← Genesis (16/50) → |
1. | Saraí kona Abrams ól honum ekki börn. En hún hafði egypska ambátt, sem hét Hagar. |
2. | Og Saraí sagði við Abram: ,,Heyrðu, Drottinn hefir varnað mér barngetnaðar. Gakk því inn til ambáttar minnar, vera má að hún afli mér afkvæmis.`` Og Abram hlýddi orðum Saraí. |
3. | Saraí, kona Abrams, tók Hagar hina egypsku, ambátt sína, er Abram hafði búið tíu ár í Kanaanlandi, og gaf manni sínum Abram hana fyrir konu. |
4. | Og hann gekk inn til Hagar, og hún varð þunguð. En er hún vissi, að hún var með barni, fyrirleit hún húsmóður sína. |
5. | Þá sagði Saraí við Abram: ,,Sá óréttur, sem ég verð að þola, bitni á þér! Ég hefi gefið ambátt mína þér í faðm, en er hún nú veit, að hún er með barni, fyrirlítur hún mig. Drottinn dæmi milli mín og þín!`` |
6. | En Abram sagði við Saraí: ,,Sjá, ambátt þín er á þínu valdi. Gjör þú við hana sem þér gott þykir.`` Þá þjáði Saraí hana, svo að hún flýði í burtu frá henni. |
7. | Þá fann engill Drottins hana hjá vatnslind í eyðimörkinni, hjá lindinni á veginum til Súr. |
8. | Og hann mælti: ,,Hagar, ambátt Saraí, hvaðan kemur þú og hvert ætlar þú að fara?`` Hún svaraði: ,,Ég er á flótta frá Saraí, húsmóður minni.`` |
9. | Og engill Drottins sagði við hana: ,,Hverf þú heim aftur til húsmóður þinnar og gef þig undir hennar vald.`` |
10. | Engill Drottins sagði við hana: ,,Ég mun margfalda afkvæmi þitt, svo að það verði eigi talið fyrir fjölda sakir.`` |
11. | Engill Drottins sagði við hana: ,,Sjá, þú ert þunguð og munt son fæða. Hans nafn skalt þú kalla Ísmael, því að Drottinn hefir heyrt kveinstafi þína. |
12. | Hann mun verða maður ólmur sem villiasni, hönd hans mun vera uppi á móti hverjum manni og hvers manns hönd uppi á móti honum, og hann mun búa andspænis öllum bræðrum sínum.`` |
13. | Og hún nefndi Drottin, sem við hana talaði, ,,Þú ert Guð, sem sér.`` Því að hún sagði: ,,Ætli ég hafi einnig hér horft á eftir honum, sem hefir séð mig?`` |
14. | Þess vegna heitir brunnurinn Beer-lahaj-róí, en hann er á milli Kades og Bered. |
15. | Hagar ól Abram son, og Abram nefndi son sinn, sem Hagar ól honum, Ísmael.En Abram var áttatíu og sex ára gamall, þegar Hagar ól honum Ísmael. |
16. | En Abram var áttatíu og sex ára gamall, þegar Hagar ól honum Ísmael. |
← Genesis (16/50) → |