← Exodus (2/40) → |
1. | Maður nokkur af Leví ætt gekk að eiga dóttur Leví. |
2. | Og konan varð þunguð og fæddi son. Og er hún sá að sveinninn var fríður, þá leyndi hún honum í þrjá mánuði. |
3. | En er hún mátti eigi leyna honum lengur, tók hún handa honum örk af reyr, bræddi hana með jarðlími og biki, lagði sveininn í hana og lét örkina út í sefið hjá árbakkanum. |
4. | En systir hans stóð þar álengdar til að vita, hvað um hann yrði. |
5. | Þá gekk dóttir Faraós ofan að ánni til að lauga sig, og gengu þjónustumeyjar hennar eftir árbakkanum. Hún leit örkina í sefinu og sendi þernu sína að sækja hana. |
6. | En er hún lauk upp örkinni, sá hún barnið, og sjá, það var sveinbarn og var að gráta. Og hún kenndi í brjósti um það og sagði: ,,Þetta er eitt af börnum Hebrea.`` |
7. | Þá sagði systir sveinsins við dóttur Faraós: ,,Á ég að fara og sækja fyrir þig barnfóstru, einhverja hebreska konu, að hún hafi sveininn á brjósti fyrir þig?`` |
8. | Og dóttir Faraós svaraði henni: ,,Já, far þú.`` En mærin fór og sótti móður sveinsins. |
9. | Og dóttir Faraós sagði við hana: ,,Tak svein þennan með þér og haf hann á brjósti fyrir mig, og skal ég launa þér fyrir.`` Tók konan þá sveininn og hafði hann á brjósti. |
10. | En er sveinninn var vaxinn, fór hún með hann til dóttur Faraós. Tók hún hann í sonar stað og nefndi hann Móse, því að hún sagði: ,,Ég hefi dregið hann upp úr vatninu.`` |
11. | Um þær mundir bar svo við, þegar Móse var orðinn fulltíða maður, að hann fór á fund ættbræðra sinna og sá þrældóm þeirra. Sá hann þá egypskan mann ljósta hebreskan mann, einn af ættbræðrum hans. |
12. | Hann skimaði þá í allar áttir, og er hann sá, að þar var enginn, drap hann Egyptann og huldi hann í sandinum. |
13. | Daginn eftir gekk hann út og sá tvo Hebrea vera að þrátta sín á milli. Þá mælti hann við þann, sem á röngu hafði að standa: ,,Hví slær þú náunga þinn?`` |
14. | En hann sagði: ,,Hver skipaði þig höfðingja og dómara yfir okkur? Er þér í hug að drepa mig, eins og þú drapst Egyptann?`` Þá varð Móse hræddur og hugsaði með sér: ,,Það er þá orðið uppvíst!`` |
15. | Er Faraó frétti þennan atburð, leitaði hann eftir að drepa Móse, en Móse flýði undan Faraó og tók sér bústað í Midíanslandi og settist að hjá vatnsbólinu. |
16. | Presturinn í Midíanslandi átti sjö dætur. Þær komu þangað, jusu vatn og fylltu þrórnar til að brynna fénaði föður síns. |
17. | Þá komu að hjarðmenn og bægðu þeim frá. En Móse tók sig til og hjálpaði þeim og brynnti fénaði þeirra. |
18. | Og er þær komu heim til Regúels föður síns, mælti hann: ,,Hví komið þér svo snemma heim í dag?`` |
19. | Þær svöruðu: ,,Egypskur maður hjálpaði oss móti hjarðmönnunum, jós líka vatnið upp fyrir oss og brynnti fénaðinum.`` |
20. | Hann sagði þá við dætur sínar: ,,Hvar er hann þá? Hvers vegna skilduð þér manninn eftir? Bjóðið honum heim, að hann neyti matar.`` |
21. | Móse lét sér vel líka að vera hjá þessum manni, og hann gifti Móse Sippóru dóttur sína. |
22. | Hún ól son, og hann nefndi hann Gersóm, því að hann sagði: ,,Gestur er ég í ókunnu landi.`` |
23. | Löngum tíma eftir þetta dó Egyptalandskonungur. En Ísraelsmenn andvörpuðu undir ánauðinni og kveinuðu, og ánauðarkvein þeirra sté upp til Guðs. |
24. | Og Guð heyrði andvarpanir þeirra og minntist sáttmála síns við Abraham, Ísak og Jakob.Og Guð leit til Ísraelsmanna og kenndist við þá. |
25. | Og Guð leit til Ísraelsmanna og kenndist við þá. |
← Exodus (2/40) → |