← 2Samuel (22/24) → |
1. | Davíð flutti Drottni orð þessa ljóðs, þá er Drottinn frelsaði hann af hendi allra óvina hans og af hendi Sáls. |
2. | Hann mælti: Drottinn er bjarg mitt og vígi, hann er sá sem hjálpar mér. |
3. | Guð minn er hellubjarg mitt, þar sem ég leita hælis, skjöldur minn og horn hjálpræðis míns, háborg mín og hæli, frelsari minn, sem frelsar mig frá ofbeldi. |
4. | Lofaður sé Drottinn, hrópa ég, og ég frelsast frá óvinum mínum. |
5. | Brimöldur dauðans umkringdu mig, elfur glötunarinnar skelfdu mig, |
6. | snörur Heljar luktu um mig, möskvar dauðans féllu yfir mig. |
7. | Í angist minni kallaði ég á Drottin, og til Guðs míns hrópaði ég. Í helgidómi sínum heyrði hann raust mína, óp mitt barst til eyrna honum. |
8. | Jörðin bifaðist og nötraði, undirstöður fjallanna skulfu, þær bifuðust, því að hann var reiður. |
9. | Reykur gekk fram úr nösum hans og eyðandi eldur af munni hans, glóðir brunnu út frá honum. |
10. | Hann sveigði himininn og steig niður, og skýsorti var undir fótum hans. |
11. | Hann steig á bak kerúb og flaug af stað og sveif á vængjum vindarins. |
12. | Hann gjörði myrkrið í kringum sig að skýli, regnsortann og skýþykknið. |
13. | Frá ljómanum fyrir honum flugu hagl og eldglæringar. |
14. | Drottinn þrumaði af himni, hinn hæsti lét raust sína gjalla. |
15. | Hann skaut örvum sínum og tvístraði þeim, lét eldingarnar leiftra og hræddi þá. |
16. | Þá sá í mararbotn, og undirstöður jarðarinnar urðu berar fyrir ógnum Drottins, fyrir andgustinum úr nösum hans. |
17. | Hann seildist niður af hæðum og greip mig, dró mig upp úr hinum miklu vötnum. |
18. | Hann frelsaði mig frá hinum sterku óvinum mínum, frá fjandmönnum mínum, er voru mér yfirsterkari. |
19. | Þeir réðust á mig á mínum óheilladegi, en Drottinn var mín stoð. |
20. | Hann leiddi mig út á víðlendi, hann frelsaði mig, af því að hann hafði þóknun á mér. |
21. | Drottinn fór með mig eftir réttlæti mínu, eftir hreinleik handa minna galt hann mér, |
22. | því að ég hefi varðveitt vegu Drottins og hefi ekki reynst ótrúr Guði mínum. |
23. | Allar skipanir hans hefi ég fyrir augum og frá boðorðum hans hefi ég ekki vikið. |
24. | Ég var lýtalaus fyrir honum og gætti mín við misgjörðum. |
25. | Drottinn galt mér eftir réttlæti mínu, eftir hreinleik handa minna fyrir augliti hans. |
26. | Gagnvart ástríkum ert þú ástríkur, gagnvart ráðvöndum ráðvandur, |
27. | gagnvart hreinum hreinn, en gagnvart rangsnúnum ert þú afundinn. |
28. | Þú hjálpar þjáðum lýð, en gjörir alla hrokafulla niðurlúta. |
29. | Já, þú ert lampi minn, Drottinn, Guð minn lýsir mér í myrkrinu. |
30. | Fyrir þína hjálp hleyp ég yfir virkisgrafir, fyrir hjálp Guðs míns stekk ég yfir borgarveggi. |
31. | Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er skírt. Skjöldur er hann öllum þeim, sem leita hælis hjá honum. |
32. | Því að hver er Guð, nema Drottinn, og hver er hellubjarg, utan vor Guð? |
33. | Sá Guð, sem gyrðir mig styrkleika og gjörir veg minn sléttan. |
34. | Hann gjörir fætur mína sem hindanna og veitir mér fótfestu á hæðunum. |
35. | Hann æfir hendur mínar til hernaðar, svo að armar mínir benda eirbogann. |
36. | Þú gafst mér skjöld hjálpræðis þíns, og lítillæti þitt gjörði mig mikinn. |
37. | Þú rýmdir til fyrir skrefum mínum og ökklar mínir riðuðu ekki. |
38. | Ég elti óvini mína og náði þeim, og sneri ekki aftur fyrr en ég hafði gjöreytt þeim. |
39. | Ég gjöreyddi þeim og molaði þá sundur, svo að þeir risu ekki upp framar og hnigu undir fætur mér. |
40. | Þú gyrtir mig styrkleika til ófriðarins, beygðir fjendur mína undir mig. |
41. | Þú lést mig sjá bak óvina minna, þeim eyddi ég, sem hata mig. |
42. | Þeir hrópuðu, en enginn kom til hjálpar, þeir hrópuðu til Drottins, en hann svaraði þeim ekki. |
43. | Ég muldi þá sem mold á jörð, tróð þá fótum sem skarn á strætum. |
44. | Þú frelsaðir mig úr fólkorustum, gjörðir mig að höfðingja þjóðanna. Lýður, sem ég þekkti ekki, þjónar mér. |
45. | Framandi menn smjaðra fyrir mér, óðara en þeir heyra mín getið, hlýða þeir mér. |
46. | Framandi menn dragast upp og koma skjálfandi fram úr fylgsnum sínum. |
47. | Lifi Drottinn, lofað sé mitt bjarg, og hátt upp hafinn sé Guð hjálpræðis míns! |
48. | Þú Guð, sem veittir mér hefndir og braust þjóðir undir mig, |
49. | sem hreifst mig úr höndum óvina minna og hófst mig yfir mótstöðumenn mína. Frá ójafnaðarmönnum frelsaðir þú mig. |
50. | Fyrir því vil ég vegsama þig, Drottinn, meðal þjóðanna og lofsyngja þínu nafni.Hann veitir konungi sínum mikla hjálp og auðsýnir miskunn sínum smurða, Davíð og niðjum hans að eilífu. |
51. | Hann veitir konungi sínum mikla hjálp og auðsýnir miskunn sínum smurða, Davíð og niðjum hans að eilífu. |
← 2Samuel (22/24) → |