← Genesis (12/50) → |
1. | Drottinn sagði við Abram: ,,Far þú burt úr landi þínu og frá ættfólki þínu og úr húsi föður þíns, til landsins, sem ég mun vísa þér á. |
2. | Ég mun gjöra þig að mikilli þjóð og blessa þig og gjöra nafn þitt mikið, og blessun skalt þú vera. |
3. | Ég mun blessa þá, sem þig blessa, en bölva þeim, sem þér formælir, og af þér skulu allar ættkvíslir jarðarinnar blessun hljóta.`` |
4. | Þá lagði Abram af stað, eins og Drottinn hafði sagt honum, og Lot fór með honum. En Abram var sjötíu og fimm ára að aldri, er hann fór úr Harran. |
5. | Abram tók Saraí konu sína og Lot bróðurson sinn og alla fjárhluti, sem þeir höfðu eignast, og þær sálir, er þeir höfðu fengið í Harran. Og þeir lögðu af stað og héldu til Kanaanlands. Þeir komu til Kanaanlands. |
6. | Og Abram fór um landið, allt þangað er Síkem heitir, allt til Mórelundar. En þá voru Kanaanítar í landinu. |
7. | Þá birtist Drottinn Abram og sagði við hann: ,,Niðjum þínum vil ég gefa þetta land.`` Og hann reisti þar altari Drottni, sem hafði birst honum. |
8. | Þaðan hélt hann til fjallanna fyrir austan Betel og setti þar tjöld sín, svo að Betel var í vestur, en Aí í austur. Og hann reisti þar Drottni altari og ákallaði nafn Drottins. |
9. | Og Abram færði sig smátt og smátt til Suðurlandsins. |
10. | En hallæri varð í landinu. Þá fór Abram til Egyptalands til að dveljast þar um hríð, því að hallærið var mikið í landinu. |
11. | Og er hann var kominn langt á leið til Egyptalands, sagði hann við Saraí konu sína: ,,Sjá, ég veit að þú ert kona fríð sýnum. |
12. | Það mun því fara svo, að þegar Egyptar sjá þig, þá munu þeir segja: ,Þetta er kona hans,` og drepa mig, en þig munu þeir láta lífi halda. |
13. | Segðu fyrir hvern mun, að þú sért systir mín, svo að mér megi líða vel fyrir þínar sakir og ég megi lífi halda þín vegna.`` |
14. | Er Abram kom til Egyptalands, sáu Egyptar, að konan var mjög fríð. |
15. | Og höfðingjar Faraós sáu hana og létu mikið af henni við Faraó, og konan var tekin í hús Faraós. |
16. | Og hann gjörði vel við Abram hennar vegna, og hann eignaðist sauði, naut og asna, þræla og ambáttir, ösnur og úlfalda. |
17. | En Drottinn þjáði Faraó og hús hans með miklum plágum vegna Saraí, konu Abrams. |
18. | Þá kallaði Faraó Abram til sín og mælti: ,,Hví hefir þú gjört mér þetta? Hví sagðir þú mér ekki, að hún væri kona þín? |
19. | Hví sagðir þú: ,Hún er systir mín,` svo að ég tók hana mér fyrir konu? En þarna er nú konan þín, tak þú hana og far burt.``Og Faraó skipaði svo fyrir um Abram, að menn sínir skyldu fylgja honum á braut og konu hans með öllu, sem hann átti. |
20. | Og Faraó skipaði svo fyrir um Abram, að menn sínir skyldu fylgja honum á braut og konu hans með öllu, sem hann átti. |
← Genesis (12/50) → |