| ← Ecclesiastes (10/12) → |
| 1. | Dauðar flugur valda ódaun með því að hleypa ólgu í olíu smyrslarans. Ofurlítill aulaskapur er þyngri á metunum heldur en viska, heldur en sómi. |
| 2. | Hjarta viturs manns stefnir á heillabraut, en hjarta heimskingjans leiðir hann í ógæfu. |
| 3. | Og þegar aulinn er kominn út á veginn, brestur og á vitið, og hann segir við hvern mann, að hann sé auli. |
| 4. | Ef reiði drottnarans rís í gegn þér, þá yfirgef ekki stöðu þína, því að stilling afstýrir stórum glappaskotum. |
| 5. | Til er böl, sem ég hefi séð undir sólinni, nokkurs konar yfirsjón af hálfu valdhafans: |
| 6. | Heimskan er sett í háu stöðurnar, en göfugmennin sitja í niðurlægingu. |
| 7. | Ég sá þræla ríðandi hestum og höfðingja fótgangandi eins og þræla. |
| 8. | Sá sem grefur gröf, getur fallið í hana, og þann sem rífur niður vegg, getur höggormur bitið. |
| 9. | Sá sem sprengir steina, getur meitt sig á þeim, sá sem klýfur við, getur með því stofnað sér í hættu. |
| 10. | Ef öxin er orðin sljó og eggin er ekki brýnd, þá verður maðurinn að neyta því meiri orku. Það er ávinningur að undirbúa sérhvað með hagsýni. |
| 11. | Ef höggormurinn bítur, af því að særingar hafa verið vanræktar, þá kemur særingamaðurinn að engu liði. |
| 12. | Orð af munni viturs manns eru yndisleg, en varir heimskingjans vinna honum tjón. |
| 13. | Fyrstu orðin fram úr honum eru heimska, og endir ræðu hans er ill flónska. |
| 14. | Heimskinginn talar mörg orð. Og þó veit maðurinn ekki, hvað verða muni. Og hvað verða muni eftir hans dag _ hver segir honum það? |
| 15. | Amstur heimskingjans þreytir hann, hann ratar ekki veginn inn í borgina. |
| 16. | Vei þér, land, sem hefir dreng að konungi og höfðingjar þínir setjast að áti að morgni dags! |
| 17. | Sælt ert þú, land, sem hefir eðalborinn mann að konungi og höfðingjar þínir eta á réttum tíma, sér til styrkingar, en ekki til þess að verða drukknir. |
| 18. | Fyrir leti síga bjálkarnir niður, og vegna iðjulausra handa lekur húsið. |
| 19. | Til gleðskapar búa menn máltíðir, og vín gjörir lífið skemmtilegt og peningarnir veita allt.Formæl ekki konunginum, jafnvel ekki í huga þínum, og formæl ekki ríkum manni í svefnherbergjum þínum, því að fuglar loftsins kynnu að bera burt hljóðið og hinir vængjuðu að hafa orðin eftir. |
| 20. | Formæl ekki konunginum, jafnvel ekki í huga þínum, og formæl ekki ríkum manni í svefnherbergjum þínum, því að fuglar loftsins kynnu að bera burt hljóðið og hinir vængjuðu að hafa orðin eftir. |
| ← Ecclesiastes (10/12) → |