| ← Ezekiel (35/48) → |
| 1. | Og orð Drottins kom til mín, svohljóðandi: |
| 2. | ,,Mannsson, snú þér gegn Seír-fjalllendi og spá gegn því |
| 3. | og seg við það: Svo segir Drottinn Guð: Sjá, ég skal finna þig, Seír-fjalllendi, og ég skal rétta hönd mína út í móti þér og gjöra þig að auðn og öræfum. |
| 4. | Borgir þínar gjöri ég að rústum, og þú skalt sjálft verða að auðn, svo að þú viðurkennir, að ég er Drottinn. |
| 5. | Af því að þú bjóst yfir eilífum fjandskap og seldir Ísraelsmenn undir sverðseggjar á ógæfutíma þeirra, þá er tími endasektarinnar rann upp, |
| 6. | fyrir því, svo sannarlega sem ég lifi, _ segir Drottinn Guð _ blóðskuld hefir þú bakað þér, og blóð skal ofsækja þig. |
| 7. | Og ég gjöri Seír-fjalllendi að auðn og öræfum og læt þar alla umferð af leggjast. |
| 8. | Og ég fylli fjöll þess vegnum mönnum. Á hæðum þínum, í dölum þínum og í öllum hvömmum þínum munu vopnbitnir menn falla. |
| 9. | Og ég vil gjöra þig að ævinlegri auðn, og borgir þínar skulu vera óbyggðar, til þess að þér viðurkennið, að ég er Drottinn. |
| 10. | Af því að þú sagðir: ,Báðar þjóðirnar og bæði löndin skulu vera mín, og vér skulum taka þau til eignar,` enda þótt Drottinn væri þar, |
| 11. | fyrir því, svo sannarlega sem ég lifi, _ segir Drottinn Guð _ mun ég fara með þig samkvæmt þeirri ástríðufullu reiði, er þú hefir á þeim sýnt vegna haturs þíns, og ég mun láta þig kenna á mér, þá er ég dæmi þig, |
| 12. | til þess að þú viðurkennir, að ég er Drottinn. Ég hefi heyrt öll lastmæli þín, þau er þú hefir talað gegn Ísraels fjöllum, er þú sagðir: ,Þau eru í eyði lögð! Oss eru þau gefin til afneyslu!` |
| 13. | Og þér töluðuð stóryrði í gegn mér og höfðuð orðmælgi við mig, ég hefi heyrt það. |
| 14. | Svo segir Drottinn Guð: Eins og þú fagnaðir yfir landi mínu, að það lá í eyði, svo mun ég láta hið sama fram við þig koma.Eins og þú fagnaðir yfir arfleifð Ísraels húss, að hún var í eyði lögð, svo mun ég við þig gjöra. Að auðn skalt þú verða, Seír-fjalllendi, og allt Edómland, eins og það er sig til, til þess að þeir viðurkenni, að ég er Drottinn. |
| 15. | Eins og þú fagnaðir yfir arfleifð Ísraels húss, að hún var í eyði lögð, svo mun ég við þig gjöra. Að auðn skalt þú verða, Seír-fjalllendi, og allt Edómland, eins og það er sig til, til þess að þeir viðurkenni, að ég er Drottinn. |
| ← Ezekiel (35/48) → |