← Galatians (5/6) → |
1. | Til frelsis frelsaði Kristur oss. Standið því stöðugir og látið ekki aftur leggja á yður ánauðarok. |
2. | Takið eftir því, sem ég, Páll, segi yður: Ef þér látið umskerast, þá gagnar Kristur yður ekkert. |
3. | Og enn vitna ég fyrir hverjum manni, sem lætur umskerast: Hann er skyldur til að halda allt lögmálið. |
4. | Þér eruð orðnir viðskila við Krist, þér sem ætlið að réttlætast með lögmáli. Þér eruð fallnir úr náðinni. |
5. | En vér væntum í andanum að öðlast af trúnni réttlætinguna, sem er von vor. |
6. | Í Kristi Jesú er ekkert komið undir umskurn né yfirhúð, heldur undir trú, sem starfar í kærleika. |
7. | Þér hlupuð vel. Hver hefur hindrað yður í að hlýða sannleikanum? |
8. | Þær fortölur voru ekki frá honum, sem kallaði yður. |
9. | Lítið súrdeig sýrir allt deigið. |
10. | Ég hef það traust til yðar í Drottni, að þér verðið sama sinnis og ég. Sá sem truflar yður mun bera sinn dóm, hver sem hann svo er. |
11. | En hvað mig snertir, bræður, ef ég er enn þá að prédika umskurn, hví er þá enn verið að ofsækja mig? Þá væri hneyksli krossins tekið burt. |
12. | Vel mættu þeir, sem koma yður í uppnám, aflima sig. |
13. | Þér voruð, bræður, kallaðir til frelsis. Notið aðeins ekki frelsið til færis fyrir holdið, heldur þjónið hver öðrum í kærleika. |
14. | Allt lögmálið er uppfyllt með þessu eina boðorði: ,,Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.`` |
15. | En ef þér bítist og etið hver annan upp, þá gætið þess, að þér tortímist ekki hver fyrir öðrum. |
16. | En ég segi: Lifið í andanum, og þá fullnægið þér alls ekki girnd holdsins. |
17. | Holdið girnist gegn andanum, og andinn gegn holdinu. Þau standa hvort gegn öðru, til þess að þér gjörið ekki það, sem þér viljið. |
18. | En ef þér leiðist af andanum, þá eruð þér ekki undir lögmáli. |
19. | Holdsins verk eru augljós: Frillulífi, óhreinleiki, saurlífi, |
20. | skurðgoðadýrkun, fjölkynngi, fjandskapur, deilur, metingur, reiði, eigingirni, tvídrægni, flokkadráttur, |
21. | öfund, ofdrykkja, svall og annað þessu líkt. Og það segi ég yður fyrir, eins og ég hef áður sagt, að þeir, sem slíkt gjöra, munu ekki erfa Guðs ríki. |
22. | En ávöxtur andans er: Kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska, |
23. | hógværð og bindindi. Gegn slíku er lögmálið ekki. |
24. | En þeir, sem tilheyra Kristi Jesú, hafa krossfest holdið með ástríðum þess og girndum. |
25. | Fyrst andinn er líf vort skulum vér lifa í andanum!Verum ekki hégómagjarnir, svo að vér áreitum hver annan og öfundum hver annan. |
26. | Verum ekki hégómagjarnir, svo að vér áreitum hver annan og öfundum hver annan. |
← Galatians (5/6) → |