← Exodus (32/40) → |
1. | Er fólkið sá, að seinkaði komu Móse ofan af fjallinu, þyrptist fólkið í kringum Aron og sagði við hann: ,,Kom og gjör oss guð, er fyrir oss fari, því að vér vitum ekki, hvað af þessum Móse er orðið, manninum, er leiddi oss burt af Egyptalandi.`` |
2. | Og Aron sagði við þá: ,,Slítið eyrnagullin úr eyrum kvenna yðar, sona og dætra, og færið mér.`` |
3. | Þá sleit allt fólkið eyrnagullin úr eyrum sér og færði Aroni, |
4. | en hann tók við því af þeim, lagaði það með meitlinum og gjörði af því steyptan kálf. Þá sögðu þeir: ,,Þetta er guð þinn, Ísrael, sem leiddi þig út af Egyptalandi.`` |
5. | Og er Aron sá það, reisti hann altari fyrir framan hann, og Aron lét kalla og segja: ,,Á morgun skal vera hátíð Drottins.`` |
6. | Næsta morgun risu þeir árla, fórnuðu brennifórnum og færðu þakkarfórnir. Síðan settist fólkið niður til að eta og drekka, og því næst stóðu þeir upp til leika. |
7. | Þá sagði Drottinn við Móse: ,,Far þú og stíg ofan, því að fólk þitt, sem þú leiddir út af Egyptalandi, hefir misgjört. |
8. | Skjótt hafa þeir vikið af þeim vegi, sem ég bauð þeim. Þeir hafa gjört sér steyptan kálf, og þeir hafa fallið fram fyrir honum, fært honum fórnir og sagt: ,Þetta er guð þinn, Ísrael, sem leiddi þig út af Egyptalandi.``` |
9. | Drottinn sagði við Móse: ,,Ég sé nú, að þessi lýður er harðsvírað fólk. |
10. | Lát mig nú einan, svo að reiði mín upptendrist í gegn þeim og tortími þeim. Síðan vil ég gjöra þig að mikilli þjóð.`` |
11. | En Móse reyndi að blíðka Drottin, Guð sinn, og sagði: ,,Hví skal, Drottinn, reiði þín upptendrast í gegn fólki þínu, sem þú leiddir út af Egyptalandi með miklum mætti og voldugri hendi? |
12. | Hví skulu Egyptar segja og kveða svo að orði: ,Til ills leiddi hann þá út, til að deyða þá á fjöllum uppi og afmá þá af jörðinni`? Snú þér frá þinni brennandi reiði og lát þig iðra hins illa gegn fólki þínu. |
13. | Minnst þú þjóna þinna, Abrahams, Ísaks og Ísraels, sem þú hefir svarið við sjálfan þig og heitið: ,Ég vil gjöra niðja yðar marga sem stjörnur himinsins, og allt þetta land, sem ég hefi talað um, vil ég gefa niðjum yðar, og skulu þeir eiga það ævinlega.``` |
14. | Þá iðraðist Drottinn hins illa, er hann hafði hótað að gjöra fólki sínu. |
15. | Síðan sneri Móse á leið og gekk ofan af fjallinu með báðar sáttmálstöflurnar í hendi sér. Voru þær skrifaðar báðumegin, svo á einni hliðinni sem á annarri voru þær skrifaðar. |
16. | En töflurnar voru Guðs verk og letrið Guðs letur, rist á töflurnar. |
17. | En er Jósúa heyrði ópið í fólkinu, sagði hann við Móse: ,,Það er heróp í búðunum!`` |
18. | En Móse svaraði: ,,Það er ekki óp sigrandi manna og ekki óp þeirra, er sigraðir verða; söngóm heyri ég.`` |
19. | En er Móse nálgaðist herbúðirnar og sá kálfinn og dansinn, upptendraðist reiði hans, svo að hann þeytti töflunum af hendi og braut þær í sundur fyrir neðan fjallið. |
20. | Síðan tók hann kálfinn, sem þeir höfðu gjört, brenndi hann í eldi og muldi hann í duft og dreifði því á vatnið og lét Ísraelsmenn drekka. |
21. | Þá sagði Móse við Aron: ,,Hvað hefir þetta fólk gjört þér, að þú skulir hafa leitt svo stóra synd yfir það?`` |
22. | Aron svaraði: ,,Reiðst eigi, herra. Þú þekkir lýðinn, að hann er jafnan búinn til ills. |
23. | Þeir sögðu við mig: ,Gjör oss guð, er fyrir oss fari, því vér vitum eigi, hvað af þessum Móse er orðið, manninum, er leiddi oss burt af Egyptalandi.` |
24. | Þá sagði ég við þá: ,Hver sem gull hefir á sér, hann slíti það af sér.` Fengu þeir mér það, og kastaði ég því í eldinn, svo varð af því þessi kálfur.`` |
25. | Er Móse sá, að fólkið var orðið taumlaust, því að Aron hafði sleppt við það taumnum, svo að þeir voru hafðir að spotti af mótstöðumönnum sínum, |
26. | þá nam Móse staðar í herbúðahliðinu og mælti: ,,Hver sem heyrir Drottni til, komi hingað til mín!`` Þá söfnuðust allir levítar til hans. |
27. | Og hann sagði við þá: ,,Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: ,Hver einn festi sverð á hlið sér, fari síðan fram og aftur frá einu hliði herbúðanna til annars og drepi hver sinn bróður, vin og frænda.``` |
28. | Og levítarnir gjörðu sem Móse bauð þeim, og féllu af fólkinu á þeim degi þrjár þúsundir manna. |
29. | Og Móse sagði: ,,Fyllið hendur yðar í dag, Drottni til handa, því að hver maður var á móti syni sínum og bróður, svo að yður veitist blessun í dag.`` |
30. | Morguninn eftir sagði Móse við lýðinn: ,,Þér hafið drýgt stóra synd. En nú vil ég fara upp til Drottins; má vera, að ég fái friðþægt fyrir synd yðar.`` |
31. | Síðan sneri Móse aftur til Drottins og mælti: ,,Æ, þetta fólk hefir drýgt stóra synd og gjört sér guð af gulli. |
32. | Ég bið, fyrirgef þeim nú synd þeirra! Ef ekki, þá bið ég, að þú máir mig af bók þinni, sem þú hefir skrifað.`` |
33. | En Drottinn sagði við Móse: ,,Hvern þann, er syndgað hefir móti mér, vil ég má af bók minni. |
34. | Far nú og leið fólkið þangað, sem ég hefi sagt þér, sjá, engill minn skal fara fyrir þér. En þegar minn vitjunartími kemur, skal ég vitja synda þeirra á þeim.``En Drottinn laust fólkið fyrir það, að þeir höfðu gjört kálfinn, sem Aron gjörði. |
35. | En Drottinn laust fólkið fyrir það, að þeir höfðu gjört kálfinn, sem Aron gjörði. |
← Exodus (32/40) → |