← Exodus (40/40) |
1. | Drottinn talaði við Móse og sagði: |
2. | ,,Á fyrsta degi hins fyrsta mánaðar skalt þú reisa búð samfundatjaldsins. |
3. | Þar skalt þú setja sáttmálsörkina og byrgja fyrir örkina með fortjaldinu. |
4. | Og þú skalt bera borðið þangað og raða því, sem á því skal vera. Síðan skalt þú bera þangað ljósastikuna og setja upp lampa hennar. |
5. | Og þú skalt setja hið gullna reykelsisaltari fyrir framan sáttmálsörkina og hengja dúkbreiðuna fyrir búðardyrnar. |
6. | Og þú skalt setja brennifórnaraltarið fyrir framan dyr samfundatjalds-búðarinnar. |
7. | Og kerið skalt þú setja milli samfundatjaldsins og altarisins og láta vatn í það. |
8. | Síðan skalt þú reisa forgarðinn umhverfis og hengja dúkbreiðu fyrir forgarðshliðið. |
9. | Þá skalt þú taka smurningarolíuna og smyrja búðina og allt, sem í henni er, og vígja hana með öllum áhöldum hennar, svo að hún sé heilög. |
10. | Og þú skalt smyrja brennifórnaraltarið og öll áhöld þess, og þú skalt vígja altarið, og skal altarið þá vera háheilagt. |
11. | Og þú skalt smyrja kerið og stétt þess og vígja það. |
12. | Þá skalt þú leiða Aron og sonu hans að dyrum samfundatjaldsins og þvo þá úr vatni. |
13. | Og þú skalt færa Aron í hin helgu klæði, smyrja hann og vígja, að hann þjóni mér í prestsembætti. |
14. | Þú skalt og leiða fram sonu hans og færa þá í kyrtlana, |
15. | og þú skalt smyrja þá, eins og þú smurðir föður þeirra, að þeir þjóni mér í prestsembætti, og skal smurning þeirra veita þeim ævinlegan prestdóm frá kyni til kyns.`` |
16. | Og Móse gjörði svo. Eins og Drottinn hafði boðið honum, svo gjörði hann í alla staði. |
17. | Búðin var reist í fyrsta mánuði hins annars árs, fyrsta dag mánaðarins. |
18. | Reisti Móse búðina, lagði undirstöðurnar, sló upp þiljunum, setti í slárnar og reisti upp stólpana. |
19. | Og hann þandi tjaldvoðina yfir búðina og lagði tjaldþökin þar yfir, eins og Drottinn hafði boðið Móse. |
20. | Hann tók sáttmálið og lagði það í örkina, setti stengurnar í örkina og lét arkarlokið yfir örkina. |
21. | Og hann flutti örkina inn í búðina, setti upp fortjaldsdúkbreiðuna og byrgði fyrir sáttmálsörkina, eins og Drottinn hafði boðið Móse. |
22. | Hann setti borðið inn í samfundatjaldið, við norðurhlið búðarinnar, fyrir utan fortjaldið, |
23. | og hann raðaði á það brauðunum frammi fyrir Drottni, eins og Drottinn hafði boðið Móse. |
24. | Hann setti upp ljósastikuna í samfundatjaldinu gegnt borðinu við suðurhlið búðarinnar. |
25. | Og hann setti upp lampana frammi fyrir Drottni, eins og Drottinn hafði boðið Móse. |
26. | Hann setti upp gullaltarið inni í samfundatjaldinu fyrir framan fortjaldið, |
27. | og brenndi á því ilmreykelsi, eins og Drottinn hafði boðið Móse. |
28. | Síðan hengdi hann dúkbreiðuna fyrir dyr búðarinnar, |
29. | setti brennifórnaraltarið við dyr samfundatjalds-búðarinnar og fórnaði á því brennifórn og matfórn, eins og Drottinn hafði boðið Móse. |
30. | Hann setti kerið milli samfundatjaldsins og altarisins og lét vatn í það til þvottar, |
31. | og þvoðu þeir Móse, Aron og synir hans hendur sínar og fætur úr því. |
32. | Hvert sinn er þeir gengu inn í samfundatjaldið og nálguðust altarið, þvoðu þeir sér, svo sem Drottinn hafði boðið Móse. |
33. | Síðan reisti hann forgarðinn umhverfis búðina og altarið og hengdi dúkbreiðuna fyrir forgarðshliðið, og hafði Móse þá aflokið verkinu. |
34. | Þá huldi skýið samfundatjaldið, og dýrð Drottins fyllti búðina, |
35. | og mátti Móse ekki inn ganga í samfundatjaldið, því að skýið lá yfir því og dýrð Drottins fyllti búðina. |
36. | Hvert sinn er skýið hófst upp frá búðinni, lögðu Ísraelsmenn upp, alla þá stund er þeir voru á ferðinni.En er skýið hófst ekki upp, lögðu Ísraelsmenn ekki af stað fyrr en þann dag er skýið hófst upp. |
37. | En er skýið hófst ekki upp, lögðu Ísraelsmenn ekki af stað fyrr en þann dag er skýið hófst upp. |
← Exodus (40/40) |