← Acts (4/28) → |
1. | Meðan þeir voru að tala til fólksins, komu að þeim prestarnir, varðforingi helgidómsins og saddúkearnir. |
2. | Þeir voru æfir af því að postularnir voru að kenna fólkinu og boða upprisu dauðra í Jesú. |
3. | Lögðu þeir hendur á þá og settu þá í varðhald til næsta morguns, því að kvöld var komið. |
4. | En margir þeirra, er heyrt höfðu orðið, tóku trú, og tala karlmanna varð um fimm þúsundir. |
5. | Næsta morgun komu höfðingjarnir, öldungarnir og fræðimennirnir saman í Jerúsalem. |
6. | Þar voru Annas, æðsti prestur, Kaífas, Jóhannes, Alexander og allir, sem voru af æðsta prests ættum. |
7. | Þeir létu leiða postulana fram og spurðu þá: ,,Með hvaða krafti eða í hvers nafni gjörðuð þið þetta?`` |
8. | Þá sagði Pétur við þá, fylltur heilögum anda: ,,Þér höfðingjar lýðsins og öldungar, |
9. | með því að við eigum í dag að svara til saka vegna góðverks við sjúkan mann og gera grein fyrir því, hvernig hann sé heill orðinn, |
10. | þá sé yður öllum kunnugt og öllum Ísraelslýð, að í nafni Jesú Krists frá Nasaret, þess er þér krossfestuð, en Guð uppvakti frá dauðum, í hans nafni stendur þessi maður heilbrigður fyrir augum yðar. |
11. | Jesús er steinninn, sem þér, húsasmiðirnir, virtuð einskis, hann er orðinn hyrningarsteinn. |
12. | Ekki er hjálpræðið í neinum öðrum. Og ekkert annað nafn er mönnum gefið um víða veröld, sem getur frelsað oss.`` |
13. | Þegar þeir sáu djörfung Péturs og Jóhannesar og skildu, að þeir voru ólærðir leikmenn, undruðust þeir. Þeir könnuðust og við, að þeir höfðu verið með Jesú. |
14. | Og er þeir sáu manninn, sem læknaður hafði verið, standa hjá þeim, máttu þeir ekki í móti mæla. |
15. | Þeir skipuðu þeim að ganga út frá ráðinu, tóku saman ráð sín og sögðu: |
16. | ,,Hvað eigum vér að gjöra við þessa menn? Því að augljóst er öllum Jerúsalembúum, að ótvírætt tákn er orðið af þeirra völdum. Vér getum ekki neitað því. |
17. | Þetta má ekki berast frekar út meðal lýðsins. Vér skulum því hóta þeim hörðu, að þeir tali aldrei framar í þessu nafni við nokkurn mann.`` |
18. | Síðan kölluðu þeir þá fyrir sig og skipuðu þeim að hætta með öllu að tala eða kenna í Jesú nafni. |
19. | Pétur og Jóhannes svöruðu: ,,Dæmið sjálfir, hvort það sé rétt í augum Guðs að hlýðnast yður fremur en honum. |
20. | Vér getum ekki annað en talað það, sem vér höfum séð og heyrt.`` |
21. | En þeir ógnuðu þeim enn frekar og slepptu þeim síðan, þar sem þeir sáu enga leið vegna fólksins að hegna þeim, því allir lofuðu Guð fyrir þennan atburð. |
22. | En maðurinn, sem læknast hafði með þessu tákni, var yfir fertugt. |
23. | Er þeim hafði verið sleppt, fóru þeir til félaga sinna og greindu þeim frá öllu því, sem æðstu prestarnir og öldungarnir höfðu við þá talað. |
24. | Þegar þeir heyrðu það, hófu þeir einum huga raust sína til Guðs og sögðu: ,,Herra, þú sem gjörðir himin, jörð og haf og allt, sem í þeim er, |
25. | þú, sem lést heilagan anda mæla af munni Davíðs, föður vors, þjóns þíns: Hví geisuðu heiðingjarnir, og hví hugðu lýðirnir á hégómleg ráð? |
26. | Konungar jarðarinnar risu upp, og höfðingjarnir söfnuðust saman gegn Drottni og gegn hans Smurða. |
27. | Því að sannarlega söfnuðust saman í borg þessari gegn hinum heilaga þjóni þínum, Jesú, er þú smurðir, þeir Heródes og Pontíus Pílatus ásamt heiðingjunum og lýðum Ísraels |
28. | til að gjöra allt það, er hönd þín og ráð hafði fyrirhugað, að verða skyldi. |
29. | Og nú, Drottinn, lít á hótanir þeirra og veit þjónum þínum fulla djörfung að tala orð þitt. |
30. | Rétt þú út hönd þína til að lækna og lát tákn og undur verða fyrir nafn þíns heilaga þjóns, Jesú.`` |
31. | Þegar þeir höfðu beðist fyrir, hrærðist staðurinn, þar sem þeir voru saman komnir, og þeir fylltust allir heilögum anda og töluðu orð Guðs af djörfung. |
32. | En í þeim fjölda, sem trú hafði tekið, var eitt hjarta og ein sál, og enginn þeirra taldi neitt vera sitt, er hann átti, heldur höfðu þeir allt sameiginlegt. |
33. | Postularnir báru vitni um upprisu Drottins Jesú með miklum krafti, og mikil náð var yfir þeim öllum. |
34. | Eigi var heldur neinn þurfandi meðal þeirra, því að allir landeigendur og húseigendur seldu eign sína, komu með andvirðið |
35. | og lögðu fyrir fætur postulanna. Og sérhverjum var úthlutað eftir því sem hann hafði þörf til. |
36. | Jósef levíti, frá Kýpur, sem postularnir kölluðu Barnabas, það þýðir huggunar sonur,átti sáðland og seldi, kom með verðið og lagði fyrir fætur postulanna. |
37. | átti sáðland og seldi, kom með verðið og lagði fyrir fætur postulanna. |
← Acts (4/28) → |