Exodus (1/40) → |
1. | Þessi eru nöfn Ísraels sona, sem komu til Egyptalands með Jakob, hver með sitt heimilisfólk: |
2. | Rúben, Símeon, Leví og Júda, |
3. | Íssakar, Sebúlon og Benjamín, |
4. | Dan og Naftalí, Gað og Asser. |
5. | Alls voru niðjar Jakobs sjötíu manns, og Jósef var fyrir í Egyptalandi. |
6. | Og Jósef dó og allir bræður hans og öll sú kynslóð. |
7. | Og Ísraelsmenn voru frjósamir, jukust, margfölduðust og fjölgaði stórum, svo að landið varð fullt af þeim. |
8. | Þá hófst til ríkis í Egyptalandi nýr konungur, sem engin deili vissi á Jósef. |
9. | Hann sagði við þjóð sína: ,,Sjá, þjóð Ísraelsmanna er fjölmennari og aflmeiri en vér. |
10. | Látum oss fara kænlega að við hana, ella kynni henni að fjölga um of, og ef til ófriðar kæmi, kynni hún jafnvel að ganga í lið með óvinum vorum og berjast móti oss og fara síðan af landi burt.`` |
11. | Og þeir settu verkstjóra yfir hana til þess að þjá hana með þrælavinnu, og hún byggði vistaborgir handa Faraó, Pítóm og Raamses. |
12. | En því meir sem þeir þjáðu hana, því meir fjölgaði henni og breiddist út, svo að þeir tóku að óttast Ísraelsmenn. |
13. | Og Egyptar þrælkuðu Ísraelsmenn vægðarlaust |
14. | og gjörðu þeim lífið leitt með þungri þrælavinnu við leireltu og tigulsteinagjörð og með alls konar akurvinnu, með allri þeirri vinnu, er þeir vægðarlaust þrælkuðu þá með. |
15. | En Egyptalandskonungur mælti til hinna hebresku ljósmæðra _ hét önnur Sifra, en hin Púa: |
16. | ,,Þegar þið sitjið yfir hebreskum konum,`` mælti hann, ,,þá lítið á burðarsetið. Sé barnið sveinbarn, þá deyðið það, en sé það meybarn, þá má það lifa.`` |
17. | En ljósmæðurnar óttuðust Guð og gjörðu eigi það, sem Egyptalandskonungur bauð þeim, heldur létu sveinbörnin lifa. |
18. | Þá lét Egyptalandskonungur kalla ljósmæðurnar og sagði við þær: ,,Hví hafið þér svo gjört, að láta sveinbörnin lifa?`` |
19. | Ljósmæðurnar svöruðu Faraó: ,,Hebreskar konur eru ólíkar egypskum, því að þær eru hraustar. Áður en ljósmóðirin kemur til þeirra, eru þær búnar að fæða.`` |
20. | Og Guð lét ljósmæðrunum vel farnast, og fólkinu fjölgaði og það efldist mjög. |
21. | Og fyrir þá sök, að ljósmæðurnar óttuðust Guð, gaf hann þeim fjölda niðja.Þá bauð Faraó öllum lýð sínum og sagði: ,,Kastið í ána öllum þeim sveinbörnum, sem fæðast meðal Hebrea, en öll meybörn mega lífi halda.`` |
22. | Þá bauð Faraó öllum lýð sínum og sagði: ,,Kastið í ána öllum þeim sveinbörnum, sem fæðast meðal Hebrea, en öll meybörn mega lífi halda.`` |
Exodus (1/40) → |