Ezra (1/10) → |
1. | Á fyrsta ríkisári Kýrusar Persakonungs blés Drottinn honum því í brjóst _ til þess að orð Drottins fyrir munn Jeremía rættust _ að láta boð út ganga um allt ríki sitt, og það í konungsbréfi, á þessa leið: |
2. | ,,Svo segir Kýrus Persakonungur: Öll konungsríki jarðarinnar hefir Drottinn, Guð himnanna, gefið mér, og hann hefir skipað mér að reisa sér musteri í Jerúsalem í Júda. |
3. | Hver sá meðal yðar, sem tilheyrir þjóð hans, með honum sé Guð hans, og hann fari heim til Jerúsalem í Júda og reisi musteri Drottins, Ísraels Guðs. Hann er sá Guð, sem býr í Jerúsalem. |
4. | Og hvern þann, sem enn er eftir, á sérhverjum þeim stað þar sem hann dvelst sem útlendingur, hann skulu menn á þeim stað styrkja með silfri og gulli og lausafé og kvikfénaði, auk sjálfviljagjafa til Guðs musteris í Jerúsalem.`` |
5. | Þá tóku ætthöfðingjar Júda og Benjamíns og prestarnir og levítarnir sig upp _ allir þeir, er Guð hafði blásið því í brjóst að fara og reisa musteri Drottins í Jerúsalem. |
6. | Og allir nágrannar þeirra hjálpuðu þeim um áhöld úr silfri, um gull, um lausafé og um kvikfénað og um gersemar, auk alls þess, er menn gáfu sjálfviljuglega. |
7. | Kýrus konungur lét af hendi kerin úr musteri Drottins, þau er Nebúkadnesar hafði flutt burt frá Jerúsalem og sett í musteri guðs síns. |
8. | Kýrus Persakonungur fékk þau í hendur Mítredat féhirði, og hann taldi þau út í hendur Sesbasar, höfðingja Júdaættkvíslar. |
9. | En talan á þeim var þessi: 30 gullskálar, 1.000 silfurskálar, 29 pönnur, |
10. | 30 könnur af gulli, silfurkönnur minni háttar: 410, önnur ker 1.000 _öll kerin af gulli og silfri til samans 5.400. Allt þetta flutti Sesbasar með sér, þá er hinir herleiddu voru fluttir frá Babýlon heim til Jerúsalem. |
11. | öll kerin af gulli og silfri til samans 5.400. Allt þetta flutti Sesbasar með sér, þá er hinir herleiddu voru fluttir frá Babýlon heim til Jerúsalem. |
Ezra (1/10) → |