← 2Samuel (23/24) → |
1. | Þetta eru síðustu orð Davíðs: Svo mælti Davíð Ísaíson, svo mælti maðurinn, er hátt var settur, hinn smurði Jakobs Guðs, ljúflingur Ísraels ljóða. |
2. | Andi Drottins talaði í mér og hans orð er á minni tungu. |
3. | Ísraels Guð talaði, bjarg Ísraels mælti við mig: ,,Sá sem ríkir yfir mönnum með réttvísi, sá sem ríkir í ótta Guðs, |
4. | hann er eins og dagsbirtan, þegar sólin rennur upp á heiðríkju-morgni, þegar grasið sprettur í glaðasólskini eftir regn.`` |
5. | Já, er ekki hús mitt svo fyrir Guði? Því að hann hefir gjört við mig eilífan sáttmála, ákveðinn í öllum greinum og áreiðanlegan. Já, allt sem verður mér til heilla og gleði, skyldi hann ekki veita því vöxt? |
6. | En varmennin, þau eru öll eins og þyrnar, sem út er kastað, því að enginn tekur á þeim með hendinni. |
7. | Hver, sem rekst á þau, vopnast járni og spjótskafti, og í eldi munu þau brennd verða til kaldra kola. |
8. | Þetta eru nöfnin á köppum Davíðs: Ísbaal Hakmóníti, höfðingi hinna þriggja. Hann veifaði spjóti sínu yfir átta hundruð vegnum í einu. |
9. | Honum næstur er, meðal kappanna þriggja, Eleasar Dódóson, Ahóhíti. Hann var með Davíð í Pas Dammím, en Filistar höfðu safnast þar saman til orustu. En er Ísraelsmenn hörfuðu undan, |
10. | stóð hann fastur fyrir og barði á Filistum, uns hann varð þreyttur í hendinni, og hönd hans var kreppt um sverðið, og Drottinn veitti mikinn sigur á þeim degi. Og liðið sneri aftur með honum aðeins til rána. |
11. | Næstur honum er Samma Ageson, Hararíti. Filistar söfnuðust saman og fóru til Lekí, en þar var akurspilda, alsprottin flatbaunum. En er fólkið flýði fyrir Filistum, |
12. | nam hann staðar í spildunni miðri, náði henni og vann sigur á Filistum. Veitti Drottinn þannig mikinn sigur. |
13. | Einu sinni fóru þrír af höfðingjunum þrjátíu og komu til Davíðs í hamrinum, í Adúllamvíginu, en flokkur af Filistum lá í herbúðum í Refaímdal. |
14. | Þá var Davíð í víginu, en varðsveit Filista var þá í Betlehem. |
15. | Þá þyrsti Davíð og hann sagði: ,,Hver vill sækja mér vatn í brunninn í Betlehem, sem er þar við hliðið?`` |
16. | Þá brutust kapparnir þrír gegnum herbúðir Filista, jusu vatni úr brunninum í Betlehem, sem þar er við hliðið, tóku það og færðu Davíð. En hann vildi ekki drekka það, heldur dreypti því Drottni til handa |
17. | og mælti: ,,Drottinn láti það vera fjarri mér að gjöra slíkt! Get ég drukkið blóð þeirra manna, sem stofnuðu lífi sínu í hættu með því að fara?`` _ og hann vildi ekki drekka það. Þetta gjörðu kapparnir þrír. |
18. | Abísaí, bróðir Jóabs, sonur Serúju, var fyrir hinum þrjátíu. Hann veifaði spjóti sínu yfir þrjú hundruð vegnum og var frægur meðal hinna þrjátíu. |
19. | Af hinum þrjátíu var hann í heiðri hafður og var foringi þeirra, en til jafns við þá þrjá komst hann ekki. |
20. | Benaja Jójadason, hraustmenni, frægur fyrir afreksverk sín, var frá Kabseel. Hann drap báða sonu Aríels frá Móab. Hann sté ofan í brunn og drap þar ljón einn dag, er snjóað hafði. |
21. | Hann drap og egypskan mann tröllaukinn. Egyptinn hafði spjót í hendi, en hann fór á móti honum með staf, reif spjótið úr hendi Egyptans og drap hann með hans eigin spjóti. |
22. | Þetta gjörði Benaja Jójadason. Hann var frægur meðal þrjátíu kappanna. |
23. | Af hinum þrjátíu var hann í heiðri hafður, en til jafns við þá þrjá komst hann ekki. Davíð setti hann yfir lífvörð sinn. |
24. | Meðal hinna þrjátíu voru: Asahel, bróðir Jóabs, Elkanan Dódóson frá Betlehem, |
25. | Samma frá Haród, Elíka frá Haród, |
26. | Heles frá Pelet, Íra Íkkesson frá Tekóa, |
27. | Abíeser frá Anatót, Síbbekaí frá Húsa, |
28. | Salmón frá Ahó, Maharaí frá Netófa, |
29. | Heled Baanason frá Netófa, Íttaí Ríbaíson frá Gíbeu í Benjamíns ættkvísl, |
30. | Benaja frá Píraton, Híddaí frá Nahale Gaas, |
31. | Abi Albon frá Bet Araba, Asmavet frá Bahúrím, |
32. | Eljahba frá Saalbón, Jasen Gúníti, |
33. | Jónatan Sammason frá Harar, Ahíam Sararsson frá Arar, |
34. | Elífelet Ahasbaíson frá Maaka, Elíam Akítófelsson frá Gíló, |
35. | Hesró frá Karmel, Paaraí Arkíti, |
36. | Jígal Natansson frá Sóba, Baní frá Gað, |
37. | Selek Ammóníti, Naharaí frá Beerót, skjaldsveinn Jóabs Serújusonar, |
38. | Íra frá Jattír, Gareb frá Jattír,Úría Hetíti. Til samans þrjátíu og sjö. |
39. | Úría Hetíti. Til samans þrjátíu og sjö. |
← 2Samuel (23/24) → |