← Galatians (3/6) → |
1. | Þér óskynsömu Galatar! Hver hefur töfrað yður? Þér hafið þó fengið skýra mynd af Jesú Kristi á krossinum, málaða fyrir augum yðar. |
2. | Um þetta eitt vil ég fræðast af yður: Öðluðust þér andann fyrir lögmálsverk eða við að hlýða á fagnaðarerindið og trúa? |
3. | Eruð þér svo óskynsamir? Þér sem byrjuðuð í anda, ætlið þér nú að enda í holdi? |
4. | Hafið þér til einskis reynt svo mikið? _ ef það þá er til einskis! |
5. | Hvað um það, _ sá sem veitir yður andann og framkvæmir máttarverk meðal yðar, gjörir hann það vegna lögmálsverka yðar eða vegna þess að þér heyrið og trúið? |
6. | Svo var og um Abraham, ,,hann trúði Guði, og það var honum til réttlætis reiknað.`` |
7. | Þér sjáið þá, að þeir sem byggja á trúnni, þeir eru einmitt synir Abrahams. |
8. | Ritningin sá það fyrir, að Guð mundi réttlæta heiðingjana fyrir trú, og því boðaði hún Abraham fyrirfram þann fagnaðarboðskap: ,,Af þér skulu allar þjóðir blessun hljóta.`` |
9. | Þannig hljóta þeir, sem byggja á trúnni, blessun ásamt hinum trúaða Abraham. |
10. | En bölvun hvílir á öllum þeim, sem byggja á lögmálsverkum, því að ritað er: ,,Bölvaður er sá, sem ekki heldur fast við allt það, sem í lögmálsbókinni er ritað, og breytir eftir því.`` |
11. | En það er augljóst að fyrir Guði réttlætist enginn með lögmáli, því að ,,hinn réttláti mun lifa fyrir trú.`` |
12. | En lögmálið spyr ekki um trú. Það segir: ,,Sá, sem breytir eftir boðum þess, mun lifa fyrir þau.`` |
13. | Kristur keypti oss undan bölvun lögmálsins með því að verða bölvun fyrir oss, því að ritað er: ,,Bölvaður er hver sá, sem á tré hangir.`` |
14. | Þannig skyldi heiðingjunum hlotnast blessun Abrahams í Kristi Jesú, og vér öðlast fyrir trúna andann, sem fyrirheitið var. |
15. | Bræður, ég tek dæmi úr mannlegu lífi: Enginn ónýtir eða eykur við staðfesta arfleiðsluskrá, enda þótt hún sé aðeins af manni gjörð. |
16. | Nú voru fyrirheitin gefin Abraham og afkvæmi hans, _ þar stendur ekki ,,og afkvæmum``, eins og margir ættu í hlut, heldur ,,og afkvæmi þínu``, eins og þegar um einn er að ræða, og það er Kristur. |
17. | Með þessu vildi ég sagt hafa: Sáttmála, sem áður var staðfestur af Guði, getur lögmálið, sem kom fjögur hundruð og þrjátíu árum síðar, ekki ónýtt, svo að það felli fyrirheitið úr gildi. |
18. | Sé því þá svo farið, að arfurinn fáist með lögmáli, þá fæst hann ekki framar með fyrirheiti, en Guð veitti Abraham náð sína með fyrirheiti. |
19. | Hvað er þá lögmálið? Vegna afbrotanna var því bætt við, þangað til afkvæmið kæmi, sem fyrirheitið hljóðaði um. Fyrir umsýslan engla er það til orðið, fyrir tilstilli meðalgangara. |
20. | En meðalgangara gjörist ekki þörf þar sem einn á í hlut, en Guð er einn. |
21. | Er þá lögmálið gegn fyrirheitum Guðs? Fjarri fer því. Ef vér hefðum fengið lögmál, sem veitt gæti líf, þá fengist réttlætið vissulega með lögmáli. |
22. | En ritningin segir, að allt sé hneppt undir vald syndarinnar, til þess að fyrirheitið veitist þeim, sem trúa, fyrir trú á Jesú Krist. |
23. | Áður en trúin kom, vorum vér í gæslu lögmálsins innilokaðir, þangað til trúin, sem í vændum var, opinberaðist. |
24. | Þannig hefur lögmálið orðið tyftari vor, þangað til Kristur kom, til þess að vér réttlættumst af trú. |
25. | En nú, eftir að trúin er komin, erum vér ekki lengur undir tyftara. |
26. | Þér eruð allir Guðs börn fyrir trúna á Krist Jesú. |
27. | Allir þér, sem eruð skírðir til samfélags við Krist, þér hafið íklæðst Kristi. |
28. | Hér er enginn Gyðingur né grískur, þræll né frjáls maður, karl né kona. Þér eruð allir eitt í Kristi Jesú.En ef þér tilheyrið Kristi, þá eruð þér niðjar Abrahams, erfingjar eftir fyrirheitinu. |
29. | En ef þér tilheyrið Kristi, þá eruð þér niðjar Abrahams, erfingjar eftir fyrirheitinu. |
← Galatians (3/6) → |