← 2Thessalonians (2/3) → |
1. | En að því er snertir komu Drottins vors Jesú Krists og það, að vér söfnumst til hans, biðjum vér yður, bræður, |
2. | að þér séuð ekki fljótir til að komast í uppnám eða láta hræða yður, hvorki af nokkrum anda né við orð eða bréf, sem væri það frá oss, eins og dagur Drottins væri þegar fyrir höndum. |
3. | Látið engan villa yður á nokkurn hátt. Því að ekki kemur dagurinn nema fráhvarfið komi fyrst og maður syndarinnar birtist. Hann er sonur glötunarinnar, |
4. | sem setur sig á móti Guði og rís gegn öllu því, sem kallast Guð eða helgur dómur. Hann sest í musteri Guðs og gjörir sjálfan sig að Guði. |
5. | Minnist þér ekki þess, að ég sagði yður þetta, meðan ég enn þá var hjá yður? |
6. | Og þér vitið, hvað aftrar honum nú, til þess að hann opinberist á sínum tíma. |
7. | Því að lögleysið er þegar farið að starfa í leyndum og stendur ekki á öðru en að þeim verði burt rýmt, sem nú heldur aftur af. |
8. | Þá mun lögleysinginn opinberast, _ og honum mun Drottinn Jesús tortíma með anda munns síns og að engu gjöra þegar hann birtist við endurkomu sína. |
9. | Lögleysinginn kemur fyrir tilverknað Satans með miklum krafti, lygatáknum og undrum |
10. | og með alls konar ranglætisvélum, sem blekkja þá, sem glatast, af því að þeir veittu ekki viðtöku og elskuðu ekki sannleikann, svo að þeir mættu verða hólpnir. |
11. | Þess vegna sendir Guð þeim megna villu, til þess að þeir trúi lyginni. |
12. | Þannig munu allir þeir verða dæmdir, sem hafa ekki trúað sannleikanum, en haft velþóknun á ranglætinu. |
13. | En alltaf hljótum vér að þakka Guði fyrir yður, bræður, sem Drottinn elskar. Guð hefur frá upphafi útvalið yður til frelsunar í helgun andans og trú á sannleikann. |
14. | Til þess kallaði hann yður fyrir fagnaðarboðskap vorn, að þér skylduð öðlast dýrð Drottins vors Jesú Krists. |
15. | Bræður, standið því stöðugir og haldið fast við þær kenningar, er vér höfum flutt yður munnlega eða með bréfi. |
16. | En sjálfur Drottinn vor Jesús Kristur og Guð, faðir vor, sem elskaði oss og gaf oss í náð eilífa huggun og góða von,huggi hjörtu yðar og styrki í sérhverju góðu verki og orði. |
17. | huggi hjörtu yðar og styrki í sérhverju góðu verki og orði. |
← 2Thessalonians (2/3) → |