði Laban alla sögu sína. |
14. | Þá sagði Laban við hann: ,,Sannlega ert þú hold mitt og bein!`` Og hann var hjá honum heilan mánuð. |
15. | Laban sagði við Jakob: ,,Skyldir þú þjóna mér fyrir ekki neitt, þó að þú sért frændi minn? Seg mér, hvert kaup þitt skuli vera.`` |
16. | En Laban átti tvær dætur. Hét hin eldri Lea, en Rakel hin yngri. |
17. | Og Lea var daufeygð, en Rakel var bæði vel vaxin og fríð sýnum. |
18. | Og Jakob elskaði Rakel og sagði: ,,Ég vil þjóna þér í sjö ár fyrir Rakel, yngri dóttur þína.`` |
19. | Laban svaraði: ,,Betra er að ég gefi þér hana en að ég gefi hana öðrum manni. Ver þú kyrr hjá mér.`` |
20. | Síðan vann Jakob fyrir Rakel í sjö ár, og þótti honum sem fáir dagar væru, sakir ástar þeirrar, er hann bar til hennar. |
21. | Og Jakob sagði við Laban: ,,Fá mér nú konu mína, því að minn ákveðni tími er liðinn, að ég megi ganga inn til hennar.`` |
22. | Þá bauð Laban til sín öllum mönnum í þeim stað og hélt veislu. |
23. | En um kveldið tók hann Leu dóttur sína og leiddi hana inn til hans, og hann gekk í sæng með henni. |
24. | Og Laban fékk henni Silpu ambátt sína, að hún væri þerna Leu dóttur hans. |
25. | En um morguninn, sjá, þá var það Lea. Og hann sagði við Laban: ,,Hví hefir þú gjört mér þetta? Hefi ég ekki unnið hjá þér fyrir Rakel? Hví hefir þú þá svikið mig?`` |
26. | Og Laban sagði: ,,Það er ekki siður í voru landi að gifta fyrr frá sér yngri dótturina en hina eldri. |
27. | Enda þú út brúðkaupsviku þessarar, þá skulum vér einnig gefa þér hina fyrir þá vinnu, sem þú munt vinna hjá mér í enn önnur sjö ár.`` |
28. | Og Jakob gjörði svo og endaði út vikuna með henni. Þá gifti hann honum Rakel dóttur sína. |
29. | Og Laban fékk Rakel dóttur sinni Bílu ambátt sína fyrir þernu. |
30. | Og hann gekk einnig í sæng með Rakel og hann elskaði Rakel meira en Leu. Og hann vann hjá honum í enn önnur sjö ár. |
31. | Er Drottinn sá, að Lea var fyrirlitin, opnaði hann móðurlíf hennar, en Rakel var óbyrja. |
32. | Og Lea varð þunguð og ól son og nefndi hann Rúben, því að hún sagði: ,,Drottinn hefir séð raunir mínar. Nú mun bóndi minn elska mig.`` |
33. | Og hún varð þunguð í annað sinn og ól son. Þá sagði hún: ,,Drottinn hefir heyrt að ég er fyrirlitin. Fyrir því hefir hann einnig gefið mér þennan son.`` Og hún nefndi hann Símeon. |
34. | Og enn varð hún þunguð og ól son. Þá sagði hún: ,,Nú mun bóndi minn loks hænast að mér, því að ég hefi fætt honum þrjá sonu.`` Fyrir því nefndi hún hann Leví.Og enn varð hún þunguð og ól son og sagði: ,,Nú vil ég vegsama Drottin.`` Fyrir því nefndi hún hann Júda. Og hún lét af að eiga börn. |
35. | Og enn varð hún þunguð og ól son og sagði: ,,Nú vil ég vegsama Drottin.`` Fyrir því nefndi hún hann Júda. Og hún lét af að eiga börn. |
← Genesis (29/50) → |