| ← Esther (6/10) → |
| 1. | En þessa nótt gat konungur ekki sofið. Bauð hann þá að koma með Annálabókina, og var hún lesin fyrir konungi. |
| 2. | Þá fannst þar skrifað, hversu Mordekai hefði komið upp um þá Bigtan og Teres, tvo geldinga konungs, af þeim er geymdu dyranna, sem höfðu leitast við að leggja hönd á Ahasverus konung. |
| 3. | Þá sagði konungur: ,,Hverja sæmd og upphefð hefir Mordekai hlotið fyrir þetta?`` Þá sögðu sveinar konungs, þeir er þjónuðu honum: ,,Hann hefir ekkert hlotið fyrir.`` |
| 4. | Og konungur sagði: ,,Hver er í forgarðinum?`` Í sama bili hafði Haman komið inn í ytri forgarð konungshallarinnar til þess að tala um það við konung að láta festa Mordekai á gálga þann, er hann hafði reist handa honum. |
| 5. | Og sveinar konungs sögðu við hann: ,,Sjá, Haman stendur í forgarðinum.`` Konungur mælti: ,,Látið hann koma inn.`` |
| 6. | En er Haman var inn kominn, sagði konungur við hann: ,,Hvað á að gjöra við þann mann, er konungur vill heiður sýna?`` Þá hugsaði Haman með sjálfum sér: ,,Hverjum mun konungur vilja heiður sýna öðrum en mér?`` |
| 7. | Og Haman sagði við konung: ,,Ef konungur vill sýna einhverjum heiður, |
| 8. | þá skal sækja konunglegan skrúða, sem konungur hefir klæðst, og hest, sem konungur hefir riðið, og konungleg kóróna er sett á höfuð hans. |
| 9. | Og skrúðann og hestinn skal fá í hendur einum af höfðingjum konungs, tignarmönnunum, og færa þann mann, sem konungur vill sýna heiður, í skrúðann og láta hann ríða hestinum um borgartorgið og hrópa fyrir honum: Þannig er gjört við þann mann, er konungur vill heiður sýna.`` |
| 10. | Þá sagði konungur við Haman: ,,Sæk sem skjótast skrúðann og hestinn, svo sem þú hefir sagt, og gjör þannig við Mordekai Gyðing, sem situr hér í konungshliði. Lát ekkert niður falla af öllu því, er þú hefir sagt.`` |
| 11. | Þá sótti Haman skrúðann og hestinn, færði Mordekai í og lét hann ríða um borgartorgið og hrópaði fyrir honum: ,,Þannig er gjört við þann mann, er konungurinn vill heiður sýna.`` |
| 12. | Síðan sneri Mordekai aftur í konungshliðið. En Haman skundaði heim til sín, hryggur og með huldu höfði. |
| 13. | Og Haman sagði Seres konu sinni og öllum vinum sínum frá öllu því, er fyrir hann hafði komið. Þá sögðu vitringar hans við hann og Seres kona hans: ,,Ef Mordekai, sem þú ert tekinn að falla fyrir, er af ætt Gyðinga, þá megnar þú ekkert á móti honum, heldur munt þú gjörsamlega falla fyrir honum.``Meðan þeir voru enn við hann að tala, komu geldingar konungs, og fóru þeir í skyndi með Haman til veislunnar, er Ester hafði búið. |
| 14. | Meðan þeir voru enn við hann að tala, komu geldingar konungs, og fóru þeir í skyndi með Haman til veislunnar, er Ester hafði búið. |
| ← Esther (6/10) → |