| ← Acts (7/28) → |
| 1. | Þá spurði æðsti presturinn: ,,Er þessu svo farið?`` |
| 2. | Stefán svaraði: ,,Heyrið mig, bræður og feður. Guð dýrðarinnar birtist föður vorum, Abraham, er hann var enn í Mesópótamíu, áður en hann settist að í Haran, |
| 3. | og sagði við hann: ,Far þú burt úr landi þínu og frá ættfólki þínu til landsins, sem ég mun vísa þér á.` |
| 4. | Þá fór hann burt úr Kaldealandi og settist að í Haran. En eftir lát föður hans leiddi Guð hann þaðan til þessa lands, sem þér nú byggið. |
| 5. | Ekki gaf hann honum óðal hér, ekki eitt fótmál. En hann hét honum að gefa honum landið til eignar og niðjum hans eftir hann, þótt hann væri enn barnlaus. |
| 6. | Guð sagði, að niðjar hans mundu búa sem útlendingar í ókunnu landi og verða þjáðir og þrælkaðir í fjögur hundruð ár. |
| 7. | ,En þjóðina, sem þrælkar þá, mun ég dæma,` sagði Guð, ,og eftir það munu þeir fara þaðan og þjóna mér á þessum stað.` |
| 8. | Þá gaf hann honum sáttmála umskurnarinnar. Síðan gat Abraham Ísak og umskar hann á áttunda degi, og Ísak gat Jakob og Jakob ættfeðurna tólf. |
| 9. | Og ættfeðurnir öfunduðu Jósef og seldu hann til Egyptalands. En Guð var með honum, |
| 10. | frelsaði hann úr öllum þrengingum hans og veitti honum hylli og visku í augum Faraós, Egyptalandskonungs, svo að hann skipaði hann höfðingja yfir Egyptaland og yfir allt sitt hús. |
| 11. | Nú kom hallæri á öllu Egyptalandi og Kanaan og mikil þrenging, og feður vorir höfðu ekki lífsbjörg. |
| 12. | En er Jakob heyrði, að korn væri til á Egyptalandi, sendi hann feður vora þangað hið fyrra sinn. |
| 13. | Og í síðara skiptið gaf Jósef sig fram við bræður sína, og Faraó varð kunn ætt Jósefs. |
| 14. | En Jósef sendi eftir Jakobi föður sínum og öllu ættfólki sínu, sjötíu og fimm manns, |
| 15. | og Jakob fór suður til Egyptalands. Þar andaðist hann og feður vorir. |
| 16. | Þeir voru fluttir til Síkem og lagðir í grafreitinn, er Abraham hafði keypt fyrir silfur af sonum Hemors í Síkem. |
| 17. | Nú tók að nálgast sá tími, er rætast skyldi fyrirheitið, sem Guð hafði gefið Abraham. Fólkið hafði vaxið og margfaldast í Egyptalandi. |
| 18. | ,Þá hófst til ríkis þar annar konungur, er eigi vissi skyn á Jósef.` |
| 19. | Hann beitti kyn vort slægð og lék feður vora illa. Hann lét þá bera út ungbörn sín, til þess að þjóðin skyldi eigi lífi halda. |
| 20. | Um þessar mundir fæddist Móse og var forkunnar fríður. Þrjá mánuði var hann fóstraður í húsi föður síns. |
| 21. | En er hann var út borinn, tók dóttir Faraós hann og fóstraði sem sinn son. |
| 22. | Móse var fræddur í allri speki Egypta, og hann var máttugur í orðum sínum og verkum. |
| 23. | Þegar hann var fertugur að aldri, kom honum í hug að vitja bræðra sinna, Ísraelsmanna. |
| 24. | Hann sá einn þeirra verða fyrir ójöfnuði, og rétti hann hlut hans, hefndi þess, sem meingjörðina þoldi, og drap Egyptann. |
| 25. | Hann hugði, að bræður hans mundu skilja, að Guð ætlaði að nota hann til að bjarga þeim, en þeir skildu það ekki. |
| 26. | Næsta dag kom hann að tveim þeirra, sem slógust. Hann reyndi að stilla til friðar með þeim og sagði: ,Góðir menn, þið eruð bræður, hví eigist þið illt við?` |
| 27. | En sá sem beitti náunga sinn órétti, hratt honum frá sér og sagði: ,Hver skipaði þig höfðingja og dómara yfir okkur? |
| 28. | Þú munt þó ekki vilja drepa mig, eins og þú drapst Egyptann í gær?` |
| 29. | Við þessi orð flýði Móse og settist að sem útlendingur í Midíanslandi. Þar gat hann tvo sonu. |
| 30. | Að fjörutíu árum liðnum ,birtist honum engill í eyðimörk Sínaífjalls í logandi þyrnirunna.` |
| 31. | Móse undraðist sýnina, gekk nær og vildi hyggja að. Þá hljómaði rödd Drottins: |
| 32. | ,Ég er Guð feðra þinna, Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs.` En Móse skelfdist og þorði ekki að hyggja frekar að. |
