← Amos (2/9) → |
1. | Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Móabíta vil ég eigi snúa aftur með það _ af því að þeir brenndu bein Edómítakonungs að kalki, |
2. | vil ég senda eld gegn Móab, og hann mun eyða höllum Keríjótborgar. Og Móabítar munu deyja í vopnagný, við heróp og lúðurhljóm. |
3. | Ég vil afmá stjórnandann meðal þeirra og deyða alla höfðingja þeirra með honum, _ segir Drottinn. |
4. | Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Júdamanna vil ég eigi snúa aftur með það _ af því að þeir hafa hafnað lögmáli Drottins og eigi haldið boðorð hans, heldur látið falsgoð sín villa sig, þau er feður þeirra eltu, |
5. | vil ég senda eld gegn Júda, og hann mun eyða höllum Jerúsalem. |
6. | Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Ísraelsmanna vil ég eigi snúa aftur með það _ af því að þeir selja saklausan manninn fyrir silfur og fátæklinginn fyrir eina ilskó, |
7. | þeir fíkjast í moldarkornin á höfði hinna snauðu og hrinda aumingjunum í ógæfu, faðir og sonur ganga til kvensniftar til þess að vanhelga mitt heilaga nafn, |
8. | þeir liggja á veðteknum klæðum hjá hverju altari og drekka sektarvín í húsi Guðs síns. |
9. | Og þó ruddi ég Amorítum úr vegi þeirra, er svo voru háir sem sedrustré og svo sterkir sem eikitré. Ég eyddi ávöxtum þeirra að ofanverðu og rótum þeirra að neðan. |
10. | Ég flutti yður út af Egyptalandi og leiddi yður í fjörutíu ár í eyðimörkinni, til þess að þér mættuð eignast land Amoríta. |
11. | Ég uppvakti spámenn meðal sona yðar og Nasírea meðal æskumanna yðar. Er þetta eigi svo, Ísraelsmenn? _ segir Drottinn. |
12. | En þér gáfuð Nasíreunum vín að drekka og bönnuðuð spámönnunum að spá! |
13. | Sjá, ég vil láta jörðina undir yður riða, eins og vagn riðar, sem hlaðinn er kornkerfum. |
14. | Þá skal hinn frái ekki hafa neitt hæli að flýja í og hinn sterki ekki fá neytt krafta sinna og kappinn skal ekki forða mega fjörvi sínu. |
15. | Bogmaðurinn skal eigi fá staðist, hinn frái eigi fá komist undan og riddarinn ekki forða mega fjörvi sínu.Og hinn hugdjarfasti meðal kappanna _ nakinn skal hann á þeim degi í burt flýja, _ segir Drottinn. |
16. | Og hinn hugdjarfasti meðal kappanna _ nakinn skal hann á þeim degi í burt flýja, _ segir Drottinn. |
← Amos (2/9) → |