← Ephesians (3/6) → |
1. | Þess vegna er það, að ég, Páll, bandingi Krists Jesú vegna yðar, heiðinna manna, beygi kné mín. |
2. | Víst hafið þér heyrt um þá ráðstöfun Guðs náðar, sem hann fól mér hjá yður: |
3. | Að birta mér með opinberun leyndardóminn. Ég hef stuttlega skrifað um það áður. |
4. | Þegar þér lesið það, getið þér skynjað, hvað ég veit um leyndardóm Krists. |
5. | Hann var ekki birtur mannanna sonum fyrr á tímum. Nú hefur hann verið opinberaður heilögum postulum hans og spámönnum í andanum: |
6. | Heiðingjarnir eru í Kristi Jesú fyrir fagnaðarerindið orðnir erfingjar með oss, einn líkami með oss, og eiga hlut í sama fyrirheiti og vér. |
7. | Ég varð þjónn þessa fagnaðarerindis, af því að Guð gaf mér gjöf náðar sinnar með krafti máttar síns. |
8. | Mér, sem minnstur er allra heilagra, var veitt sú náð að boða heiðingjunum fagnaðarerindið um hinn órannsakanlega ríkdóm Krists |
9. | og að upplýsa alla um það, hvernig Guð hefur ráðstafað þessum leyndardómi. Hann hefur frá eilífð verið hulinn í Guði, sem allt hefur skapað. |
10. | Nú skyldi kirkjan látin kunngjöra tignunum og völdunum í himinhæðum, hve margháttuð speki Guðs er. |
11. | Þetta er Guðs eilífa fyrirætlun, sem hann hefur framkvæmt í Kristi Jesú, Drottni vorum. |
12. | Á honum byggist djörfung vor. Í trúnni á hann eigum vér öruggan aðgang að Guði. |
13. | Fyrir því bið ég, að þér látið eigi hugfallast út af þrengingum mínum yðar vegna. Þær eru yður til vegsemdar. |
14. | Þess vegna beygi ég kné mín fyrir föðurnum, |
15. | sem hvert faðerni fær nafn af á himni og jörðu. |
16. | Megi hann gefa yður af ríkdómi dýrðar sinnar að styrkjast fyrir anda sinn að krafti hið innra með yður, |
17. | til þess að Kristur megi fyrir trúna búa í hjörtum yðar og þér verða rótfestir og grundvallaðir í kærleika. |
18. | Þá fáið þér ásamt öllum heilögum skilið, hve kærleikur Krists er víður og langur, hár og djúpur, og komist að raun um hann, |
19. | sem gnæfir yfir alla þekkingu, og náið að fyllast allri Guðs fyllingu. |
20. | En honum, sem í oss verkar með krafti sínum og megnar að gjöra langt fram yfir allt það, sem vér biðjum eða skynjum,honum sé dýrð í kirkjunni og í Kristi Jesú um öll æviskeið, öld eftir öld. Amen. |
21. | honum sé dýrð í kirkjunni og í Kristi Jesú um öll æviskeið, öld eftir öld. Amen. |
← Ephesians (3/6) → |