← Acts (9/28) → |
1. | En Sál blés enn ógnum og manndrápum gegn lærisveinum Drottins. Gekk hann til æðsta prestsins |
2. | og beiddist bréfa af honum til samkundanna í Damaskus, að hann mætti flytja í böndum til Jerúsalem þá, er hann kynni að finna og væru þessa vegar, hvort heldur karla eða konur. |
3. | En þegar hann var á ferð sinni kominn í nánd við Damaskus, leiftraði skyndilega um hann ljós af himni. |
4. | Hann féll til jarðar og heyrði rödd segja við sig: ,,Sál, Sál, hví ofsækir þú mig?`` |
5. | En hann sagði: ,,Hver ert þú, herra?`` Þá var svarað: ,,Ég er Jesús, sem þú ofsækir. |
6. | En statt upp og gakk inn í borgina, og þér mun verða sagt, hvað þú átt að gjöra.`` |
7. | Förunautar hans stóðu orðlausir. Þeir heyrðu að vísu raustina, en sáu engan. |
8. | Sál reis á fætur, en þegar hann lauk upp augunum, sá hann ekkert. Þeir leiddu hann við hönd sér inn í Damaskus. |
9. | Þrjá daga var hann sjónlaus og át hvorki né drakk. |
10. | Í Damaskus var lærisveinn nokkur, sem hét Ananías. Við hann sagði Drottinn í sýn: ,,Ananías.`` Hann svaraði: ,,Hér er ég, Drottinn.`` |
11. | Drottinn sagði við hann: ,,Far þegar í stræti það, sem kallað er Hið beina, og í húsi Júdasar skaltu spyrja eftir manni frá Tarsus, er heitir Sál. Hann er að biðja. |
12. | Og hann hefur í sýn séð mann, Ananías að nafni, koma inn og leggja hendur yfir sig, til þess að hann fái aftur sjón.`` |
13. | Ananías svaraði: ,,Drottinn, heyrt hef ég marga segja frá manni þessum, hve mikið illt hann hefur gjört þínum heilögu í Jerúsalem. |
14. | Og hér fer hann með vald frá æðstu prestunum að færa í bönd alla þá, sem ákalla nafn þitt.`` |
15. | Drottinn sagði við hann: ,,Far þú, því að þennan mann hef ég valið mér að verkfæri til þess að bera nafn mitt fram fyrir heiðingja, konunga og börn Ísraels, |
16. | og ég mun sýna honum, hversu mikið hann verður að þola vegna nafns míns.`` |
17. | Þá fór Ananías af stað, gekk inn í húsið og lagði hendur yfir hann og mælti: ,,Sál, bróðir, Drottinn hefur sent mig, Jesús, sá er birtist þér á leið þinni hingað. Þú átt að fá aftur sjón þína og fyllast heilögum anda.`` |
18. | Jafnskjótt var sem hreistur félli af augum hans, hann fékk aftur sjónina og lét þegar skírast. |
19. | Síðan neytti hann matar og styrktist. Sál var nokkra daga hjá lærisveinunum í Damaskus |
20. | og tók þegar að prédika í samkunduhúsunum, að Jesús væri sonur Guðs. |
21. | Allir þeir, sem heyrðu það, undruðust stórum og sögðu: ,,Er þetta ekki maðurinn, sem í Jerúsalem hugðist eyða þeim, er ákölluðu þetta nafn? Kom hann ekki hingað til að fara með þá í böndum til æðstu prestanna?`` |
22. | En Sál efldist æ meir og gjörði þá Gyðinga, sem bjuggu í Damaskus, rökþrota, er hann sannaði, að Jesús væri Kristur. |
23. | Að allmörgum dögum liðnum réðu Gyðingar með sér að taka hann af lífi. |
24. | En Sál fékk vitneskju um ráðagjörð þeirra. Þeir gættu borgarhliðanna nótt og dag til að ná lífi hans. |
25. | En lærisveinarnir tóku hann um nótt og komu honum út fyrir borgarmúrinn með því að láta hann síga ofan í körfu. |
26. | Þá er hann kom til Jerúsalem, reyndi hann að samlaga sig lærisveinunum, en þeir hræddust hann allir og trúðu ekki, að hann væri lærisveinn. |
27. | En Barnabas tók hann að sér, fór með hann til postulanna og skýrði þeim frá, hvernig hann hefði séð Drottin á veginum, hvað hann hefði sagt við hann og hversu einarðlega hann hefði talað í Jesú nafni í Damaskus. |
28. | Dvaldist hann nú með þeim í Jerúsalem, gekk þar út og inn og talaði einarðlega í nafni Drottins. |
29. | Hann talaði og háði kappræður við grískumælandi Gyðinga, en þeir leituðust við að ráða hann af dögum. |
30. | Þegar bræðurnir urðu þessa vísir, fóru þeir með hann til Sesareu og sendu hann áfram til Tarsus. |
31. | Nú hafði kirkjan frið um alla Júdeu, Galíleu og Samaríu. Hún byggðist upp og gekk fram í ótta Drottins og óx við styrkingu heilags anda. |
32. | Svo bar við, er Pétur var að ferðast um og vitja allra, að hann kom og til hinna heilögu, sem áttu heima í Lýddu. |
33. | Þar fann hann mann nokkurn, Eneas að nafni, er í átta ár hafði legið rúmfastur. Hann var lami. |
34. | Pétur sagði við hann: ,,Eneas, Jesús Kristur læknar þig, statt upp og bú um þig.`` Jafnskjótt stóð hann upp. |
35. | Allir þeir, sem áttu heima í Lýddu og Saron, sáu hann, og þeir sneru sér til Drottins. |
36. | Í Joppe var lærisveinn, kona að nafni Tabíþa, á grísku Dorkas. Hún var mjög góðgerðasöm og örlát við snauða. |
37. | En á þeim dögum tók hún sótt og andaðist. Var hún lauguð og lögð í loftstofu. |
38. | Nú er Lýdda í grennd við Joppe, og höfðu lærisveinarnir heyrt, að Pétur væri þar. Sendu þeir tvo menn til hans og báðu hann: ,,Kom án tafar til vor.`` |
39. | Pétur brá við og fór með þeim. Þegar þangað kom, fóru þeir með hann upp í loftstofuna, og allar ekkjurnar komu til hans grátandi og sýndu honum kyrtla og yfirhafnir, sem Dorkas hafði gjört, meðan hún var hjá þeim. |
40. | En Pétur lét alla fara út, féll á kné og baðst fyrir. Síðan sneri hann sér að líkinu og sagði: ,,Tabíþa, rís upp.`` En hún opnaði augun, sá Pétur og settist upp. |
41. | Og hann rétti henni höndina og reisti hana á fætur, kallaði síðan á hina heilögu og ekkjurnar og leiddi hana fram lifandi. |
42. | Þetta varð hljóðbært um alla Joppe, og margir tóku trú á Drottin.Var Pétur um kyrrt í Joppe allmarga daga hjá Símoni nokkrum sútara. |
43. | Var Pétur um kyrrt í Joppe allmarga daga hjá Símoni nokkrum sútara. |
← Acts (9/28) → |