← Amos (7/9) → |
1. | Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Það voru komnar engisprettulirfur, þá er háin tók til að spretta eftir konungsslátt. |
2. | En er þær höfðu gjöretið grasið af jörðinni, sagði ég: ,,Drottinn Guð, æ fyrirgef! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!`` |
3. | Þá iðraði Drottin þessa. ,,Það skal ekki verða!`` sagði Drottinn. |
4. | Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Drottinn Guð kom til þess að hegna með eldi, og hann svalg hið mikla djúp og eyddi landið. |
5. | Þá sagði ég: ,,Æ, Drottinn Guð, lát af! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!`` |
6. | Þá iðraði Drottin þessa. ,,Þetta skal ekki heldur verða!`` sagði Drottinn. |
7. | Hann lét þessa sýn bera fyrir mig: Sjá, Drottinn stóð uppi á lóðréttum múrvegg og hélt á lóði. |
8. | Og Drottinn sagði við mig: ,,Hvað sér þú, Amos?`` Ég svaraði: ,,Lóð.`` Þá sagði Drottinn: ,,Sjá, ég mun lóð nota mitt á meðal lýðs míns Ísraels, ég vil eigi lengur umbera hann. |
9. | Hæðir Ísaks skulu í eyði lagðar verða og helgidómar Ísraels eyddir verða, og ég vil rísa gegn Jeróbóams ætt með reiddu sverði.`` |
10. | Amasía prestur í Betel sendi boð til Jeróbóams Ísraelskonungs og lét segja: ,,Amos kveikir uppreisn gegn þér mitt í Ísraelsríki. Landið fær eigi þolað öll orð hans. |
11. | Því að svo hefir Amos sagt: ,Jeróbóam mun fyrir sverði falla og Ísrael mun herleiddur verða burt úr landi sínu.``` |
12. | Síðan sagði Amasía við Amos: ,,Haf þig á burt, vitranamaður, flý til Júdalands! Afla þér þar viðurværis og spá þú þar! |
13. | En í Betel mátt þú eigi framar koma fram sem spámaður, því að hér er konunglegur helgidómur og ríkismusteri.`` |
14. | Þá svaraði Amos og sagði við Amasía: ,,Ég er enginn spámaður, og ég er ekki af spámannaflokki, heldur er ég hjarðmaður og rækta mórber. |
15. | En Drottinn tók mig frá hjarðmennskunni og sagði við mig: ,Far þú og spá þú hjá lýð mínum Ísrael.` |
16. | Og heyr því orð Drottins: Þú segir: ,Þú mátt eigi spá gegn Ísrael né láta orð þín streyma yfir Ísaks niðja.`Fyrir því segir Drottinn svo: ,Konan þín skal verða skækja hér í borginni, og synir þínir og dætur skulu fyrir sverði falla. Jörð þinni skal sundur skipt verða með mælivað, og þú sjálfur skalt deyja í óhreinu landi. Og Ísraelsmenn skulu fara herleiddir af landi sínu.``` |
17. | Fyrir því segir Drottinn svo: ,Konan þín skal verða skækja hér í borginni, og synir þínir og dætur skulu fyrir sverði falla. Jörð þinni skal sundur skipt verða með mælivað, og þú sjálfur skalt deyja í óhreinu landi. Og Ísraelsmenn skulu fara herleiddir af landi sínu.``` |
← Amos (7/9) → |