← Ezra (2/10) → |
1. | Þessir eru þeir úr skattlandinu, er heim fóru úr herleiðingarútlegðinni, þeir er Nebúkadnesar konungur í Babýlon hafði herleitt til Babýlon og nú sneru aftur til Jerúsalem og Júda, hver til sinnar borgar, |
2. | þeir sem komu með Serúbabel, Jósúa, Nehemía, Seraja, Reelja, Mordekai, Bilsan, Mispar, Bigvaí, Rehúm og Baana. Talan á mönnum Ísraelslýðs var: |
3. | Niðjar Parós: 2.172. |
4. | Niðjar Sefatja: 372. |
5. | Niðjar Ara: 775. |
6. | Niðjar Pahat Móabs, sem sé niðjar Jesúa og Jóabs: 2.812. |
7. | Niðjar Elams: 1.254. |
8. | Niðjar Sattú: 945. |
9. | Niðjar Sakkaí: 760. |
10. | Niðjar Baní: 642. |
11. | Niðjar Bebaí: 623. |
12. | Niðjar Asgads: 1.222. |
13. | Niðjar Adóníkams: 666. |
14. | Niðjar Bigvaí: 2.056. |
15. | Niðjar Adíns: 454. |
16. | Niðjar Aters, frá Hiskía: 98. |
17. | Niðjar Besaí: 323. |
18. | Niðjar Jóra: 112. |
19. | Niðjar Hasúms: 223. |
20. | Niðjar Gibbars: 95. |
21. | Ættaðir frá Betlehem: 123. |
22. | Menn frá Netófa: 56. |
23. | Menn frá Anatót: 128. |
24. | Ættaðir frá Asmavet: 42. |
25. | Ættaðir frá Kirjat Jearím, Kefíra og Beerót: 743. |
26. | Ættaðir frá Rama og Geba: 621. |
27. | Menn frá Mikmas: 122. |
28. | Menn frá Betel og Aí: 223. |
29. | Ættaðir frá Nebó: 52. |
30. | Niðjar Magbis: 156. |
31. | Niðjar Elams hins annars: 1.254. |
32. | Niðjar Haríms: 320. |
33. | Ættaðir frá Lód, Hadíd og Ónó: 725. |
34. | Ættaðir frá Jeríkó: 345. |
35. | Ættaðir frá Senaa: 3.630. |
36. | Prestarnir: Niðjar Jedaja, af ætt Jesúa: 973. |
37. | Niðjar Immers: 1.052. |
38. | Niðjar Pashúrs: 1.247. |
39. | Niðjar Haríms: 1.017. |
40. | Levítarnir: Niðjar Jesúa og Kadmíels, af niðjum Hódavja: 74. |
41. | Söngvararnir: niðjar Asafs: 128. |
42. | Niðjar hliðvarðanna: niðjar Sallúms, niðjar Aters, niðjar Talmóns, niðjar Akúbs, niðjar Hatíta, niðjar Sóbaí _ alls 139. |
43. | Musterisþjónarnir: niðjar Síha, niðjar Hasúfa, niðjar Tabbaóts, |
44. | niðjar Kerós, niðjar Síaha, niðjar Padóns, |
45. | niðjar Lebana, niðjar Hagaba, niðjar Akúbs, |
46. | niðjar Hagabs, niðjar Salmaí, niðjar Hanans, |
47. | niðjar Giddels, niðjar Gahars, niðjar Reaja, |
48. | niðjar Resíns, niðjar Nekóda, niðjar Gassams, |
49. | niðjar Ússa, niðjar Pasea, niðjar Besaí, |
50. | niðjar Asna, niðjar Meúníta, niðjar Nefísíta, |
51. | niðjar Bakbúks, niðjar Hakúfa, niðjar Harhúrs, |
52. | niðjar Baselúts, niðjar Mehída, niðjar Harsa, |
53. | niðjar Barkós, niðjar Sísera, niðjar Tema, |
54. | niðjar Nesía, niðjar Hatífa. |
55. | Niðjar þræla Salómons: niðjar Sótaí, niðjar Sóferets, niðjar Perúda, |
56. | niðjar Jaala, niðjar Darkóns, niðjar Giddels, |
57. | niðjar Sefatja, niðjar Hattils, niðjar Pókeret Hassebaíms, niðjar Ami. |
58. | Allir musterisþjónarnir og niðjar þræla Salómons voru 392. |
59. | Og þessir eru þeir, sem fóru heim frá Tel Mela, Tel Harsa, Kerúb, Addan, Immer, en kunnu eigi að greina ætt sína og uppruna, hvort þeir væru komnir af Ísrael: |
60. | Niðjar Delaja, niðjar Tobía, niðjar Nekóda: 652. |
61. | Og af niðjum prestanna: Niðjar Habaja, niðjar Hakkós, niðjar Barsillaí, er gengið hafði að eiga eina af dætrum Barsillaí Gíleaðíta og nefndur hafði verið nafni þeirra. |
62. | Þessir leituðu að ættartölum sínum, en þær fundust ekki. Var þeim því hrundið frá prestdómi. |
63. | Og landstjórinn sagði þeim, að þeir mættu ekki eta af hinu háheilaga, þar til er kæmi fram prestur, er kynni að fara með úrím og túmmím. |
64. | Allur söfnuðurinn var til samans 42.360, |
65. | auk þræla þeirra og ambátta, er voru 7.337. Þeir höfðu 200 söngvara og söngkonur. |
66. | Hestar þeirra voru 736, múlar 245, |
67. | úlfaldar 435, asnar 6.720. |
68. | Og sumir ætthöfðingjanna gáfu, er þeir komu til musteris Drottins í Jerúsalem, sjálfviljagjafir til musteris Guðs, til þess að það yrði reist á sínum stað. |
69. | Gáfu þeir hver eftir efnum sínum í byggingarsjóðinn: í gulli 6.100 daríka og í silfri 5.000 mínur, og 100 prestserki.Þannig settust prestarnir og levítarnir og nokkrir af lýðnum og söngvararnir og hliðverðirnir og musterisþjónarnir að í borgum sínum. Og allur Ísrael tók sér bólfestu í borgum sínum. |
70. | Þannig settust prestarnir og levítarnir og nokkrir af lýðnum og söngvararnir og hliðverðirnir og musterisþjónarnir að í borgum sínum. Og allur Ísrael tók sér bólfestu í borgum sínum. |
← Ezra (2/10) → |