← Exodus (17/40) → |
1. | Allur söfnuður Ísraelsmanna tók sig nú upp frá Sín-eyðimörk, og fóru þeir í áföngum að boði Drottins og settu herbúðir sínar í Refídím. En þar var ekkert vatn handa fólkinu að drekka. |
2. | Þá þráttaði fólkið við Móse og sagði: ,,Gef oss vatn að drekka!`` En Móse sagði við þá: ,,Hví þráttið þér við mig? Hví freistið þér Drottins?`` |
3. | Og fólkið þyrsti þar eftir vatni, og fólkið möglaði gegn Móse og sagði: ,,Hví fórstu með oss frá Egyptalandi til þess að láta oss og börn vor og fénað deyja af þorsta?`` |
4. | Þá hrópaði Móse til Drottins og sagði: ,,Hvað skal ég gjöra við þetta fólk? Það vantar lítið á að þeir grýti mig.`` |
5. | En Drottinn sagði við Móse: ,,Gakk þú fram fyrir fólkið og tak með þér nokkra af öldungum Ísraels, og tak í hönd þér staf þinn, er þú laust með ána, og gakk svo af stað. |
6. | Sjá, ég mun standa frammi fyrir þér þar á klettinum á Hóreb, en þú skalt ljósta á klettinn, og mun þá vatn spretta af honum, svo að fólkið megi drekka.`` |
7. | Og Móse gjörði svo í augsýn öldunga Ísraels. Og hann kallaði þennan stað Massa og Meríba sökum þráttanar Ísraelsmanna, og fyrir því að þeir höfðu freistað Drottins og sagt: ,,Hvort mun Drottinn vera meðal vor eður ekki?`` |
8. | Þá komu Amalekítar og áttu orustu við Ísraelsmenn í Refídím. |
9. | Þá sagði Móse við Jósúa: ,,Vel oss menn og far út og berst við Amalekíta. Á morgun mun ég standa efst uppi á hæðinni og hafa staf Guðs í hendi mér.`` |
10. | Jósúa gjörði sem Móse hafði sagt honum og lagði til orustu við Amalekíta, en þeir Móse, Aron og Húr gengu efst upp á hæðina. |
11. | Þá gjörðist það, að alla þá stund, er Móse hélt uppi hendi sinni, veitti Ísraelsmönnum betur, en þegar er hann lét síga höndina, veitti Amalekítum betur. |
12. | En með því að Móse urðu þungar hendurnar, tóku þeir stein og létu undir hann, og settist hann á steininn, en þeir Aron og Húr studdu hendur hans, sinn á hvora hlið, og héldust þannig hendur hans stöðugar allt til sólarlags. |
13. | En Jósúa lagði Amalekíta og lið þeirra að velli með sverðseggjum. |
14. | Þá sagði Drottinn við Móse: ,,Rita þú þetta í bók til minningar og gjör Jósúa það hugfast, því að ég vil vissulega afmá nafn Amalekíta af jörðinni.`` |
15. | Og Móse reisti þar altari og nefndi það ,,Jahve-nisí``.Og hann sagði: ,,Með upplyftri hendi að hásæti Drottins sver ég: ,Ófrið mun Drottinn heyja við Amalekíta frá kyni til kyns.``` |
16. | Og hann sagði: ,,Með upplyftri hendi að hásæti Drottins sver ég: ,Ófrið mun Drottinn heyja við Amalekíta frá kyni til kyns.``` |
← Exodus (17/40) → |