| ← Ezekiel (41/48) → |
| 1. | Þessu næst leiddi hann mig inn í aðalhúsið og mældi súlurnar, og voru þær sex álnir að þykkt báðumegin. |
| 2. | Og dyrnar voru tíu álna breiðar og dyraveggurinn fimm álnir hvorumegin. Hann mældi lengd Hins heilaga, og var hún fjörutíu álnir og breiddin tuttugu álnir. |
| 3. | Síðan gekk hann inn fyrir og mældi dyrastöplana, og voru þeir tveggja álna þykkir og vídd dyranna sex álnir, og dyraveggurinn sjö álnir hvorumegin. |
| 4. | Og hann mældi lengd hússins, og var hún tuttugu álnir, og breiddin tuttugu álnir frammi við aðalhúsið. Og hann sagði við mig: ,,Þetta er Hið allrahelgasta.`` |
| 5. | Þessu næst mældi hann musterisvegginn, og var hann sex álna þykkur og breidd hliðarhússins fjórar álnir allt í kringum musterið. |
| 6. | Lágu herbergin hvert áfast við annað, þrjátíu herbergi á þremur hæðum. Stallar voru á veggnum, sem var á musterinu fyrir hliðarherbergin allt í kring, til þess að þau hvíldu á honum, en væru eigi fest á musterisvegginn. |
| 7. | Og þau urðu æ breiðari, því ofar sem þau lágu kringum musterið, því að hliðarherbergin voru alveg upp úr hringinn í kringum musterið. Fyrir því minnkaði breidd hússins upp á við, og mátti ganga af neðsta gólfi hliðarhússins yfir neðra loftið upp á efra loftið. |
| 8. | Þá sá ég, að á musterishúsinu var pallur hringinn í kring, og grundvöllur hliðarherbergjanna var full sex álna mælistöng. |
| 9. | Þykkt útveggsins á hliðarhúsinu var fimm álnir, og var autt svæði milli hliðarhússins og musterisins, |
| 10. | milli herbergjanna, tuttugu álna breitt hringinn í kringum musterið. |
| 11. | Dyr gengu frá hliðarhúsinu að auðu svæði, aðrar dyrnar til norðurs, hinar til suðurs. Og breidd auða svæðisins var fimm álnir hringinn í kring. |
| 12. | Hús lá gegnt afgirta svæðinu við vesturhliðina. Var það sjötíu álna breitt og veggur þess fimm álna þykkur hringinn í kring og lengd þess níutíu álnir. |
| 13. | Þessu næst mældi hann musterishúsið, og var það hundrað álna langt. Afgirta svæðið og húsið með veggjum þess var hundrað álnir á lengd. |
| 14. | Og framhlið musterishússins og afgirta svæðið austan megin var hundrað álnir á breidd. |
| 15. | Og hann mældi lengd hússins gegnt afgirta svæðinu vestan við það og súlnagöng þess beggja vegna, og var það hundrað álnir. Aðalhúsið, innhúsið og forsalur þess, |
| 16. | þröskuldarnir og skáhöllu gluggarnir og súlnagöngin umhverfis, þessi þrjú hús voru þiljuð frá jörðu og upp að gluggum . . . |
| 17. | Uppi yfir dyrum aðalhússins innan og utan og á öllum veggnum innan og utan hringinn í kring |
| 18. | voru gjörðir kerúbar og pálmar, og var einn pálmi milli hverra tveggja kerúba. En kerúbinn hafði tvö andlit. |
| 19. | Annars vegar sneri mannsandlit að pálmanum, en ljónsandlit hins vegar. Svo var á húsinu allt um kring. |
| 20. | Neðan frá gólfi og upp fyrir dyr voru gjörðir kerúbar og pálmar á veggnum. |
| 21. | Umgjörðin yfir dyrunum og dyrastafir aðalhússins mynduðu ferhyrning. Fyrir framan helgidóminn var eitthvað, sem líktist |
| 22. | altari af tré, þriggja álna hátt. Það var tvær álnir á lengd og tvær álnir á breidd, og á því voru horn, og undirstöður þess og hliðveggir voru af tré. Og hann sagði við mig: ,,Þetta er borðið, sem stendur frammi fyrir Drottni.`` |
| 23. | Og tvöfaldar hurðir voru á aðalhúsinu og helgidóminum. |
| 24. | Í hvorum dyrum voru tvær hurðir, er léku á hjörum. |
| 25. | Og á hurðunum voru kerúbar og pálmar, eins og á veggjunum, og þakskyggni af tré var fram af forsalnum.Og skáhallir gluggar og pálmar voru beggja vegna á hliðarveggjum forsalsins . . . |
| 26. | Og skáhallir gluggar og pálmar voru beggja vegna á hliðarveggjum forsalsins . . . |
| ← Ezekiel (41/48) → |