← Genesis (21/50) → |
1. | Drottinn vitjaði Söru, eins og hann hafði lofað, og Drottinn gjörði við Söru eins og hann hafði sagt. |
2. | Og Sara varð þunguð og fæddi Abraham son í elli hans, um þær mundir, sem Guð hafði sagt honum. |
3. | Og Abraham gaf nafn syni sínum, þeim er honum fæddist, sem Sara fæddi honum, og kallaði hann Ísak. |
4. | Abraham umskar Ísak son sinn, þá er hann var átta daga gamall, eins og Guð hafði boðið honum. |
5. | En Abraham var hundrað ára gamall, þegar Ísak sonur hans fæddist honum. |
6. | Sara sagði: ,,Guð hefir gjört mig að athlægi. Hver sem heyrir þetta, mun hlæja að mér.`` |
7. | Og hún mælti: ,,Hver skyldi hafa sagt við Abraham, að Sara mundi hafa börn á brjósti, og þó hefi ég alið honum son í elli hans.`` |
8. | Sveinninn óx og var vaninn af brjósti, og Abraham gjörði mikla veislu þann dag, sem Ísak var tekinn af brjósti. |
9. | En Sara sá son Hagar hinnar egypsku, er hún hafði fætt Abraham, að leik með Ísak, syni hennar. |
10. | Þá sagði hún við Abraham: ,,Rek þú burt ambátt þessa og son hennar, því að ekki skal sonur þessarar ambáttar taka arf með syni mínum, með Ísak.`` |
11. | En Abraham sárnaði þetta mjög vegna sonar síns. |
12. | Þá sagði Guð við Abraham: ,,Lát þig ekki taka sárt til sveinsins og ambáttar þinnar. Hlýð þú Söru í öllu því, er hún segir þér, því að afkomendur þínir munu verða kenndir við Ísak. |
13. | En ég mun einnig gjöra ambáttarsoninn að þjóð, því að hann er þitt afkvæmi.`` |
14. | Og Abraham reis árla næsta morgun, tók brauð og vatnsbelg og fékk Hagar, en sveininn lagði hann á herðar henni og lét hana í burtu fara. Hún hélt þá af stað og reikaði um eyðimörkina Beerseba. |
15. | En er vatnið var þrotið á leglinum, lagði hún sveininn inn undir einn runnann. |
16. | Því næst gekk hún burt og settist þar gegnt við, svo sem í örskots fjarlægð, því að hún sagði: ,,Ég get ekki horft á að barnið deyi.`` Og hún settist þar gegnt við og tók að gráta hástöfum. |
17. | En er Guð heyrði hljóð sveinsins, þá kallaði engill Guðs til Hagar af himni og mælti til hennar: ,,Hvað gengur að þér, Hagar? Vertu óhrædd, því að Guð hefir heyrt til sveinsins, þar sem hann liggur. |
18. | Statt þú upp, reistu sveininn á fætur og leiddu hann þér við hönd, því að ég mun gjöra hann að mikilli þjóð.`` |
19. | Og Guð lauk upp augum hennar, svo að hún sá vatnsbrunn. Fór hún þá og fyllti belginn vatni og gaf sveininum að drekka. |
20. | Og Guð var með sveininum, og hann óx upp og hafðist við í eyðimörkinni og gjörðist bogmaður. |
21. | Og hann hafðist við í Paraneyðimörk, og móðir hans tók honum konu af Egyptalandi. |
22. | Um sömu mundir bar svo til, að Abímelek og hershöfðingi hans Píkól mæltu þannig við Abraham: ,,Guð er með þér í öllu, sem þú gjörir. |
23. | Vinn mér nú eið að því hér við Guð, að þú skulir eigi breyta sviksamlega, hvorki við mig né afkomendur mína. Þú skalt auðsýna mér og landinu, sem þú dvelst í sem útlendingur, hina sömu góðsemi og ég hefi auðsýnt þér.`` |
24. | Og Abraham mælti: ,,Ég skal vinna þér eið að því.`` |
25. | En Abraham átaldi Abímelek fyrir vatnsbrunninn, sem þrælar Abímeleks höfðu tekið með ofríki. |
26. | Þá sagði Abímelek: ,,Ekki veit ég, hver það hefir gjört. Hvorki hefir þú sagt mér það né hefi ég heldur heyrt það fyrr en í dag.`` |
27. | Þá tók Abraham sauði og naut og gaf Abímelek, og þeir gjörðu sáttmála sín í milli. |
28. | Og Abraham tók frá sjö gimbrar af hjörðinni. |
29. | Þá mælti Abímelek til Abrahams: ,,Hvað skulu þessar sjö gimbrar, sem þú hefir tekið frá?`` |
30. | Hann svaraði: ,,Við þessum sjö gimbrum skalt þú taka af minni hendi, til vitnis um að ég hefi grafið þennan brunn.`` |
31. | Þess vegna heitir sá staður Beerseba, af því að þeir sóru þar báðir. |
32. | Þannig gjörðu þeir sáttmála í Beerseba. Síðan tók Abímelek sig upp og Píkól hershöfðingi hans og sneru aftur til Filistalands. |
33. | Abraham gróðursetti tamarisk-runn í Beerseba og ákallaði þar nafn Drottins, Hins Eilífa Guðs.Og Abraham dvaldist lengi í Filistalandi. |
34. | Og Abraham dvaldist lengi í Filistalandi. |
← Genesis (21/50) → |