← Amos (5/9) → |
1. | Heyrið þetta orð, sem ég mæli yfir yður sem harmkvæði, þér Ísraelsmenn! |
2. | Fallin er mærin Ísrael, rís aldrei aftur, flöt liggur hún á sínu eigin landi, enginn reisir hana. |
3. | Svo segir Drottinn Guð: Sú borg, sem sendir frá sér þúsund manns, mun hafa eftir hundrað, og sú sem sendir frá sér hundrað, mun hafa eftir tíu í Ísraelsríki. |
4. | Svo segir Drottinn við Ísraels hús: Leitið mín, til þess að þér megið lífi halda. |
5. | En leitið ekki til Betel! Og til Gilgal skuluð þér ekki fara og yfir til Beerseba skuluð þér ekki halda. Því að Gilgal skal fara í útlegð og Betel verða að auðn. |
6. | Leitið Drottins, til þess að þér megið lífi halda. Ella mun hann ráðast á Jósefs hús eins og eldur og eyða, án þess að nokkur sé í Betel, sem slökkvi. |
7. | Þeir sem umhverfa réttinum í malurt og varpa réttlætinu til jarðar, |
8. | Hann, sem skóp sjöstjörnuna og Óríon, sem gjörir niðmyrkrið að björtum morgni og dag að dimmri nótt, sem kallaði á vötn sjávarins og jós þeim yfir jörðina, Drottinn er nafn hans. |
9. | Hann lætur eyðing leiftra yfir hina sterku, og eyðing kemur yfir vígi. |
10. | þeir hata þann, sem ver réttinn í borgarhliðinu, og hafa viðbjóð á þeim, sem talar satt. |
11. | Sökum þess að þér fótum troðið hina snauðu og takið af þeim gjafir í korni, þá skuluð þér að vísu byggja hús úr höggnu grjóti, en eigi búa í þeim, skuluð planta yndislega víngarða, en ekki drekka vínið, sem úr þeim kemur. |
12. | Því að ég veit, að misgjörðir yðar eru margar og syndir yðar miklar. Þér þröngvið hinum saklausa, þiggið mútur og hallið rétti hinna fátæku í borgarhliðinu. |
13. | Fyrir því þegir hygginn maður á slíkri tíð, því að það er vond tíð. |
14. | Leitið hins góða, en ekki hins illa, til þess að þér megið lífi halda, og þá mun Drottinn, Guð allsherjar vera með yður, eins og þér hafið sagt. |
15. | Hatið hið illa og elskið hið góða, eflið réttinn í borgarhliðinu. Má vera að Drottinn, Guð allsherjar miskunni sig þá yfir leifar Jósefs. |
16. | Fyrir því segir Drottinn, Guð allsherjar, Drottinn: Á öllum torgum skal vera harmakvein, og á öllum strætum skal sagt verða: ,,Vei, vei!`` Og akurmennirnir skulu kalla þá er kveina kunna, til sorgarathafnar og harmakveins, |
17. | og í öllum víngörðum skal vera harmakvein, þá er ég fer um land þitt, _ segir Drottinn. |
18. | Vei þeim, sem óska þess, að dagur Drottins komi. Hvað skal yður dagur Drottins? Hann er dimmur, en ekki bjartur _ |
19. | eins og ef maður flýði undan ljóni, en yrði á vegi fyrir bjarndýri, kæmist þó heim og styddi hendi sinni við húsvegginn, en þá biti höggormur hann. |
20. | Já, dimmur er dagur Drottins, en ekki bjartur, myrkur og án nokkurrar ljósglætu. |
21. | Ég hata, ég fyrirlít hátíðir yðar og hefi enga unun af hátíðasamkomum yðar. |
22. | Þótt þér færið mér brennifórnir, þá hefi ég enga velþóknun á fórnargjöfum yðar, ég lít ekki við heillafórnum af alikálfum yðar. |
23. | Burt frá mér með glamur ljóða þinna, ég vil ekki heyra hljóm harpna þinna. |
24. | Lát heldur réttinn vella fram sem vatn og réttlætið sem sírennandi læk. |
25. | Færðuð þér mér, Ísraels hús, sláturfórnir og matfórnir í fjörutíu ár á eyðimörkinni? |
26. | En þér skuluð fá að bera Sikkút, konung yðar, og stjörnu Guðs yðar, Kevan, guðalíkneski yðar, er þér hafið gjört yður,og ég vil herleiða yður austur fyrir Damaskus, _ segir Drottinn. Guð allsherjar er nafn hans. |
27. | og ég vil herleiða yður austur fyrir Damaskus, _ segir Drottinn. Guð allsherjar er nafn hans. |
← Amos (5/9) → |