← Amos (8/9) → |
1. | Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Ég sá körfu með sumarávöxtum. |
2. | Þá sagði hann: ,,Hvað sér þú, Amos?`` Ég svaraði: ,,Körfu með sumarávöxtum.`` Þá sagði Drottinn við mig: ,,Endirinn er kominn yfir lýð minn Ísrael, ég vil eigi lengur umbera hann. |
3. | Og musterissöngmeyjarnar skulu kveina á þeim degi _ segir Drottinn Guð. _ Líkin eru mörg. Alls staðar fleygja menn þeim út í kyrrþey!`` |
4. | Heyrið þetta, þér sem sundur merjið hina fátæku og ætlið að gjöra út af við alla aumingja í landinu, _ |
5. | sem segið: ,,Hvenær mun tunglkomuhátíðin líða, svo að vér megum selja korn, og hvíldardagurinn, svo að vér megum opna kornhlöðurnar?`` _ sem minnkið mælinn og hækkið verðið og falsið svikavogina, |
6. | og kaupið hina snauðu fyrir silfur og fátæklinginn fyrir eina ilskó, _ sem segið: ,,Vér seljum þeim aðeins úrganginn úr korninu.`` |
7. | Drottinn hefir svarið við vegsemd Jakobs: Aldrei skal ég gleyma öllu því, er þeir hafa gjört. |
8. | Hlaut ekki jörðin að nötra af slíku og allir þeir, sem þar búa, að verða sorgbitnir, svo að hún hófst upp alls staðar eins og Níl-fljótið og lækkaði eins og fljótið á Egyptalandi? |
9. | Á þeim degi, _ segir Drottinn Guð _ vil ég láta sólina ganga til viðar um miðjan dag og senda myrkur yfir landið á ljósum degi. |
10. | Ég vil snúa hátíðum yðar í sorg og öllum ljóðum yðar í harmkvæði, klæða allar mjaðmir í sorgarbúning og gjöra öll höfuð sköllótt. Ég læt það verða eins og sorg eftir einkason og endalok þess sem beiskan dag. |
11. | Sjá, þeir dagar munu koma, _ segir Drottinn Guð, _ að ég mun senda hungur inn í landið, ekki hungur eftir brauði né þorsta eftir vatni, heldur eftir því að heyra orð Drottins, |
12. | svo að menn skulu reika frá einu hafinu til annars og renna frá norðri til austurs til þess að leita eftir orði Drottins. En þeir skulu ekki finna það. |
13. | Á þeim degi skulu fríðar meyjar og æskumenn vanmegnast af þorsta.Þeir er sverja við vansæmd Samaríu og segja: ,,Svo sannarlega sem Guð þinn lifir, Dan!`` og: ,,Svo sannarlega sem Guð þinn lifir, Beerseba!`` _ þeir skulu falla og ekki framar á fætur rísa. |
14. | Þeir er sverja við vansæmd Samaríu og segja: ,,Svo sannarlega sem Guð þinn lifir, Dan!`` og: ,,Svo sannarlega sem Guð þinn lifir, Beerseba!`` _ þeir skulu falla og ekki framar á fætur rísa. |
← Amos (8/9) → |