| 33. | En Drottinn sagði við hann: ,Leys af þér skó þína, því að staðurinn, sem þú stendur á, er heilög jörð. |
| 34. | Ég hef sannlega séð áþján lýðs míns á Egyptalandi og heyrt andvörp þeirra og er ofan kominn að frelsa þá. Kom nú, ég vil senda þig til Egyptalands.` |
| 35. | Þennan Móse, er þeir afneituðu með því að segja: ,Hver skipaði þig höfðingja og dómara?` hann sendi Guð sem höfðingja og lausnara með fulltingi engilsins, er honum birtist í þyrnirunnanum. |
| 36. | Það var Móse, sem leiddi þá út og gjörði undur og tákn á Egyptalandi, í Rauðahafinu og á eyðimörkinni í fjörutíu ár. |
| 37. | Þessi er sá Móse, sem sagði við Ísraelsmenn: ,Spámann eins og mig mun Guð upp vekja yður, einn af bræðrum yðar.` |
| 38. | Hann er sá, sem var í söfnuðinum í eyðimörkinni, með englinum, er við hann talaði á Sínaífjalli, og með feðrum vorum. Hann tók á móti lifandi orðum að gefa oss. |
| 39. | Eigi vildu feður vorir hlýðnast honum, heldur hrundu honum frá sér og þráðu í hjörtum sínum Egyptaland. |
| 40. | Þeir sögðu við Aron: ,Gjör oss guði, er fyrir oss fari, því að ekki vitum vér, hvað orðið er af Móse þeim, sem leiddi oss brott af Egyptalandi.` |
| 41. | Og á þeim dögum smíðuðu þeir kálf, færðu skurðgoðinu fórn og kættust af verki handa sinna. |
| 42. | En Guð sneri sér frá þeim og lét þeim eftir að dýrka her himinsins, eins og ritað er í spámannabókinni: Hvort færðuð þér mér, Ísraels ætt, sláturdýr og fórnir árin fjörutíu í eyðimörkinni? |
| 43. | Nei, þér báruð búð Móloks og stjörnu guðsins Refans, myndirnar, sem þér smíðuðuð til þess að tilbiðja þær. Ég mun herleiða yður austur fyrir Babýlon. |
| 44. | Vitnisburðartjaldbúðina höfðu feður vorir í eyðimörkinni. Hún var gjörð eins og sá bauð, er við Móse mælti, eftir þeirri fyrirmynd, sem Móse sá. |
| 45. | Við henni tóku og feður vorir, fluttu hana með Jósúa inn í landið, sem þeir tóku til eignar af heiðingjunum, er Guð rak brott undan þeim. Stóð svo allt til daga Davíðs. |
| 46. | Hann fann náð hjá Guði og bað, að hann mætti finna bústað fyrir Jakobs Guð. |
| 47. | En Salómon reisti honum hús. |
| 48. | En eigi býr hinn hæsti í því, sem með höndum er gjört. Spámaðurinn segir: |
| 49. | Himinninn er hásæti mitt og jörðin skör fóta minna. Hvaða hús munuð þér reisa mér, segir Drottinn, eða hver er hvíldarstaður minn? |
| 50. | Hefur ekki hönd mín skapað allt þetta? |
| 51. | Þér harðsvíraðir og óumskornir í hjörtum og á eyrum, þér standið ávallt gegn heilögum anda, þér eins og feður yðar. |
| 52. | Hver var sá spámaður, sem feður yðar ofsóttu eigi? Þeir drápu þá, er boðuðu fyrirfram komu hins réttláta, og nú hafið þér svikið hann og myrt. |
| 53. | Þér sem lögmálið fenguð fyrir umsýslan engla, en hafið þó eigi haldið það.`` |
| 54. | Þegar þeir heyrðu þetta, trylltust þeir og gnístu tönnum gegn honum. |
| 55. | En hann horfði til himins, fullur af heilögum anda og leit dýrð Guðs og Jesú standa til hægri handar Guði |
| 56. | og sagði: ,,Ég sé himnana opna og Mannssoninn standa til hægri handar Guði.`` |
| 57. | Þá æptu þeir hástöfum, héldu fyrir eyrun og réðust að honum, allir sem einn maður. |
| 58. | Þeir hröktu hann út úr borginni og tóku að grýta hann. En vottarnir lögðu yfirhafnir sínar að fótum ungum manni, er Sál hét. |
| 59. | Þannig grýttu þeir Stefán. En hann ákallaði Drottin og sagði: ,,Drottinn Jesús, meðtak þú anda minn.``Síðan féll hann á kné og hrópaði hárri röddu: ,,Drottinn, lát þá ekki gjalda þessarar syndar.`` Þegar hann hafði þetta mælt, sofnaði hann. |
| 60. | Síðan féll hann á kné og hrópaði hárri röddu: ,,Drottinn, lát þá ekki gjalda þessarar syndar.`` Þegar hann hafði þetta mælt, sofnaði hann. |
| ← Acts (7/28) → |