← Genesis (15/50) → |
1. | Eftir þessa atburði kom orð Drottins til Abrams í sýn: ,,Óttast þú ekki, Abram, ég er þinn skjöldur, laun þín munu mjög mikil verða.`` |
2. | Og Abram mælti: ,,Drottinn Guð, hvað ætlar þú að gefa mér? Ég fer héðan barnlaus, og Elíeser frá Damaskus verður erfingi húss míns.`` |
3. | Og Abram mælti: ,,Sjá, mér hefir þú ekkert afkvæmi gefið, og húskarl minn mun erfa mig.`` |
4. | Og sjá, orð Drottins kom til hans: ,,Ekki skal hann erfa þig, heldur sá, sem af þér mun getinn verða, hann mun erfa þig.`` |
5. | Og hann leiddi hann út og mælti: ,,Lít þú upp til himins og tel þú stjörnurnar, ef þú getur talið þær.`` Og hann sagði við hann: ,,Svo margir skulu niðjar þínir verða.`` |
6. | Og Abram trúði Drottni, og hann reiknaði honum það til réttlætis. |
7. | Þá sagði hann við hann: ,,Ég er Drottinn, sem leiddi þig út frá Úr í Kaldeu til þess að gefa þér þetta land til eignar.`` |
8. | Og Abram mælti: ,,Drottinn Guð, hvað skal ég hafa til marks um, að ég muni eignast það?`` |
9. | Og hann mælti við hann: ,,Fær mér þrevetra kvígu, þrevetra geit, þrevetran hrút, turtildúfu og unga dúfu.`` |
10. | Og hann færði honum öll þessi dýr og hlutaði þau sundur í miðju og lagði hvern hlutinn gegnt öðrum. En fuglana hlutaði hann ekki sundur. |
11. | Og hræfuglar flugu að ætinu, en Abram fældi þá burt. |
12. | Er sól var að renna, leið þungur svefnhöfgi á Abram, og sjá: felmti og miklu myrkri sló yfir hann. |
13. | Þá sagði hann við Abram: ,,Vit það fyrir víst, að niðjar þínir munu lifa sem útlendingar í landi, sem þeir eiga ekki, og þeir munu þjóna þeim, og þeir þjá þá í fjögur hundruð ár. |
14. | En þá þjóð, sem þeir munu þjóna, mun ég dæma, og síðar munu þeir þaðan fara með mikinn fjárhlut. |
15. | En þú skalt fara í friði til feðra þinna, þú skalt verða jarðaður í góðri elli. |
16. | Hinn fjórði ættliður þeirra mun koma hingað aftur, því að enn hafa Amorítar eigi fyllt mæli synda sinna.`` |
17. | En er sól var runnin og myrkt var orðið, kom reykur sem úr ofni og eldslogi, er leið fram á milli þessara fórnarstykkja. |
18. | Á þeim degi gjörði Drottinn sáttmála við Abram og mælti: ,,Þínu afkvæmi gef ég þetta land, frá Egyptalandsánni til árinnar miklu, árinnar Efrat: |
19. | land Keníta, Kenissíta, Kadmóníta, |
20. | Hetíta, Peresíta, Refaíta,Amoríta, Kanaaníta, Gírgasíta og Jebúsíta.`` |
21. | Amoríta, Kanaaníta, Gírgasíta og Jebúsíta.`` |
← Genesis (15/50) → |