← 2Samuel (8/24) → |
1. | Eftir þetta vann Davíð sigur á Filistum og braut þá undir sig og tók tauma höfuðstaðarins úr höndum Filista. |
2. | Hann vann og sigur á Móabítum og mældi þá með vað, það er að segja, hann lét þá leggjast niður á jörðina og mældi tvo vaði til lífláts og eina vaðlengd til að halda lífi. Þannig urðu Móabítar skattskyldir þegnar Davíðs. |
3. | Davíð vann og sigur á Hadadeser Rehóbssyni, konungi í Sóba, þá er hann fór leiðangur til að ná aftur ríki við Efrat. |
4. | Vann Davíð af honum eitt þúsund og sjö hundruð riddara og tuttugu þúsundir fótgönguliðs. Lét Davíð skera sundur hásinarnar á öllum stríðshestunum og hélt aðeins hestum fyrir hundrað stríðsvagna eftir. |
5. | Og er Sýrlendingar frá Damaskus komu til liðs við Hadadeser, konung í Sóba, þá felldi Davíð tuttugu og tvö þúsund manns af Sýrlendingum. |
6. | Og Davíð setti landstjóra á Sýrlandi, því er kennt er við Damaskus, og urðu Sýrlendingar skattskyldir þegnar Davíðs. Þannig veitti Drottinn Davíð sigur, hvert sem hann fór. |
7. | Davíð tók og hina gullnu skjöldu, er þjónar Hadadesers höfðu borið, og flutti þá til Jerúsalem. |
8. | Auk þess tók Davíð konungur afar mikið af eir í Beta og Berótaj, borgum Hadadesers. |
9. | Þegar Tóú, konungur í Hamat, frétti að Davíð hefði lagt að velli allan her Hadadesers, |
10. | þá sendi Tóú Hadóram son sinn á fund Davíðs konungs til þess að heilsa á hann og árna honum heilla, er hann hafði barist við Hadadeser og unnið sigur á honum _ því að Tóú átti í ófriði við Hadadeser _, og hafði hann með sér gripi af silfri, gulli og eiri. |
11. | Gripina helgaði Davíð konungur einnig Drottni, ásamt silfri því og gulli, er hann hafði helgað frá öllum þeim þjóðum, er hann hafði undirokað: |
12. | frá Edóm, Móab, Ammónítum, Filistum, Amalek og af herfangi Hadadesers Rehóbssonar, konungs í Sóba. |
13. | Davíð jók orðstír sinn, þá er hann sneri aftur og hafði unnið sigur á Sýrlendingum, með því að vinna sigur á Edómítum í Saltdalnum, átján þúsund manns. |
14. | Og hann setti landstjóra í Edóm. Um allt Edóm setti hann landstjóra, og þannig urðu allir Edómítar þegnar Davíðs. En Drottinn veitti Davíð sigur, hvert sem hann fór. |
15. | Davíð ríkti yfir öllum Ísrael og lét alla þjóð sína njóta laga og réttar. |
16. | Jóab Serújuson var fyrir hernum, og Jósafat Ahílúðsson var ríkisritari. |
17. | Sadók Ahítúbsson og Ahímelek Abjatarsson voru prestar og Seraja kanslari.Benaja Jójadason var fyrir Kretum og Pletum, og synir Davíðs voru prestar. |
18. | Benaja Jójadason var fyrir Kretum og Pletum, og synir Davíðs voru prestar. |
← 2Samuel (8/24) → |