← 2Timothy (3/4) → |
1. | Vita skalt þú þetta, að á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir. |
2. | Mennirnir verða sérgóðir, fégjarnir, raupsamir, hrokafullir, lastmælendur, foreldrum óhlýðnir, vanþakklátir, vanheilagir, |
3. | kærleikslausir, ósáttfúsir, rógberandi, taumlausir, grimmir, ekki elskandi það sem gott er, |
4. | sviksamir, framhleypnir, ofmetnaðarfullir, elskandi munaðarlífið meira en Guð. |
5. | Þeir hafa á sér yfirskin guðhræðslunnar, en afneita krafti hennar. Snú þér burt frá slíkum! |
6. | Úr hópi þeirra eru mennirnir, sem smeygja sér inn á heimilin og ná á band sitt kvensniftum, sem syndum eru hlaðnar og leiðast af margvíslegum fýsnum. |
7. | Þær eru alltaf að reyna að læra, en geta aldrei komist til þekkingar á sannleikanum. |
8. | Eins og þeir Jannes og Jambres stóðu í gegn Móse, þannig standa og þessir menn í gegn sannleikanum. Þeir eru menn hugspilltir og óhæfir í trúnni. |
9. | En þeim mun ekki verða ágengt, því að heimska þeirra mun verða hverjum manni augljós, eins og líka heimska hinna varð. |
10. | Þú hefur breytt eftir mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði, |
11. | í ofsóknum og þjáningum, slíkum sem fyrir mig komu í Antíokkíu, í Íkóníum og í Lýstru. Slíkar ofsóknir þoldi ég, og Drottinn frelsaði mig úr þeim öllum. |
12. | Já, allir, sem lifa vilja guðrækilega í samfélagi við Krist Jesú, munu ofsóttir verða. |
13. | En vondir menn og svikarar munu magnast í vonskunni, villandi aðra og villuráfandi sjálfir. |
14. | En halt þú stöðuglega við það, sem þú hefur numið og hefur fest trú á, þar eð þú veist af hverjum þú hefur numið það. |
15. | Þú hefur frá blautu barnsbeini þekkt heilagar ritningar. Þær geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist Jesú. |
16. | Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, til umvöndunar, til leiðréttingar, til menntunar í réttlæti,til þess að sá, sem tilheyrir Guði, sé albúinn og hæfur gjör til sérhvers góðs verks. |
17. | til þess að sá, sem tilheyrir Guði, sé albúinn og hæfur gjör til sérhvers góðs verks. |
← 2Timothy (3/4) → |